Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 72
 FH-ingurinn Ásgeir Gunnar Ásgeirsson er leikmaður 15. umferðar Landsbankadeildar karla að mati Fréttablaðsins. Þetta er í annað skiptið sem hann hlýtur þá nafnbót en í bæði skiptin er það frammistaða hans gegn KR sem dregur það besta fram í honum. „Ég svo sem veit ekki hvað veld- ur þessu,“ sagði hann í léttum dúr. „Okkur FH-ingum hefur gengið vel með KR og þetta er kannski hluti af því.“ Ásgeir Gunnar skoraði þrennu í 5-1 sigri FH-inga á KR á Kapla- krikavelli. Það er í fyrsta skiptið í efstu deild í sumar sem leikmaður nær þrennunni. Annars hefur Ásgeir Gunnar farið mikinn undanfarinn mánuð í bæði deild og bikar. Hann hefur skorað sex mörk í jafn mörgum leikjum sem þykir auðvitað sér- staklega gott fyrir miðvallarleik- mann. Hann skoraði til að mynda í bæði fjórðungs- og undanúrslitum bikarsins. Í fyrrnefnda leiknum tryggði hann sínum mönnum sigur á lokamínútunum í spennandi leik gegn Val. Til að kóróna góða frammistöðu var hann svo valinn í landsliðshóp- inn sem mætir Spáni og Norður- Írlandi í undankeppni EM. Eyjólf- ur Sverrisson landsliðsþjálfari sagði við það tilefni að hann væri mjög hrifinn af Ásgeiri Gunnari og að ekki margir leikmenn eins og hann væru til á Íslandi. „Þetta hefur auðvitað verið mjög skemmtilegt í sumar enda er meiri spenna í deildinni nú en und- anfarin ár,“ sagði Ásgeir Gunnar. „Fallbaráttan er líka mjög spenn- andi og mikið í húfi fyrir mörg lið.“ FH á tvo erfiða leiki fyrir hönd- um í deildinni í næstu umferðum, fyrst gegn Breiðabliki á útivelli og svo gegn Val á heimavelli. Sigur í þessum leikjum færir liðinu Íslandsmeistaratitilinn í fjórða skiptið í röð. „Þetta eru einfaldlega úrslita- leikir fyrir okkur. Breiðablik eiga harma að hefna síðan í bikarleikn- um og svo kemur hreinn úrslita- leikur móti Val. Við erum þó róleg- ir og hugsum um einn leik í einu.“ Ásgeir Gunnar Ásgeirsson skoraði fyrstu þrennu sumarsins í 5-1 sigurleik FH á KR. Hann er leikmaður 15. umferðar Landsbankadeildar karla að mati Frétta- blaðsins en hann hefur farinn mikinn undanfarin mánuð í bæði deild og bikar. Stórsigrar Vals og FH gefa tóninn Aga- og úrskurðarnefnd KSÍ ákvað á fundi sínum í gær að ávíta Guðjón Þórðarson og Magn- ús Gylfason fyrir ummæli sín og sekta knattspyrnudeildir ÍA og Víkings um 10.000 kr. vegna þeirra. Þá ákvað nefndin einnig að veita Leifi Garðarssyni og Ólafi Helga Kristjánssyni áminningu vegna ummæla þeirra. Allt þetta gerðist efrir leiki liðanna í 14. umferð Landsbankadeildar karla. Fréttablaðið heyrði viðbrögð þriggja þjálfara við þessu en ekki náðist í Guðjón Þórðarson í gær. „Ég hef viðurkennt og beðist afsökunar á því að hafa haldið því fram að dómarinn hafi ætlað að gefa okkur þetta rauða spjald. Ég átti því von á áminningu og það kemur ekki á óvart að þeir hafi sektað því þeir hafa gert það áður. Mér finnst það samt ótrúlega skrýtið að mín gagnrýni skuli vera talin sams konar og sú hjá Guðjóni Þórðarsyni sem gaf í skyn að tveir af þremur dómurum leiksins á móti KR hafi verið KR-ingar,“ sagði Magnús Gylfason, þjálfari Víkinga. „Ég tek þessu bara og það má vel vera að maður hafi aðeins farið yfir strikið í einum ummælum eftir leikinn,“ sagði Leifur Garð- arsson, þjálfari Fylkis, og bætti við: „Þessi úrskurður fær mann til þess að velta vöngum yfir því hvort þjálfarar eigi ekki að fá að lágmarki tíu mínútur eftir leik áður en þeir tjá sig. Þá væri til að mynda hægt að halda sameigin- legan blaðamannafund.“ „Ég sætti mig við niðurstöðuna og geri ekkert í henni en mér finnst orðalagið í athugasemdinni um að ég hafi skaðað ímynd íslenskrar knattspyrnu vera virki- lega stór orð. Eftir stendur að ekki hefur verið tekið á kjarna málsins en ég vona að það verði gert því dómararnir eru gríðarlega stór þáttur af leiknum. Það vilja það allir og dómararnir örugglega líka að þeim verði líka veitt aðhald. Þjálfararnir eru kannski ekki þeir sem eiga að veita þeim aðhald en spjótin beinast að þeim strax eftir leikina. Ef við megum ekki benda á það sem okkur finnst fara miður þá vonast ég til þess að tekið verði á kjarna málsins í framtíðinni,“ sagði Ólafur Kristjánsson, þjálf- ari Breiðabliks. Guðjón og Magnús fengu báðir sektir Færeyski knattspyrnu- maðurinn Símun Samuelsen gekk ekki til liðs við norska 1. deildar- liðið Sogndal eins og greint var frá á dögunum. Félagaskipta- glugganum var lokað 31. ágúst en á síðustu stundu var hætt við að Símun færi til Sogndal. Þess í stað var hann lánaður frá Keflavík til Notodden sem einnig leikur í norsku 1. deildinni. Lánssamingur Símuns gildir til áramóta. Skipti um félag á elleftu stundu HK/Víkingur og Aftur- elding unnu sér í gær sæti í Landsbankadeild kvenna með því að bera sigurorð af andstæðing- um sínum í undanúrslitum úrslitakeppni 1. deildarinnar. HK/Víkingur vann 5-1 sigur á Hetti og samanlagt 9-4. Völsung- ur, sem vann góðan 3-2 sigur á Aftureldingu í Mosfellsbæ í fyrri leik liðanna, varð að játa sig sigrað í gær á Húsavík, 3-0. Mosfellingar unnu samanlagt 5-3. Tvö lið komast upp í efstu deild kvenna en aðeins eitt fellur úr deildinni. Það er vegna þess að liðunum í deildinni verður fjölgað úr níu í tíu næsta tímabil. HK/Víkingur og Afturelding upp Litháen tryggði sér sigur í sínum riðli með 84-80 sigri á Þýskalandi í Evrópukeppni landsliða í gær en bæði liðin voru ósigruð fyrir leikinn. Sarunas Jasikevicius fór fyrir sínum mönnum í Litháen en hann var með 15 stig og 10 stoðsend- ingar. Dirk Nowitzki var með 28 stig fyrir Þýskaland og er stigahæsti leikmaður riðlakeppn- innar með 29 stig að meðaltali í leik. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur því úrslitin í honum fylgja liðunum inn í milliriðilinn. 28 stig frá Dirk dugðu ekki Íslandsmeistarar Vals munu á morgun og á laugardag mæta Viking Malt frá Litháen í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Báðir leikirnir fara fram í Vodafone-höllinni en leiktíma síðari leiksins hefur verið breytt. Honum var flýtt um klukkutíma og hefst klukkan 17.30. Leiktíma breytt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.