Fréttablaðið - 01.09.2007, Blaðsíða 87
„Ferðaplötur“ KK og Magga Eiríks hafa selst í um 28
þúsund eintökum. Þeir félagar fá afhenta gullplötu
fyrir þá síðustu, Langferðalög, á lokatónleikum sínum
í Salnum 13. september.
KK segist alls ekki hafa átt von á þessum frábæra
árangri. „Maður hugsar ekki út í svona. Lögin eru eign
þjóðarinnar. Við fórum vel með þau og fólk er mjög
þakklátt fyrir það,“ segir hann um ástæðuna fyrir vin-
sældunum. Allar þrjár „ferðaplöturnar“ hafa náð gull-
sölu og þar af hefur sú fyrsta, 22 ferðalög, selst í yfir
sautján þúsund eintökum. Að auki hafa allar plöturnar
komist í efsta sæti Tónlistans.
KK og Maggi hafa að undanförnu verið á tónleika-
ferðalagi til að fylgja nýjustu plötunni eftir og hefur
þeim alls staðar verið firnavel tekið. „Við skutluðumst
í kringum landið og fórum hér og þar og alls staðar.
Okkur var mjög vel tekið og þetta er búið að vera ofsa
gaman. Fólkið er búið að sýna okkur svo mikla góðvild.
Það hefur verið að stoppa mann úti á götu og þakka
fyrir að hafa tekið þessi lög upp aftur. Það er gott að fá
svona stuðning frá fólki.“
KK, sem er að undirbúa nýja sólóplötu, segir að
Langferðalög verði síðasta „ferðaplatan“ frá þeim
félögum. „Þetta er orðið ágætt. 66 ferðalög. Er það ekki
fín tala?“
Funheit ferðalög Magga og KK
Elisha Cuthbert, fyrrum
leikkona í sjónvarpsþátt-
unum 24, er hætt með
kærastanum sínum. Sá
heitir Sean Avery og
er íshokkíleikmaður.
Parið hefur verið
saman frá árinu
2005 en áður var
Elisha trúlofuð
Trace Ayala, besta
vini og viðskipt-
afélaga Justins
Timberlake.
Vinur parsins
fyrrverandi
hefur nú látið
hafa eftir sér að það hafi verið
Elisha sem batt enda á samband-
ið. Sagan segir að Sean hafi
haldið rakleitt til Paris Hilton
og reynt að fá hana heim með
sér af skemmtistað einum á
Malibu-ströndinni í Los Ang-
eles. Honum varð ekki
kápan úr því klæðinu enda
eru þær Elisha og Paris
góðar vinkonur.
Fyrrum kærastinn
reyndi við Paris
www.isam.is
www.fronkex.is