Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 36
Það er mikið mál fyrir yngstu
námsmenn lýðveldisins að
vera treyst fyrir því að ganga
einir í skólann. Hæfni þeirra
er takmörkuð, eins og reynsl-
an; og erfitt að pluma sig einn
í straumþungum stórfljótum
umferðarinnar.
„Foreldrar kvarta sáran undan
þungri umferð við skólana, en eru
á sama tíma að skapa hana sjálfir
með því að keyra börn sín í og úr
skóla. Það þarf sameiginlegt átak
foreldra í að kenna börnum sínum
örugga gönguleið í skólann og losa
þennan umferðarvanda um leið,“
segir Kristín Björg Þorsteinsdótt-
ir, fræðslufulltrúi á Umferðar-
stofu.
Íslensk börn eru aðeins á sjötta
ári tilveru sinnar þegar þau „verða
stór“ og hefja lögbundna skóla-
göngu, en á hverju hausti arka þau
af stað, 4.200 talsins, með skóla-
tösku á bakinu, meðan morgnarnir
verða dekkri og dagarnir styttast.
„Það er svo óskaplega mikil-
vægt að ökumenn virði hámarks-
hraða í námunda við skóla. Sem
betur fer eru margir þeirra í
hverfum þar sem er 30 kílómetra
hámarkshraði, en sums staðar,
eins og á Háaleitisbraut, Lang-
holtsvegi, Lönguhlíð og Skeiðar-
vogi, er 50 kílómetra hámarks-
hraði og eins gott að vera vel
vakandi því lítið má út af bera á
þessum mikla álagstíma þegar
skólarnir byrja á morgnana og
hætta á daginn,“ segir Kristín
Björg, sem leggur áherslu á að
lögregla vinni með litla fólkinu við
skólana og standi vörð um virð-
ingu ökumanna fyrir settum
hámarkshraða.
„Aðgengi við skólana er mis-
jafnt og alltaf ráðlagt að setja börn
út á þar til gerðum „sleppistæð-
um“. Einnig ber að forðast að
bakka á skólalóðum því yngstu
börnin eru enn bara lítil kríli sem
halda að þegar þau sjá bílinn sjái
bílstjórinn þau líka.“
Í ágúst fengu 4.200 sex ára börn
bæklinginn „Á leið í skólann“ þar
sem haldgóðar leiðbeiningar eru
gefnar foreldrum barna sem eru
að hefja skólagöngu.
„Umferð á höfuðborgarsvæðinu
hefur þyngst gífurlega og mikil-
vægt að vanmeta ekki umferðar-
kunnáttu barna. Þau verða að
klæðast flíkum og skólatöskum
með álímdum endurskinsmerkj-
um sem tolla vel. Fljótlega verða
haustmorgnarnir niðdimmir og
ekki ósvipað því að fara einn út
um miðja nótt fyrir börnin. Þau
þurfa þá að meta aðstæður, hraða
bíla og nálægð þeirra við mjög
ólíkar aðstæður en í björtu og það
verða ökumenn að virða og hafa
skilning á,“ segir Kristín Björg og
bætir við að mestu mistök barna í
umferðinni séu að hlaupa óvænt
og skyndilega yfir götur.
„Þau kunna öll að stoppa, líta til
beggja hliða og hlusta, en þetta
eru svoddan kálfar og þegar ein-
hver spennandi bíður hinum
megin götunnar gleyma þau að
nota umferðarreglurnar og taka á
rás. Það er líka varhugavert þegar
þau nota ekki gangbrautir og fara
á milli bíla við gatnamót,“ segir
Kristín Björg, en umferðarfræðsla
barna byrjar þegar þau verða
þriggja ára með bókaflokknum
„Krakkarnir í Kátugötu“.
„Langbesta fræðslan verður
alltaf göngutúrar með foreldrum,
því lengi býr að fyrstu gerð. Við
leggjum mikla áherslu á að börn
gangi í og úr skóla því það er besta
hreyfingin, auk þess sem það
frískar hugann að fá súrefni í
kroppinn áður en heilabrot í skól-
anum byrja. Hins vegar er mikil-
vægt fyrir þá sem ætla að keyra
börn sín í skólann að láta sex ára
börn sitja á upphækkuðum púða
því þau eru engan veginn orðin
nógu hávaxin til að sitja ein með
bílbelti í aftursætinu.“
Foreldrarnir skapa
umferðarþungann
BMW kynnir nýjan BMW seríu
1 tveggja dyra sportbíl.
Bílaframleiðandinn BMW kynnir
nýjan tveggja dyra sportbíl sem
bætist í hóp seríu-1 bíla BMW.
Þegar hinn upprunalegi fjögurra
dyra seríu-1 bíll var kynntur árið
2004 hlaut hann mikið lof fyrir
aksturseiginleikana en last fyrir
þrengsli í aftursætum. Það þykir
því skynsamlegra að hafa bílinn
aðeins tveggja dyra, sem breytir
notkun hans talsvert. Það sem er
áhugavert við bílinn er að Effici-
entDynamics-prógram BMW er
innbyggt í hann, en til stendur að
það verði sett í alla bíla BMW. Eff-
icienDynamics-prógram er sér-
stakt eldsneytissparnaðarkerfi.
Bíllinn verður framleiddur í nýrri
verksmiðju BMW í Leipzig sem
var hönnuð af heimsfræga arki-
tektinum Zaha Hadid.
Nýr BMW sportbíll