Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 87

Fréttablaðið - 01.09.2007, Side 87
„Ferðaplötur“ KK og Magga Eiríks hafa selst í um 28 þúsund eintökum. Þeir félagar fá afhenta gullplötu fyrir þá síðustu, Langferðalög, á lokatónleikum sínum í Salnum 13. september. KK segist alls ekki hafa átt von á þessum frábæra árangri. „Maður hugsar ekki út í svona. Lögin eru eign þjóðarinnar. Við fórum vel með þau og fólk er mjög þakklátt fyrir það,“ segir hann um ástæðuna fyrir vin- sældunum. Allar þrjár „ferðaplöturnar“ hafa náð gull- sölu og þar af hefur sú fyrsta, 22 ferðalög, selst í yfir sautján þúsund eintökum. Að auki hafa allar plöturnar komist í efsta sæti Tónlistans. KK og Maggi hafa að undanförnu verið á tónleika- ferðalagi til að fylgja nýjustu plötunni eftir og hefur þeim alls staðar verið firnavel tekið. „Við skutluðumst í kringum landið og fórum hér og þar og alls staðar. Okkur var mjög vel tekið og þetta er búið að vera ofsa gaman. Fólkið er búið að sýna okkur svo mikla góðvild. Það hefur verið að stoppa mann úti á götu og þakka fyrir að hafa tekið þessi lög upp aftur. Það er gott að fá svona stuðning frá fólki.“ KK, sem er að undirbúa nýja sólóplötu, segir að Langferðalög verði síðasta „ferðaplatan“ frá þeim félögum. „Þetta er orðið ágætt. 66 ferðalög. Er það ekki fín tala?“ Funheit ferðalög Magga og KK Elisha Cuthbert, fyrrum leikkona í sjónvarpsþátt- unum 24, er hætt með kærastanum sínum. Sá heitir Sean Avery og er íshokkíleikmaður. Parið hefur verið saman frá árinu 2005 en áður var Elisha trúlofuð Trace Ayala, besta vini og viðskipt- afélaga Justins Timberlake. Vinur parsins fyrrverandi hefur nú látið hafa eftir sér að það hafi verið Elisha sem batt enda á samband- ið. Sagan segir að Sean hafi haldið rakleitt til Paris Hilton og reynt að fá hana heim með sér af skemmtistað einum á Malibu-ströndinni í Los Ang- eles. Honum varð ekki kápan úr því klæðinu enda eru þær Elisha og Paris góðar vinkonur. Fyrrum kærastinn reyndi við Paris www.isam.is www.fronkex.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.