Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 72
Ætlaði að komast mjög langt í fótboltanum
Gengi KR í upphafi sum-
ars er það versta síðan tíu lið byrj-
uðu að spila í efstu deild fyrir
þrjátíu árum síðan. KR tekur á
móti Íslandsmeisturum FH í kvöld
og um það hefur verið hvíslað að
Teitur fái að fjúka náist ekki sigur
í kvöld. Teitur segir að persónu-
lega komi ekki til greina að segja
af sér tapist leikurinn í kvöld og
segist hann hafa stuðning vinnu-
veitenda sinna.
„Það hefur ekkert verið rætt um
hvað ég fái mikinn tíma til að rétta
skútuna af og menn standa enn
saman hjá KR. Eðlilega eru allir
hundfúlir en ég hef ekkert verið
kallaður sérstaklega á teppið eða
eitthvað slíkt en ég ræði málin
samt alltaf einu sinni í viku við
stjórnina,“ sagði Teitur ákveðinn
en það er engan bilbug á honum
að finna.
„Ég mun halda áfram með liðið
þótt leikurinn við FH tapist. Ég
hef ekkert spáð í að hætta. Ég er
ráðinn í ákveðið starf og ég hyggst
sinna því starfi eins vel og ég get.
Ef mín vinna er ekki nógu góð
verður stjórn KR Sports að ákveða
framhaldið. Það er engin uppgjöf
í mér og ég er alveg með það á
hreinu að við munum rétta skút-
una af. Ég hef aldrei misst trúna
á verkefninu. KR er klúbbur sem
gerir væntingar og það er eðlilegt
að stuðningsmenn KR séu hund-
fúlir yfir stöðu mála. Það erum við
líka. Ég hef aftur á móti ekki orðið
var við neina örvæntingu hjá fé-
laginu.“
Teitur fagnar því að mæta FH á
þessum tímapunkti og lítur á leik-
inn sem kjörið tækifæri fyrir KR
til að snúa blaðinu við. „Það er
mjög gott að fá FH núna. Það er
það besta sem gat gerst því það
hvetur menn enn frekar til góðra
verka,“ sagði Teitur, sem segir
andann í herbúðum KR góðan
þrátt fyrir vonbrigðin í upphafi
móts.
„Það er fín stemning í hópnum
en menn eru eðlilega samt hund-
fúlir yfir því að vinna ekki leik.
Það er verkefni fyrir hópinn að
vinna okkur út úr þessum vanda
og við höfum sýnt á köflum að við
getum vel spilað ágætis fótbolta.“
Þó gengið sé slæmt segir Teitur
því fara víðs fjarri að það sé ein-
hver krísa í Vesturbænum.
„Það er fyrst krísa þegar leik-
menn og starfsmenn hætta að geta
unnið saman. Svo er ekki, heldur
er fín stemning á æfingum og
utan vallar hjá KR,“ sagði Teitur
Þórðarson.
Öll spjót standa á Teiti Þórðarsyni, þjálfara KR, þessa dagana. Gengi KR í upphafi sumars hefur verið
skelfilegt og liðið situr í neðsta sæti Landsbankadeildarinnar. KR tekur í kvöld á móti Íslandsmeisturum
FH. Það er engan bilbug að finna á Teiti, sem segir ekki koma til greina að hætta tapi liðið í kvöld.
Þjálfaraleit Skalla-
gríms er komin aftur á byrjunar-
reit eftir að Bandaríkjamaður-
inn Peter Hoffman hafnaði til-
boði sem félagið gerði honum.
Hoffman kom til Íslands á dögun-
um til að skoða sig um í Borgar-
nesi og leist að sögn vel á bæinn
og félagið. Hann er náinn vinur
Geofs Kotila, þjálfara Snæfells,
og gerðu Borgnesingar sér vonir
um að fá jákvætt svar frá Banda-
ríkjamanninum.
„Því miður sagði hann nei þar
sem fjölskyldan hans nennti ekki
að færa sig um set. Það kom mér
mikið á óvart,“ sagði Hafsteinn
Þórisson, formaður körfuknatt-
leiksdeildar Skallagríms, í gær.
Hafsteinn sagði að leitin að arf-
taka Vals Ingimundarsonar héldi
nú áfram, bæði innan- og utan-
lands.
Hoffman sagði
nei við Skallana
Ármann Smári Björns-
son skoraði þrennu fyrir Brann
í gær gegn neðrideildarliðinu
Øygard í annarri umferð norsku
bikarkeppninnar í gær. Hann
kom inn á sem varamaður í sókn-
ina í stöðunni 1-0 og skoraði
tvö mörk með mínútu millibili
skömmu síðar. Hann fullkomn-
aði þrennuna með fimmta marki
Brann úr víti. Kristján Örn Sig-
urðsson og Ólafur Örn Bjarna-
son léku í vörn Brann.
Stefán Gíslason skoraði eitt
marka Lyn í 5-0 sigri á Kvik Hald-
en og það gerði Garðar Jóhanns-
son sömuleiðis fyrir Fredrikstad
sem vann Sarpsborg, 4-0. Garð-
ar kom inn á sem varamaður í
leiknum.
Hannes Þ. Sigurðsson skor-
aði tvívegis fyrir Viking sem
vann Randaberg, 6-0. Þá skoraði
Veigar Páll Gunnarsson eitt fjög-
urra marka Stabæk gegn Fjöra.
Haraldur Freyr Guðmundsson
lék allan leikinn fyrir Álasund
sem vann Volda, 3-1.
Ármann með þrennu