Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 19
Það vill einhver byggja á
græna útivistar-
svæðinu í hverf-
inu mínu! Þetta
er sneið af þeim
15% svæðisins
sem eftir eru utan girðinga, hafa
ekki verið lögð undir malbikuð
bílastæði eða múruð undir stein-
steypu. Þetta er sneið af því litla
rými sem er eftir sem ég þarf ekki
að borga mig inn á eða ganga í
klúbb til að mega vera þar.
Af hverju má ekkert vera í friði?
Hví verður að leggja allt undir sig
með arðsemisframkvæmdum þró-
unarhyggju nútíma steinaldar-
hugsunar? Ég kalla það steinald-
arhugsun að geta ekki séð auðan
blett án þess að byrja strax í hug-
anum að hræra steypu og reisa
grjótveggi. Það hefur ekki farið
hátt um væntanleg byggingar-
áform í austurhluta Laugardals.
Um er að ræða breytingu á deili-
skipulagi fyrir svæði IV sem nú
liggur fyrir hjá skipulags- og
byggingasviði Reykjavíkurborgar
til að ráðstafa grænu útivistar-
svæði undir fjölbýlishús. Íbúa-
samtök Laugardals hafa andmælt
þessum áformum kröftuglega frá
fyrsta degi eftir viðurkenndum
leiðum stjórnsýslunnar.
Tillagan sem nú liggur fyrir er
sú síðari af tveimur. Hinni fyrri
hafnaði skipulagsráð í kjölfar
fjölda mótmæla íbúa og stofnana í
grenndinni. Á sama fundi var lögð
fram önnur tillaga þar sem bygg-
ingamagnið var minnkað um helm-
ing og staðsetningu hliðrað um
nokkra tugi metra. Hátt á annað
hundrað andmæli bárust gegn síð-
ari tillögunni og fékkst athuga-
semdafresti hennar seinkað til 30.
ágúst. Það er því engin ástæða til
að ætla að seinni tillagan sé íbúum
við Laugardal frekar að skapi.
Borgarfulltrúi nokkur fullyrti á
bloggi sínu að seinni tillagan væri
dæmi um virkt samráð
borgaryfirvalda og borgarbúa og
óskaði Íbúasamtökunum til
hamingju. Það er þó engu að fagna
því samráð var ekkert. Seinni
tillagan var lögð fram á sama fundi
skipulagsráðs og þeirri fyrri var
hafnað. Hún var því til frá upphafi,
tilbúin til matreiðslu og borin fram
á opinberum vettvangi með
samráðssósu yfirklórs. Hún var
aldrei kynnt né rædd við
Íbúasamtökin. Embættismenn borg-
arinnar sögðu ekki frá því að hún
væri þegar til á kynningarfundi um
fyrri tillöguna sem borgaryfirvöld
efndu til í sumarbyrjun. Umsækj-
endur umræddra framkvæmda létu
heldur ekki uppi um áform sín. Á
þeim fundi kom skýrt fram einörð
afstaða íbúa við Laugardal að þeir
vilja ekki meiri mannvirkjagerð í
Laugardal. Það gildir einu hver
notkunin á að vera. Stærð og
umfang gildir einu. Íbúar vilja ekki
meira. Þeir vilja útivistarsvæði þar
sem manneskjur geta leikið sér
með flugdreka, æft golfsveiflu og
flugukast eða bara sest í grasið og
verið til. Manneskjur þurfa andrými
í borgarumhverfi, græna náttúru til
að efla heilbrigði og vellíðan. Ef
byggt er á grænum svæðum þá
einfaldlega hverfa þau og hinn
raunverulegi ábati grænna skrefa
Reykjavíkurborgar er fyrir bí.
Það er eftirtektarvert að í
skipulagi nýrra hverfa sem nú eru
í bígerð er ekki frátekið rými fyrir
borgargarða til almennrar útivist-
ar. Þess vegna verða svona lítil
græn frímerki sem eftir standa
enn mikilvægari og dýrmætari.
Áskorunin er þessi: Byggjum í
grennd við græn svæði en ekki á
þeim.
Höfundur er íbúi við
Laugardal í Reykjavík.
Af hverju vill Bæjarstjór-
inn í Vestmanna-
eyjum ekki
ræða kosningar
um samgöngumál í Eyjum. Það
eru mjög skiptar skoðanir í Vest-
mannaeyjum um Bakkafjöruhöfn.
Fólk úti í Eyjum ætti að fá að kjósa
um tvo valkosti, annars vegar um
höfn í Bakkafjöru eða hraðskreið-
ara og stærra skip sem sigldi til
Þorlákshafnar á tveimur tímum.
Það eru skiptar skoðanir um
sandburð inn í Bakkafjöruhöfn og
sandfok af landi í höfnina. Rifið
utan við fyrirhugaða hafnargarða
er það sem ég óttast mest í þessari
hafnargerð. Ég hef átt langan fund
með Gísla Viggóssyni frá Siglinga-
stofnun um hafnargarð í Bakka-
fjöru og breyttist afstaða mín ekki
eftir þann fund nema síður væri.
Fjaran á þessum slóðum er alltaf á
fleygiferð eftir straumum og veðr-
um, briminu ekki síst.
Við Vestmannaeyinga vil ég
segja að ég er til þjónustu reið-
ubúinn í hvaða málum sem er og
tilbúinn að berjast með og fyrir
hagsmunum Vestmannaeyinga
hvar og hvenær sem er.
Bæjarstjórnin og fólkið í Eyjum
getur alltaf haft samband við und-
irritaðan í hvaða málum sem eru
og ég legg mig allan fram við að
hjálpa til.
Höfundur er þingmaður
Frjálslynda flokksins.
Bæjar-
stjóra
svarað
Grænt frímerki á válista
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 7
1
4
6
5
Fólk úti í Eyjum ætti að fá að
kjósa um tvo valkosti, annars
vegar um höfn í Bakkafjöru eða
hraðskreiðara og stærra skip
sem sigldi til Þorlákshafnar á
tveimur tímum.