Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 96

Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 96
Oddi Háskóli Íslands • www.lingva.is • gsm. 661 7163 MÁLASKÓLINN LINGVA OPIÐ HÚS í dag milli kl 13-16 Vínsmökkun, ferðavinningar Heitt á könnunni - Allir velkomnir ODDA, Háskóla Íslands Kjúklingalæri með kartöflum, sósu og gulrótum 540,- NÝR VÖRULISTI 1.490,- LACK hliðarborð 55x55x45 cm ýmsir litir skapaðu ÞÉR RÝMI HEDDA púðaver 50x50 cm 495,- IKEA STOCKHOLM hægindastóll Blad marglitað 60x80x71 cm 24.900,- BJURSTA skenkur 155x40x68 cm svarbrúnn 19.950,- HEDDA motta 140x200 cm 15.990,- ARILD 3ja sæta leðursófi 207x94x81 cm 99.900,- BESTÅ ENÖN sjónvarpshirsla 120x40x128 cm 12.950,- LINNARP bókaskápur 115x37x178 cm 19.950,- TRÄBY sófaborð 118x70x43 cm 8.990,- KNAPPA TULPAN borðlampi Ø32, H75 cm 2.490,- LERSTA les-/gólflampi Ø16, H131 cm 1.490,- HEDDA RAK púðaver 50x50 cm 895,-/2 í pk. Örnefni eru vandmeðfarin því fólk tekur við þau ástfóstri, eins og dæmin sanna. Ekki er langt síðan lá við borgarastyrjöld norður í landi vegna ágreinings um heiti á fjalli. Við sameiningu íslenskra sveitarfélaga komu upp svipuð vandamál. Sumir Keflvík- ingar harðneituðu að vera annað en Keflvíkingar áfram og Njarð- víkingar tóku í svipaðan streng. Niðurstaðan var hið afleita nafn Reykjanesbær. er í fyrsta lagi afleitt vegna hrokans sem það lýsir. Þessu má líkja við að Ísafjörður héti skyndilega Vestfjarðabær – af fullkomnu tillitsleysi við Bol- víkinga, Þingeyringa, Tálknfirð- inga og aðra Vestfirðinga. öðru lagi er það afleitt vegna þess hve óþjált og tilgerðarlegt það er. Enginn tekur ástfóstri við svona örnefni, sem er í raun aðeins pólitísk þrautalending án tengsla við sögu, land eða lýð. Enda hafa Keflvíkingar purkunarlaust haldið áfram að vera Keflvíkingar og Njarðvíkingar Njarðvíkingar. Þannig skila orðin „Keflvíkingur“ og „Keflvíkingar“ 13.460 niður- stöðum séu þau „gúgluð“, „Njarðvíkingur“ og „Njarðvík- ingar“ 5.250 niðurstöðum en „Reykjanesbæingur“ og „Reykja- nesbæingar“ samtals 27. Nafnið er ónothæft. Fyrir vikið er sungið „Ó, Keflavík“ á Ljósanótt, en ekki „Ó, Njarðvík“ eða „Ó, Reykjanesbær“. (Hvernig skyldu Siglfirðingar taka því ef Fjallabyggðarlagið héti „Ó, Ólafsfjörður“?) er það ekki annað en hvimleið meinloka og lýti á landakortum að sveitarfélög verði að heita „bær“ eða „byggð“. Um árabil hefur verið hægt að segjast vera í Hafnarfirði án þess að nokkur vaði í þeirri villu að ekki sé átt við bæinn heldur fjörðinn sem bærinn er kenndur við. er fallegt örnefni með merkilega sögu. Þetta er breiður og djúpur fjörður sem gengur suður úr Faxaflóa og afmarkast að austan af Keilisnesi en af Stakksnípu í Hólmsbergi á Rosmhvalanesi að vestan. Hann dregur nafn sitt af stökum klettadrangi, Stakki, sem er undan Hólmsbergi. Inn úr Stakksfirði ganga tvær víkur, Keflavík og Njarðvík. Því má færa rök fyrir því að bæði Keflvíkingar og Njarðvíkingar séu Stakkfirðingar. Það gerir þá ekki að minni Keflvíkingum eða Njarðvíkingum. óska öllum Stakkfirðingum til hamingju með hátíðahöld helgar- innar og byggð í Stakksfirði blómlegra daga um alla framtíð. Góðir Stakkfirðingar

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.