Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 28
Elskulegur eiginmaður minn
Böðvar Guðlaugsson
sérkennari, Hamraborg 18, Kópavogi,
lést á Vífilsstöðum fimmtudaginn 16. ágúst síðastlið-
inn. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins
látna. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý-
hug. Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks Vífilsstaða og
séra Svanhildar Blöndal.
Ósk Ingibjörg Eiríksdóttir,
börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn
og systur hins látna.
Sigurgeir Ingvarsson
Sigurgeir Reynisson Sigrún Magnúsdóttir
Gunnar Valgeir Reynisson Kristina Tyscenko
Pétur Kúld Margrét Auður
Óskarsdóttir
Guðmundur Birnir Sigurgeirsson Ágústa Traustadóttir
Pálmar Sölvi Sigurgeirsson Valgerður K.
Sigurðardóttir
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug
við andlát og útför
Sigrúnar Ingu Sigurgeirsdóttur
Grænumörk 3, Selfossi.
Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengda-
móðir, amma og langamma,
Ágústa Ingibjörg
Skúladóttir
Árskógum 8, (áður Háaleitisbraut 121),
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ að kvöldi
miðvikudagsins 29. ágúst.
Jón Jónsson
Ragnheiður Jónsdóttir Brynjólfur Þór Brynjólfsson
Erla Bragadóttir
Björg Kristín Jónsdóttir Elías Héðinsson
Þuríður Jónsdóttir Glaeser Hans Ulrich Glaeser
barnabörn og barnabarnabörn.
Einlægar þakkir fyrir alla samúð, stuðning
og hlýhug við fráfall
Jóns Ásgeirs Sigurðssonar
útvarpsmanns.
Margrét Oddsdóttir
Sigurður Árni Jónsson
Oddur Björn Jónsson
Þorgrímur Darri Jónsson
Sigríður Jónsdóttir Hallsteinn Magnússon
Haukur og Kári Hallsteinssynir
Margrét Sigurðardóttir Þórir Haraldsson
Björn Sigurðsson Hekla Smith
Magdalena Sigurðardóttir Oddur Pétursson
Okkar hjartkæra
Anna Einarsdóttir
lést 27. ágúst sl. Útförin fer fram frá Víðistaðakirkju
föstudaginn 7. september kl. 13.00.
Systur og fósturdóttir.
Árni Ibsen
verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju Hafnarfirði
þriðjudaginn 4. september kl. 13.00.
Aðstandendur.
Þorskastríð hófst á miðunum
Leikskólinn Leikgarður fagnar
ársafmæli í dag og er einn fárra á
höfuðborgarsvæðinu sem taka á móti
börnum frá sex mánaða aldri.
„Leikgarður er rekinn af Félags-
stofnun stúdenta og þess vegna getum
við tekið á móti svona ungum börnum.
Skólinn er fyrir börn háskólanema
sem eru á aldrinum sex mánaða til
tveggja ára,“ segir Íris Arnardóttir,
leikstjóraskóli.
Skólinn sem er við Eggertsgötu
hefur nú starfað í ár og getur tekið á
móti sextíu börnum. Að sögn Írisar
er engin mannekla á Leikgarði
sem er fullmannaður með tuttugu
starfsmenn.
Að sögn Írisar komast svona ung
börn almennt ekki inn á leikskóla en
þörfin er rík. „Dagmömmur geta ekki
sinnt öllum þessum börnum og þarna
er að myndast gjá þar sem foreldrar
hafa ekkert val. Fyrir síðustu
kosningar var lofað að finna úrræði
annaðhvort vöggustofur eða leikskóla
fyrir þennan aldur. Það hefur ekki
gerst enn, svo ég bíð bara spennt,“
segir Íris og bætir við:
„Það þyrfti að gera þarfagreiningu.
Þá kæmi í ljós hversu margir foreldrar
eru í vanda,“ segir Íris sem segist
vona að fleiri leiksskólar verði settir
á laggirnar sem taki á móti yngstu
börnunum. „Hjá dagmömmum eru
börnin meira í pössun á meðan við
stöndum fyrir faglegu starfi. Við erum
háskólamenntuð í uppeldisfögum
og fylgjumst markvisst með þroska
barnanna og örvum þau á þann hátt sem
hentar þeirra þroska og aldursskeiði,“
segir Íris.
Hún segir að aðlögun barnannna snúi
alltaf bæði að börnum og foreldrum,
sérstaklega hjá svona ungum börnum.
„Það er alltaf smá skjálfti í foreldrum
þegar þau koma fyrst með börnin en
þetta gengur mjög vel,“ segir Íris.
Hún segir jafnframt að umönnun
yngstu barnanna sé vissulega öðruvísi
en þeirra eldri. „Það er misjafnt hvaða
aldri kennarar hrífast mest af og sem
betur fer eru margir sem vilja þá
áskorun að hugsa um litlu börnin líka,“
segir Íris og bætir við að skólinn sé í
samvinnu við tvo aðra leikskóla sem
Félagsstofnun stúdenta rekur fyrir
eldri börnin.
„Við erum með sameiginlega stefnu
sem við vinnum eftir sem kallast High
Scope. Þetta er mjög virt bandarísk
stefna sem er búið að raunprófa,“
segir Íris sem segir stefnuna snúast
um að finna áhugasviðs hvers barns,
auk umhyggju og að barnið öðlist
traust á leiksskólakennurunum svo
það sé ánægt í leikskólastarfinu.
„Ég veit af einum öðrum leikskóla
sem starfar eftir þessari stefnu, en við
erum þau einu sem erum með svona
ung börn,“ segir Íris sem nú vinnur
að þýðingu bókar um stefnuna fyrir
yngstu börnin.
„Ég er nú bara þannig
gerður að mér finnst
ekki að maður geti verið
einhvers konar manneskja
og annars konar forseti.“
AFMÆLISBÖRN