Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 14.06.2007, Blaðsíða 78
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Nýjar og glæsilegar íbúðir verða afhentar í haust í Skuggahverfinu við Vatnsstíg en það er 101 Skugga- hverfi sem byggir þær. Nýlega var opnað fyrir tilboð í 2. áfanga og þar vekur athygli að toppíbúðin við Vatnsstíg 16 er talin kosta litlar 220 milljónir. Íbúðin er á tveimur á hæðum, er rúmir 310 fermetrar á tveimur hæðum, með þakgarð og er í ríflega 54 metra hæð. Og hinn heppni íbúi verður ekki svik- inn af útsýninu sem nær eins langt og augað eygir. Hins vegar gæti blásið ansi hressilega um þann sem hreppir hnossið ef marka má orð Sigurðar Þ. Ragnarssonar veðurfræðings. „Það liggur alveg fyrir að vind- hraði eykst eftir því sem hærra er komið. Og þarna getur hann auk- ist um allt að tuttugu prósentum við vissar aðstæður,“ útskýrir Sig- urður og bætir því við að líklega verði allt að hálfri gráðu kaldara þarna uppi en niðri. „Sem sann- ar hið fornkveðna, að það er kalt á toppnum,“ segir Sigurður í léttum dúr en áréttar í mun alvarlegri tón að hviður í verstu veðrum gætu orðið ansi snarpar. „Suðaustanáttin verður aldrei skemmtileg þarna og norðanáttin gæti orðið svöl. Þess á milli verður þetta hins vegar alveg sæmilegt.“ Hvað þakgarð í þessari hæð varðar segir veðurfræðingur- inn að íbúarnir þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur af því hvað vind varðar þótt eflaust gætu saltagnir í loftinu reynst erfiður ljár í þúfu. „Fólk þarf bara að velja sér gróð- ur við hæfi,“ útskýrir Sigurður sem er sjálfur ekki par hrifinn af byggingu háhýsa á Íslandi og segir arkitektúr ekki taka nægjanlega mikið tillit til íslensks veðurfars. Og þá ekki síst vindsins. „Slíkir turnar búa til vindstrengi og hviður sem oft á tíðum geta verið hættulegar og hafa valdið því að þungir hlutir takast á loft. Þá ekki síst þegar tveir slíkir koma saman,“ útskýr- ir hann en bætir því þó við að með hækkandi hitastigi jarðar gætu válynd veður heyrt sögunni til á Íslandi. „Menn verða þó að taka það með í reikninginn að við búum á einhverju mesta vindrassgati á byggðu bóli.“ Harpa Þorláksdóttir, markaðs- stjóri 101 Skuggahverfis, hafði litlar áhyggjur af gróðrinum í þakgarðinum. „Íbúðir þarna í kring eru með slíka garða og arki- tektarnir hljóta að hafa hugsað útí þetta,“ segir hún. Harpa telur mik- inn áhuga vera á þessum íbúðum og þegar séu nokkur hundr- uð manns á lista yfir áhuga- sama en það einskorðist ekki við glæsiíbúðina við Vatnsstíg. Gamli góði dúettinn Þú og ég tók ný- lega upp nýtt lag sem heitir Sætasta stelpan á ballinu og er hægt að nálg- ast það á heimasíðunni tonlist.is. Þetta kemur eflaust mörgum á óvart enda er langt síðan dúettinn hætti störfum. Lagið er úr smiðju Gunn- ars Þórðarsonar og Jónasar Frið- riks Gunnarssonar. „Gunni Þórðar átti nú þá hugmynd á sínum tíma að gera plötuna Ljúfa líf. Hann hringdi svo í okkur núna í vor og bað okkur um að syngja með Ragga Bjarna á plötu sem kemur út núna fyrir næstu jól,“ segir Jóhann Helgason, annar helmingur dúettsins sem eins og flestir vita er einnig skipaður Helgu Möller. „Þegar við hittumst þarna aftur kom upp svona gamall fílingur. Seinna hringdi Gunni í okkur aftur og sagðist vera með lag og texta sem yrði eiginlega að koma út núna, út af textanum. Við skelltum okkur heim til hans og sungum þetta inn en hann kláraði svo lagið.“ Lagið er enn aðeins fáanlegt á tonlist.is en einnig hefur það heyrst á útvarpsstöðvum landsins. „Það er ekki nema við gerum einhverja safnplötu að það gæti verið gefið út. Lagið er nokkuð ósvipað okkar fyrri lögum, það er svolítið fullorð- inslegt. Við höfum nú elst aðeins svo það er ekki sami ungæðishátturinn á þessu,“ segir Jóhann og útilokar ekki „kombakk“ frá dúettinum. „Ég ætla nú ekki að lofa því en um leið vil ég heldur ekki útiloka neitt.“ Nýtt lag frá Þú og ég Margir áhorfendur kvöldfrétta RÚV í fyrrakvöld ráku upp stór augu þegar þeir urðu vitni að afar undarlegri hegðun Kristínar Ing- ólfsdóttur, rektors Háskóla Íslands, í beinu sjónvarpsviðtali. Verið var að spyrja Kristínu út í nýútkomna skýrslu Ríkisendurskoðunar og var rektor sífellt að laga á sér hárið auk þess sem hún beinlínis hló að spurn- ingum fréttamannsins Rakelar Þor- bergsdóttur,. Ýmsar tilgátur heyrðust á kaffi- stofum og bloggsíðum landsins í gær um hvað hefði verið að hrjá rektor í viðtalinu, meðal annars að Kristín hefði fengið flugu í augað. Hið rétta er að rektor stóð í þeirri trú að um æfingu væri að ræða. „Og ég áttaði mig ekki á því fyrr en viðtalið var búið að svo var ekki. Þetta var einfaldlega misskilningur og það láðist að láta mig fá merki um að við værum í loftinu. Og nei, þetta var ekki fluga. Ég var bara að laga mig til,“ sagði Kristín og skelli- hló þegar hún útskýrði málið fyrir Fréttablaðinu í gær. „Þetta hefur verið mikið skemmtiefni hér í skól- anum í dag og það er búið að gera mikið grín að mér.“ Líkt og rektor gat Rakel leyft sér að sjá spaugilegu hliðina á uppákomunni í gær. „Ég er búin að vera hjá RÚV í 8 ár og aldrei lent í öðru eins,“ sagði Rakel ennþá í sjokki. „Henni brá eðlilega mikið þegar ég sagði henni að við hefðum verið í beinni en hún tók þessu alveg frábærlega vel. Við gátum allavega hlegið mikið að þessu.“ Rektor hélt að um æfingu væri að ræða „Þegar tími gefst fæ ég mér AB mjólk með múslí og oft narta ég í melónu sem kærastan mín er voðalega dugleg að skera niður á morgnana og kannski smá hrökkbrauð með.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.