Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 74

Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 74
C/o Pop hefur verið haldin árlega frá árinu 2004 í miðbæ Kölnar og hefur áherslan verið lögð á strauma og stefnur í jaðartónlist nútímans og framtíðarinnar. Dagskráin dreif- ist á milli fjölbreyttra staða í mið- borg Kölnar, ekki ólíkt Airwaves, en jafnframt er haldin ráðstefna og ýmislegt fleira meðfram sjálfri hátíðinni. Stærstu nöfnin á c/o Pop í ár voru án efa Tamílatígragellan M.I.A., Uffie og Feadz úr Ed Bang- er, þýsku nýstirnin í Apparat og brjálæðissveitin Battles (ein lang- besta tónleikasveit dagsins í dag), og eitt stærsta og virtasta danstón- listarplötufyrirtæki heimsins, Kompakt, hélt risapartí. Í ár var aðalmiðja hátíðarinnar hinn svokallaði Evrópurúntur en hátíðin hafði fengið til liðs við sig tólf tónlistarhátíðir sem að þeirra mati eru þær áhugaverðustu í Evrópu. Iceland Airwaves var ein þeirra en í þessum hópi má einnig nefna hátíðir á borð við ofurdans- tónlistarhátíðina Sonár í Barcelona, Distortion í Kaupmannahöfn og Phonem í Istanbúl. Hátíðarnar fengu síðan hver um sig að kynna sig á c/o Pop, bæði með bás í mið- stöð hátíðarinnar og með sérstakri dagskrá. Á bás Iceland Airwaves var hið týpíska íslenska „góðgæti“ á boð- stólum; harðfiskur, hákarl og úrval íslensks vínanda. Áfengu drykkirn- ir gerðu það einmitt að verkum að íslenski básinn var fjölsóttur og voru stjórnendur hátíðarinnar sér- staklega tíðir gestir. Haukur Magn- ússon, liðsmaður Reykjavík!, þurfti þannig að hafa mikið fyrir því að fá framkvæmdastjóra hátíðarinnar, Ralph Cristoph, til þess að kveðja rétt fyrir lokun á síðasta degi hátíð- arinnar. Miðstöð hátíðarinnar bauð líka upp á ýmsa fyrirlestra auk þess sem fjölmargir aðilar tengdir tón- listarbransanum kynntu sig og sínar afurðir um leið og þeir skoð- uðu hjá öðrum. Plötubúðir, fata- merki, veftímarit, hönnuðir og fleiri kynntu starfsemi sína og meðal þeirra voru Íslandsvinirnir í Berlínar-plötufyrirtækinu Morr Music, þar sem einmitt Benni Hemm Hemm og Seabear gefa út tónlist sína. Seabear var fyrsta sveitin sem steig á svið en frumburður sveitar- innar, The Ghost That Carried Us Away, kom í vikunni út í Þýskalandi (úti fannst eitt tónlistarblað sem fékk ýmsa þekkta aðila til þess að gefa vel völdum plötum, þar á meðal plötu Seabear, einkun sína. Þar bar helst að H.P. Baxxter, söngvari Scooter, gaf Seabear einn í einkunn af tíu mögulegum). Í Sea- bear eru sjö manns og hefur sveitin eflst mikið undanfarið. Sveitin skil- aði sínu vel og eftir tónleikana hóp- aðist fólk að meðlimum sveitarinn- ar til þess að kaupa eintak af plötunni. Sömu sögu má segja af Reykja- vík! sem spilaði á eftir Seabear. Léku þeir piltar við hvurn sinn fingur, buðu upp á þýskukennslu og danskeppni auk þess sem brenni- vínsflaska fékk að flakka um salinn við mikinn fögnuð. Ein efnilegasta sveit landsins, Ultra Mega Technobandið Stefán, fékk síðan að ljúka kvöldinu enda tónleikar sveitarinnar þekktir fyrir að fá alla partískala til að springa. Stóðu þeir svo sannarlega undir nafni og ætlaði allt um koll að keyra í salnum. Undir lokin sameinaðist allur íslenski hópurinn uppi á svið- inu og steig taktfastan dans sem náði síðan alla leið út fyrir salinn, inn í borgina og endaði ekki fyrr en allir voru sofnaðir. Frábært kvöld í alla staði. Hátíðin sem slík var líka öll hin bærilegasta og Köln einstaklega viðkunnanleg borg. Af þeim tón- leikum sem maður sá stóð sveitin Battles klárlega upp úr. Hreinlega stórfengleg sýning sem þeir settu á svið. Ætlunin var líka að sjá M.I.A. en staðurinn varð fljótt pakkaður þannig að margir þurftu frá að hverfa og því missti ég af henni. Ekki verður hins vegar af því skaf- ið að Kölnarbúar kunna að skemmta sér. Þó að c/o Pop einbeiti sér mest megnis að rafræna geiranum er hátíðin greinilega að færa út kvíarnar og gefa öðrum ólíkum stefnum meiri gaum. Að fá sveitir eins og Seabear og Reykjavík! til þess að spila gaf hátíðinni óneit- anlega meiri vídd en Reykjavík! var án alls vafa rokkaðasta sveitin á hátíðinni, sem vonandi heldur áfram að hygla íslensku tónlist- arsenunni jafn mikið. Tekið á því í Köln Tónlistarhátíðin c/o Pop (Cologne on Pop) fór fram í Köln, fjórðu stærstu borg Þýskalands, fyrir stuttu síðan. Reykvísku tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves var boðið sérstaklega á hátíðina til þess að kynna sig og spiluðu íslensku sveitirnar Ultra Mega Technobandið Stefán, Seabear og Reykjavík! á sérstöku Iceland Airwaves-kvöldi. Viðtökurnar voru vægast sagt góðar og brosmildir Þjóðverjar stigu villtan dans með Íslendingunum og Steinþóri Helga Arnsteinssyni sem var á svæðinu. [up pl‡s inga - sím i sk ólan s er 5 68.3 725 ] [veldu gó›an jar›veg fyrir barni› flitt] -veldu Su›urhlí›arskóla!
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.