Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 72
M
argir muna eftir feðg-
unum Heimi Sverrissyni
og Daníel Heimissyni úr
sjónvarpsþáttunum
Krókaleiðir í Kína þar
sem hinn sextán ára
gamli Daníel gekk í gegnum óhefðbundna
manndómsvígslu með því að vinna framandi
störf í framandi landi.
Í sumar héldu þessir ævintýragjörnu
feðgar aftur á vit óvissunnar þar sem þeir,
ásamt Lilju Jónsdóttur ljósmyndara, eyddu
sjö vikum vítt og breitt um Indland.
Tilgangur ferðarinnar var fyrst og fremst
að útvega Daníel hlutverk í Bollywood-
mynd, en í dag er hann orðin sautján og
stundar nám í Borgarholtsskóla.
„Ásamt því að skoða Indland langaði
okkur til að kynnast Bollywood-heiminum
og láta á það reyna hvort Daníel gæti nú
ekki spreytt sig í þessum stórmerkilega
bransa sem verður æ vinsælli um allan
heim, enda stórskemmtilegar myndir,“
segir Heimir Sverrisson, pabbi Daníels og
ævintýramaður með meiru.
„Við ferðuðumst vítt og breitt um
landið, fórum á dans- og glímuæfingar,
kynntumst trúarbrögðum hindúa, fórum í
tvö brúðkaup; múslima- og hefðbundið
ættbálkabrúðkaup, við kynntumst presti,
pílagrímum, munaðarleysingjum, mönn-
um sem rúlla sér þvert yfir landið,
úlföldum og gerðum ótal fleiri hluti sem
ekki gefst pláss til að telja upp hér,“ segir
Heimir og bætir því við að allt hafi gengið
samkvæmt áætlun og meira til. „Daníel
er í það minnsta orðinn „hero“ á Indlandi
núna, en það kalla þeir stjörnurnar sínar
meðan frægasta fólkið ber titilinn
„superhero“!“
Grafarvogur-Bollywood
Í sumar fór sautján ára unglingur frá Grafarvogi til Indlands. Tilgangur ferðarinnar var að fá hlutverk í Bollywood-mynd.
Margrét Hugrún Gústavsdóttir kynnti sér málið.