Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 78

Fréttablaðið - 01.09.2007, Síða 78
Allar fjöldahreyfingar og tískustefnur, sama hversu heimskuleg- ar og skammlífar þær eru, eiga sér upphaf. Þetta upphaf er hægt að rekja ýmist til einnar manneskju, hóps fólks eða út frá öðrum hreyfingum og stefnum. Ein er þó sú stefna sem hingað til hefur reynst nánast ómögulegt að rekja að einhvers konar skilgreinan- legu upphafi. Hnakkastefnan. Hnakkastefnan er nú á blóma- skeiði sínu hérlendis og þrátt fyrir að skærustu stjörnur hennar, Gillz og karlarnir hans, séu nú aðeins fjarrænt blik eru göturnar fullar af imprezum og aflituðum gulrótar- piltum. Verkfræðingar Landsvirkj- unar eru í óða önn að stífla allar ár landsins til að sjá sífjölgandi ljósabekkjum landsins fyrir orku. Barnaskólar eru fullir af stelpum sem dreymir um sílikon og stælta stálstráka og strákum sem byrjaðir eru að safna fyrir húðkrabbameini og steratyppi. Hnakkastefnan virðist einskorð- uð við Norðurlöndin og að einhverju leyti Japan, en hún hefur almennt ekki náð fótfestu þar sem læsi er meira en þrjú prósent. Upptökin í Asíu eru óþekkt en hér á Íslandi hefur komið fram sennileg tilgáta um tilurð hennar: Jón Páll Sigmars- son og Hólmfríður Karlsdóttir. Þegar stjörnur hnakkastefnunnar voru börn voru þau skötuhjúin fyrstu fyrirmyndirnar. Hinn stóri, stælti, ljóshærði, brúni og á sinn hátt einfaldi Jón Páll var hetja allra barna sem einhvern tímann sáu hann sigra Kazmeier. Hólmfríður Karlsdóttir var fegursta kona í heimi, hinn fullkomni kvenmaður, ljós norðursins. Nú sýpur íslensk þjóð seyðið af því að hafa ekki haft gát á hvernig sigrar hennar voru matreiddir ofan í börnin. Fátt er þó með öllu illt. Unnur Birna, Íslands dáða dóttir, vann heimsmeistaratitil í fegurð. Alveg eins og Hófí. En hvað varðar sterkasta mann heims þá á Gillzen- egger langt í land. Kannski hann þurfi bara að drekka meiri Svala.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.