Fréttablaðið - 24.08.2007, Qupperneq 36
BLS. 6 | sirkus | 24. ÁGÚST 2007
BJÖRN SVEINBJÖRNSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI NTC, HEFUR FARIÐ MIKINN Á GOLFVELLINUM Í SUMAR.
HANN HEFUR DREGIÐ SPÚSU SÍNA MEÐ SÉR Á VÖLLINN OG ER HÚN NÚ SMITUÐ AF BAKTERÍUNNI.
BJÖRN OG SVAVA
Skötuhjúin taka
sig vel út á
golfvellinum. Þau
þykja með best
klæddu kylfingum
sem sést hafa á
golfvöllum
landsins.
KENNIR SVÖVU
É g hef spilað golf í nokkuð mörg ár en Svava byrjaði hins vegar í fyrra,“ segir Björn Svein-
björnsson, framkvæmdastjóri tísku-
vörukeðjunnar NTC, sem hefur farið
mikinn á golfvellinum í sumar ásamt
unnustu sinni, Svövu Johansen.
Björn er gamalreyndur golfari.
Byrjaði að slá kúluna hvítu fyrir átta
árum og er nú með 13,1 í forgjöf, sem
telst nokkuð gott. Svava snerti hins
vegar fyrst kylfu í fyrra en er nú smit-
uð af bakteríunni. Stefnir ótrauð að
því að lækka forgjöfina úr 36, sem
hún stendur í núna.
„Hún byrjaði á fullu í vor. Það þýðir
ekkert annað en að vera bæði í þessu.
Þetta er svo tímafrekt sport að við
verðum eiginlega að vera bæði í
þessu,“ segir Björn, sem á í raun sök-
ina á því að Svava byrjaði í golfinu.
„Svava hefur svo gaman af því að
vera úti í náttúrunni að ég vissi að
hún myndi detta inn í þetta.“
Björn er algjörlega smitaður af
golfbakteríunni. Segir golfið vera
eins og veiðina. „Ég er alltaf að berj-
ast við að lækka forgjöfina en fór í
hnéaðgerð í sumar svo ég missti svo-
lítið úr. Ef ég ætlaði eitthvað neðar
hefði ég þurft að spila miklu meira.
Tíminn spilar alltaf inn í þetta,“ segir
Björn, sem lét meiðslin ekki aftra sér
frá golfinu. „Við Svava keyptum
okkur golfbíl þar sem ég á erfitt með
gang. Við erum á honum alla daga og
látum meiðslin ekki koma í veg fyrir
að við spilum golf.“
Björn og Svava nota golfið einnig
til að slappa af. „Við erum alltaf á
fullu í vinnunni en úti á golfvelli næ
ég að slappa af. Fer að hugsa um eitt-
hvað allt annað en fatabransann og
þá fer heilinn að vinna ósjálfrátt úr
hlutum sem maður hefur saltað í
marga daga. Það er líka bara svo
mikil snilld að vera úti á velli í góðu
veðri og eyða tíma með sjálfum sér.“
Björn segist mjög ánægður með
að hafa dregið Svövu í golfið og mælir
með því að pör spili saman. „Það er
algjör snilld að vera saman úti á golf-
velli. Eins og Svava segir sjálf þá
eyðum við fjórum til fimm tímum
saman á vellinum og tölum saman
og leysum oft einhver vandamál sem
hafa komið upp. Það koma oft upp
góðar hugmyndir á vellinum,“ segir
Björn, sem hefur einnig verið dug-
legur í líkamsrækt, fótbolta og á
skíðum. „Ég er hálf ofvirkur. Á erfitt
með að sitja kyrr eða liggja uppi í
sófa. Ef ég er ekki í golfi eða fótbolta
þá fer ég út til að slá garðinn.“ - kh
RÉTTU SVEIFLUNA