Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 2
Um sextán þúsund bílar streyma um
helstu umferðaræðar Reykjavíkur á milli klukkan
sjö og níu á morgnana á virkum dögum, samkvæmt
tölum frá framkvæmdasviði Reykjavíkurborgar.
Morgunumferð síðustu daga hefur verið gríðar-
lega mikil og eru dæmi um að það hafi tekið
Hafnfirðinga allt að klukkustund að komast til vinnu
í miðborginni, sem venjulega tekur um fimmtán
mínútur.
Rétt rúmlega sjö þúsund bílar fóru vestur
Ártúnsbrekku á milli klukkan 7 og 9 í gærmorgun.
Þá fóru álíka margir bílar norður Kringlumýrar-
braut á sama tíma, og um tvö þúsund bílar um
Sæbraut við Höfða. Umferðin um Kringlumýrar-
braut var þó minni en á sama tíma og í fyrra. Þá
fóru hátt í átta þúsund bílar þar um.
Ólafur Bjarnason, aðstoðarsviðsstjóri fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkurborgar, segir að 4.500
bílar eigi með góðu móti að geta farið um Kringlu-
mýrarbrautina og Ártúnsbrekku á hverri klukku-
stund. Þó geti hliðarumferð haft áhrif þar á.
Athygli vekur að morgunumferðin um Kringlu-
mýrarbrautina í gær var álíka mikil og morgunum-
ferðin hinn 12. júní síðastliðinn. Morgunumferðin í
Ártúnsbrekkunni þann dag var hins vegar mun
meiri en í gær, eða um 700 fleiri bílar. Samt gekk
umferðin í sumar hraðar fyrir sig á báðum umferð-
aræðum. Þegar mest lét í gærmorgun fóru um 860
bílar norður Kringlumýrarbrautina á tíu mínútna
kafla. Hins vegar fóru um 885 bílar um Kringlumýr-
arbrautina þegar mest lét í morgunumferðinni 12.
júní.
Ólafur sagðist að svo stöddu ekki geta svarað því
til hvers vegna umferðin hefði gengið hraðar fyrir
sig í sumar. Hann þyrfti að rýna nánar í tölurnar.
Jón, áttu von á að þér verði
fyrirgefið?
Franco Frattini,
sem fer með dóms- og innanríkis-
mál í framkvæmdastjórn Evrópu-
sambandsins, lýsti því yfir í gær
að þörf væri á að efla hryðju-
verkavarnir í aðildarríkjunum.
Hætta á nýjum hryðjuverkum
væri áfram mikil.
Frattini sagði framkvæmda-
stjórnina myndu fylgja eftir
áformum um að setja á fót flugfar-
þegaskráningarkerfi sem næði til
allra aðildarríkjanna 27, sambæri-
legu því sem starfrækt er nú
þegar í Bandaríkjunum. Sumir
þingmenn hafa lýst áhyggjum af
því að áformin ógnuðu persónu-
vernd. Frattini sagði að evrópskir
borgarar ættu heimtingu á
jafngóðum hryðjuverkavörnum og
bandarískir.
Hryðjuverka-
varnir efldar
Umferðin sú sama
en gengur hægar
Sextán þúsund bílar fara um helstu umferðaræðar Reykjavíkur á hverjum
morgni. Umferðin er nánast sú sama og í sumar en gengur hægar fyrir sig.
Margt bendir nú til
þess að ákvörðun um framhald
Íraksstríðsins verði frestað þangað
til í apríl, að minnsta kosti ef George
W. Bush Bandaríkjaforseti og sam-
starfsmenn hans fá sínu framgengt.
Eftir að Bush tók ákvörðun um
það, nú í byrjun ársins, að fjölga
þyrfti í bandaríska herliðinu í Írak
um 30.000, bað hann þingið um að
veita sér svigrúm þangað til í sept-
ember - þá skyldi lagt mat á árang-
urinn af auknum herstyrk.
Nú er kominn septembermánuður
og ólíklegt þykir að Bush fallist á
fækkun í herliðinu, nema þá rétt til
málamynda, fyrr en næsta vor.
Næsta víst er að demókratar á
Bandaríkjaþingi munu engan veg-
inn fallast á að fresta ákvörðun um
framhaldið. Þeir hafa beðið þolin-
móðir, en nú í september á að taka
stöðuna. Repúblikanar virðast einn-
ig vera að missa þolinmæðina marg-
ir hverjir og óvíst um að þeir styðji
óbreytt framhald stríðsins.
Í næstu viku mæta þeir David
Petraeus, yfirmaður bandaríska
herliðsins í Írak, og Ryan Crocker,
sendiherra Bandaríkjanna í Írak,
fyrir þingið og gera grein fyrir
stöðu mála í Írak. Á þriðjudaginn
birti eftirlitsskrifstofa Bandaríkja-
þings skýrslu um árangurinn sem
náðst hefur á sviði stjórnmála og
öryggismála í Írak. Samkvæmt
skýrslunni tókst einungis að ná fram
þremur af þeim átján markmiðum,
sem stjórnin hafði sett sér. Á fjórum
sviðum náðist árangur að hluta til,
en á ellefu sviðum af átján hefur
enginn árangur náðst.
Styttist í átök við demókrata
Mikill og vaxandi áhugi er í Bandaríkjun-
um á nýtingu jarðvarma til raforkuframleiðslu og
húsahitunar. Þetta kom fram á ráðstefnu Glitnis um
orkumál sem haldin var í New York í gær. Forseti
Ísland, herra Ólafur Ragnar Grímsson, hélt erindi á
ráðstefnunni þar sem hann lýsti hlutverki Íslands og
íslenskra fyrirtækja í baráttu gegn hlýnun jarðar.
Til marks um mikinn áhuga í Bandaríkjunum hafa
tvær sendinefndir Bandaríkjaþings sótt Ísland heim.
Ólafur Ragnar segir það ekki hafa farið hátt en
merkilegt sé að slík samskipti vaxi þegar dragi úr
samvinnu þjóðanna í varnarmálum. Þá mun Ólafur
Ragnar mæta í „hearing“ eða í áheyrnartíma
Bandaríkjaþings til skrafs og ráðagerða um
möguleika jarðhitaorku. „Mér er ekki kunnugt um
að þjóðarleiðtogi hafi áður verið beðinn um að taka
þátt í áheyrnarfundi hjá Bandaríkjaþingi,“ segir
Ólafur.
Ráðstefna Glitnis er haldin í tengslum við opnun
skrifstofu bankans í New York í gær. Í Bandaríkjun-
um mun bankinn einbeita sér að syllum í starfsemi
bankans á sviði endurnýjanlegrar orku og í mat-
vælaframleiðslu. Í skýrslu sem kom út samhliða ráð-
stefnunni kemur fram að hægt sé að sexfalda
raforkuframleiðslu með jarðhita í Bandaríkjunum
frá því sem nú er.
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
„Að sjálfsögðu munum
við skoða þetta vel,“ segir Páll
Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins.
Páll var spurður um samein-
ingu bókaútgáfu Eddu, stærsta
bókaforlags Íslands, og JPV-
útgáfu, þess næststærsta.
„Það liggur í hlutarins eðli að
þeim ber að tilkynna þetta til
okkar og skila inn upplýsingum,
sem við förum svo yfir. Við
höfum þá mánuð til að ákveða
hvort við rannsökum málið
frekar,“ segir hann.
Páll vill annars ekki leggja mat
á samrunann að svo stöddu.
Samruni for-
laga skoðaður
Mikil leit var gerð
í gær að bandaríska milljóna-
mæringnum og ævintýramannin-
um Steve Fossett, sem ekkert
hafði spurst til frá því á mánu-
dag þegar hann flaug af stað einn
á lítilli flugvél
að kanna
eyðilegt
landsvæði í
Nevada.
„Þetta er
mjög stór
heystakkur,
og flugvél er
mjög lítil nál,
svo mikið er
víst,“ sagði
Cynthia
Ryan,
yfirmaður í
bandarísku flugbjörgunarsveit-
unum. Hún var þó bjartsýn, eins
og aðrir sem þekkja Fossett, á að
hann fyndist.
„Hann er mjög klókur,
útsjónarsamur og ákveðinn
flugmaður. Ég tel allar líkur á að
hann finnist.“
Leitin að Foss-
ett afar torsótt
Fjölmörg hjól voru
eyðilögð á lóð Melaskóla í
fyrradag þegar skemmdarvargur
klippti á hand- og fótbremsur
hjólanna. Í tölvupósti sem sendur
var í gær til foreldra barna í
skólanum kom fram að fjölmargir
foreldrar hefðu haft samband við
skólann og sagt að einungis hefði
munað hársbreidd að börn þeirra
hefðu lent í alvarlegu slysi vegna
skemmdarverkanna.
Ekki er vitað hver var að verki
eða hvort sá hinn sami sé nemandi
í Melaskóla eða Hagaskóla. Björn
Pétursson, skólastjóri Melaskóla,
vildi ekki tjá sig um málið þegar
eftir því var leitað í gær.
Klippt á hand-
og fótbremsur
Finnski kvikmyndaleik-
stjórinn Aki Kaurismäki mun
koma til landsins í tengslum við
Alþjóðlegu
kvikmyndahá-
tíðina í
Reykjavík í
haust.
Kaurismäki
mun veita
viðtöku
verðlaunum
fyrir framúr-
skarandi
listræna kvikmyndasýn.
Kaurismäki er einn af virtari
leikstjórum Norðurlanda, en mynd
hans „Maður án fortíðar“ frá
árinu 2002 vann Grand Prix-
verðlaunin á kvikmyndahátíðinni í
Cannes á útgáfuárinu. Ári síðar
var hún tilnefnd til Óskarsverð-
launa, en Kaurismäki neitaði að
mæta á hátíðina í mótmælaskyni
við Íraksstríðið.
Kaurismäki á
kvikmyndahátíð