Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 82
Rannveig Fríða Bragadóttir mezzó-
sópran og Gerrit Schuil píanóleikari
halda ljóðatónleika í dag kl. 17 í
Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídal-
ínskirkju í Garðabæ. Þeir eru fyrst-
ir í tónleikaröðinni „Ljóðasöngur á
hausti“, þar sem fimm íslenskir ein-
söngvarar koma fram ásamt Gerrit
Schuil. Þema fyrstu tónleikanna er
kvenmyndir Goethes eins og sex
tónskáld hafa tjáð þær, Beethoven,
Mendelssohn, Schumann, Liszt,
Schubert og Wolf.
Rannveig Fríða Bragadóttir
stundaði söngnám við Tónlistarhá-
skóla Vínarborgar og lauk þaðan
meistaragráðu með láði. Hún á að
baki tuttugu ára glæsilegan söng-
feril. Í fjögur ár starfaði hún sem
einsöngvari við Ríkisóperuna í Vín-
arborg og síðar við óperuhúsið í
Frankfurt og tónlistarhátíðina í
Salzburg, en einnig hefur hún sung-
ið við óperuhús víðar. Hér á landi er
hún kunn sem ljóða- og óratoríu-
söngvari og óperusöngvari. Hún
hefur starfað með öllum helstu lista-
stofnunum landsins og haldið fjölda
einsöngstónleika. Rannveig Fríða
býr í Vínarborg þar sem hún starfar
sem konsert- og óperusöngkona en
er jafnframt prófessor við einsöng-
varadeild Tónlistarháskólans í Vín.
Gerrit Schuil nam píanóleik við
Tónlistarháskólann í Rotterdam og
stundaði síðan framhaldsnám hjá
John Lill, Gerald Moore og Vlado
Perlemuter. Hann hefur komið fram
á tónleikum víða um lönd sem ein-
leikari og meðleikari með söngvur-
um og hljóðfæraleikurum. Árið 1993
fluttist Gerrit Schuil til Íslands og
hefur síðan sett svip sinn á íslenskt
tónlistarlíf. Þau Gerrit hafa hljóðrit-
að og gefið út tvo hljómdiska, ann-
ars vegar söngljóð eftir Schubert
(1997) og hins vegar söngljóð eftir
Schubert, Schumann, Wolf og Grieg
(2001), en diskarnir voru báðir til-
nefndir til íslenskra tónlistarverð-
launa á sínum tíma.
Ljóð í Kirkjuhvoli
29 30 31 1 2 3 4
Auglýsingasími
– Mest lesið
Laugardag 1. sept., kl. 13-16
Samúel Jón Samúelsson stjórnar lokakvöldinu:
Sammi í Jagúar hefur sett saman sveitta klúbb samloku fyrir Lokakvöld
Jazzhátíðar Reykjavíkur. STÓRSVEIT SAMMA leikur efni af nýútkominni plötu þeirra
„Fnykur“ í bland við magnaða Big Band tónlist hins fi nnska JIMI TENOR.
Afróbít sveitin ANTIBALAS stígur síðan á svið og tryllir lýðinn fram á nótt.
DJ LUCKY mun þeyta saman tónlistarforrétti og millirétti svo enginn fari svangur heim.
SAGA CAPITAL OG JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 2007 KYNNA:
DJ Lucky
ANTIBALAS
Fnykur
Afróbít frá NYC
Jimi
Tenor
Frá Finnlandi!
Stórsveit
Samúels Jóns
Samúelssonar
Sammi í Jagúar
lokar Jazzhátíðinni!
ásamt
Klúbb
SAM
Loka
JAZZHÁTÍÐ REYKJAVÍKUR 29. ÁGÚST - 1. SEPTEMBER 2007
FO
RT
E
A
ug
lý
si
ng
as
to
fa
ALLIR ELSKA JAZZ!
Miðasala við innganginn og á www.midi.is
Allar upplýsingar um einstaka viðburði og fl ytjendur á www.jazz.is
Ókeypis tónleikar
– Ef það sé jazz! Markaðstorg jazzins
• Andrea og tríó Bjössa Thor
• Hilmar Jensson
• Ragnheiður Gröndal ásamt Gumma Pé
og Valda Kolla
• Bláir Skuggar Sigga Flosa
Nasa Laugardagskvöld 1. sept., kl. 21:00
Ráðhúsið
Ókeypis tónleikar á Jómfrúnni kl. 15-17
Egill B. Hreinsson og hljómsveit
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið