Fréttablaðið - 24.08.2007, Page 28
Ber af ýmsum stærðum og gerð-
um eru í aðalhlutverki á haustin
hjá Ásdísi Maríu Franklín og
Óskari Frímannssyni.
„Á haustin snýst allt um berin í
fjölskyldunni. Ég og maðurinn
minn erum bæði frá Akureyri og
þar erum við með berjasvæðin
okkar, “ segir Ásdís María Frankl-
ín lyfjafræðingur sem segir
berjahefðina gríðarlega ríka í
móðurfjölskyldunni. „Systkini
afa sem sum eru á áttræðis- og
níræðisaldri fara enn á fjöll og
tína óteljandi lítra á ári og byrja
að spæja eftir berjum strax í
ágúst,“ segir Ásdís María sem
fór í óteljandi ferðir í berjamó
sem krakki eftir skóla og um
helgar. „Berin eru nýtt í matar-
gerð og bakstur eða í sultur og
hlaup með ostum, brauði og steik,
þá sérstaklega villibráð. Síðan
erum við með berin í öllum
veislum til dæmis í bökum, mar-
engstertum eða bara fersk. Við
tölum ekki um neitt annað en ber
á haustin,“ segir Ásdís María
hlæjandi sem segir sultuna henn-
ar mömmu sinnar vera víðfræga
í fjölskyldunni. „Mamma tínir
gríðarlegt magn og er alltaf með
frystinn fullan og sem síðan
breytist í tertur og aðra góða
rétti allan ársins hring,“ segir
Ásdís María.
Á unglingsárunum minnkaði
síðan áhuginn og berjaferðunum
fór sífækkandi.
„Ég var að ljúka löngu háskóla-
námi og maðurinn minn hóf eigin
rekstur á efnalauginni Hreinn.
Þá gafst ekki tími fyrir berin en
nú erum við nýflutt í Mosfells-
bæinn með rabarbara, sólberja-
og rifsberjarunna úti í garði og
vorum að sulta sólber þessa dag-
ana,“ segir Ásdís María sem segir
svo sannarlega tími til kominn til
að halda við fjölskylduhefðinni.
Bláberin verða sennilega tínd
fyrir norðan að sögn Ásdísar
Maríu enda fleiri aðalbláber þar
sem fjölskyldunni finnast betri.
Ásdís María segir einnig að
manninum sínum hafi brugðið
svolítið þegar hann kynntist þess-
um gríðarlega berjaáhuga í
tengdafjölskyldunni.
„Ég veit að foreldrar Óskars
hafa verið að gera skemmtilegar
tilraunir með rabarbarasultur.
Sett bæði epli og engifer til að
bragðbæta, en ég held að mín
fjölskylda sé einstaklega upptek-
in af berjunum,“ segir Ásdís
María sem sjálf er mikið gefin
fyrir tilraunastarfsemi og hefur
meðal annars verið að prófa
hrútaber.
Fyrstu árin ólst Ásdís María
upp í Svíþjóð og þar voru ber eins
og jarðarber og hindber á boð-
stólum frá byrjun júní. „Við
vorum alltaf með frystinn fullan
af berjum í Svíþjóð sem við borð-
uðum allan ársins hring og það er
alltaf gaman að komast í jarðar-
berin þegar við förum út,“ segir
Ásdís María.
Uppáhaldsberin eru þó sólber,
en ekki hvaða sólber sem er. „Við
erum bæði með vonda sólberja-
runnann og góða sólberjarunn-
ann. Góði sólberjarunninn er
alveg svakalega góður og ég
blanda gjarnan rifsberjum eða
jafnvel krækiberjum út í,“ segir
Ásdís María sem lætur uppskrift-
ir fylgja.
Óteljandi lítrar á haustin
Uppskrift Önnu
Sérfræðingar
í saltfiski
Þjónustum verslanir, veitingahús o.fl.
Fyrir verslanir:
Til suðu:
saltfiskbitar blandaðir
gellur
gollaraþunnildi
Til steikingar:
saltfiskbitar blandaðir
saltfiskkurl
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
gellur
Fyrir veitingahús – hótel – mötuneyti:
saltfiskhnakkar tvær stærðir (lomos)
saltfiskbitar blandaðir til suðu og steikingar
saltfiskkurl
Fyrir utan saltfiskinn þjónustum við sitthvað fleira, svo sem:
ýsuhnakka
rækjur
þorskhnakka
steinbítskinnar og bita
Sími: 466 1016
ektafiskur@emax.is