Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 64
Kvikmyndaleikstjórinn Rúnar Rúnarsson er kom- inn í sumarfrí frá Danska kvikmyndaskólanum og hyggst nota hluta af fríinu til að taka upp nýja stutt- mynd hér á landi yfir versl- unarmannahelgina. „Myndin ber vinnuheitið Two Birds og fjallar um vinahóp sem er í gagnfræðiskóla,“ útskýr- ir Rúnar en það er kvikmynda- fyrirtækið Zik Zak sem framleið- ir myndina. „Myndin er vaxtar- saga aðalpersónunnar Óla og þetta er svona lítil ástarsaga með súrsætu eftirbragði,“ bætir hann við en á mánudaginn stendur til að velja leikara í myndina og geta áhugasamir sent tölvupóst á casting@zikzak.is. „Við erum að leita að fjórum aðalleikurum sem þurfa að líta út fyrir að vera á grunnskólaaldri, tveimur stelp- um og tveimur strákum.“ Rúnar skaust upp á stjörnuhim- ininn fyrir rúmu ári síðan þegar stuttmyndin Síðasti bærinn var tilefnd til Óskarsverðlauna. Þar laut hún í lægra haldi fyrir kvik- mynd Martin McDonagh, Six Shooter, en McDonagh er nú að leikstýra þeim Ralph Fiennes og Colin Farrell í In Bruges. Síðasti bærinn fór sigurför á kvikmynda- hátíðum um allan heim og sam- kvæmt kvikmyndasíðunni imdb. com hefur hún hlotið alls þrett- án verðlaun. Að sögn leikstjórans er hún þó nú komin á eftirlaun. „Hún er ennþá sýnd á einhverj- um hátíðum og er í DVD-dreif- ingu ásamt öðrum verðlauna- myndum,“ segir leikstjórinn sem fann vel fyrir þeirri athygli sem verðlaunum á borð við Óskarn- um fylgir. Honum barst töluvert af misgáfulegum verkefnum til að gera með hinum og þessum peningamönnum en fannst fæst af þeim áhugaverð. Og svo hafði námið sinn forgang. „En Óskarinn opnaði vissulega margar dyr, það verður bara að viðurkennast, og mér gefst í dag tækifæri til að gera miklu meira,“ útskýrir Rúnar sem er ekkert smeykur við að fylgja eftir velgengni Síðasta bæjarins. Öldudalurinn víðfrægi sé bara hluti af lífinu og þegar og ef að honum komi verði bara að takast á við það. „Mér hefur gengið vel í lífinu og mér hefur gengið illa þannig að það yrði ekkert nýtt fyrir mér,“ segir Rúnar. Leikstjórinn er nýorðinn pabbi, eignaðist litla stúlku í október. Hann segir dóttur sína vera ótrú- lega glaða yfir komunni til Ís- lands enda hafi verið svo heitt í Danmörku að hún hafi lítið getað sofið heldur bara svitnað og velt sér. „En hún fær núna ferskt ís- lenskt loft og sefur eins og steinn,“ segir Rúnar, sem jafnframt er orðinn giftur maður, gekk að eiga unnustu sína Claudiu í september í Ráðhúsi Kaupmannahafnar. Og Rúnar er sennilega einn ör- fárra nemenda í kvikmyndaskóla sem hefur Óskarsverðlaunatil- nefningu á ferilskránni. Skól- inn hans, Kvikmyndaskóli Dan- merkur, er einn sá virtasti sinn- ar tegundar í heiminum enda hafa margir af fremstu leikstjór- um Danmerkur setið þar á skóla- bekk. Töluverð vinna liggur að baki hverri önn og þurfa nem- endur að gera að minnsta kosti eina mynd sem er fimmtán mín- útur að lengd auk styttri mynda. Þær fá þó ekki að koma fyrir augu almennings og það er ekki fyrr en kemur að lokaverkefn- inu að nemendur skólans geta loks sýnt öðrum en kennurum af- rakstur sinn. „Þetta er auðvitað svolítið skrýtið og svona svipað eins og að grafa alltaf sama skurðinn aftur og aftur,“ segir Rúnar sem á nú eitt og hálft ár eftir. Hann segist ekki enn vera far- inn að leggja drög að lokaverk- efninu en er aftur á móti með heilan helling af hugmyndum til að vinna úr að lokinni útskrift. Og þar fer fremst í flokki kvik- mynd í fullri lengd. Kvikmyndin Fantastic Four: Rise of the Silver Surfer var frum- sýnd í kvikmyndahúsum borgar- innar í gær. Þar snúa þau Reed, Sue, Johnny og Ben, betur þekkt sem hin Fjögur fræknu, aftur og að þessu sinni þurfa fjórmenning- arnir að kljást við Silfraða brim- brettakappann sem kemur til jarð- ar og undirbýr jarðveginn fyrir eyðingu plánetunnar. Myndin er ein af hugsanleg- um sumarsmellum ársins en fyrri myndin fékk misjafna dóma gagn- rýnenda þótt áhorfendur hafi tekið henni opnum örmum. Var það ekki síst þakkað nærveru Jessicu Alba sem er í dag eitt heitasta ungstirni Hollywood enda hefur henni, ólíkt mörgum starfsystrum sínum, tek- ist að halda sér fjarri eiturlyfjum og ölvunarakstri. Meðal annarra leikara má nefna Julian McMahon sem bregður sér í hlutverk Dr. Doom og þá talar Laurence Fish- burn fyrir silfraða brimbretta- kappann en persónan er að öllu leyti tölvugerð með sömu tækni og notuð var við gerð Hringadrótt- inssögu. Heiminum bjargað Hefur að sjálfsögðu grátið í bíó
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.