Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 42
 6. SEPTEMBER 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið norðurland Á Húsavík blasa við nokkur aldargömul hús sem á sínum tíma var bjargað frá niðurrifi og hafa nú verið gerð upp af hvalaskoðunarfyrirtækinu Norðursigl- ingu. „Þetta er náttúrlega ein sorgarsaga hvern- ig farið var með gamalt húsnæði hér á Ís- landi,“ rifjar Hörður Sigurbjarnarson upp, framkvæmdastjóri hvalaskoðunar- fyrirtækisins Norðursiglingar. „Á Húsa- vík líkt og víða á Íslandi rifu menn gömul hús á báðar hendur. Drógu tennurnar úr miðbæjum svo þeir litu út eins og tann- lausar kerlingar. Það er ekki lengra síðan en 1980 að ekki þótti fínt að eiga gömul hús á Íslandi.“ Hörður segir að eftir það hafi til allrar hamingju átt sér stað töluverð viðhorfs- breyting með þeim afleiðingum að tekið var að vernda gömul hús og gera upp. „Fyrir tæpum áratug, sagði Húsavíkur- bær hingað og ekki lengra. Þá var ákveð- ið að bjarga gömlu húsunum og tók bærinn þátt í að flytja þau.“ Norðursigling, fyrirtæki Harðar, keypti þá Bjarnabúð, sem Bjarni Benediktsson, kaupmaður á Húsavík, byggði fyrir einni öld, þar sem álitið var að þarna væru menningarminjar í hættu. Þá höfðu veru- legar endurbætur verið gerðar á húsinu af Jóni Ármanni Árnasyni. „Við lukum starfi Jóns,“ segir Hörður. „Núna eru í húsinu þrjár íbúðir, tvær stúd- íóíbúðir og ein stærri, teknar í notkun árið 2006. Sonur minn og sambýliskona hans keyptu þær, búa í einni og eru með hinar í útleigu.“ Innvolsi hússins hefur þar af leiðandi verið breytt töluvert frá því sem áður var enda hýsti það upphaflega verslun eins og heitið gefur til kynna. Bjarnabúð var þó ekki eina húsnæð- ið sem Hörður bjargaði þar sem Norður- sigling fékk leyfi hjá bænum til að taka húsið Skuld sem til stóð að rífa í byrjun 2006. Eigendur Norðursiglingar sáu mögu- leikana sem í því leyndust og eftir nokkr- ar endurbætur var þar opnað kaffihúsið Skuld, sem nýtur töluverðra vinsælda. Þá er óupptalið húsið Hallandi, sem Norðusigling keypti árið 1997. Það var byggt árið 1907 og þykir vera með glæsi- legri húsum á Húsavík eftir gagngerar endurbætur. Hörður segir að í dag njóti Húsvíkingar og gestir góðs af þessari fyrirhyggju þar sem húsin, ásamt Húsavíkurkirkju, myndi hlið inn í bæinn og skipti máli fyrir bæjar- myndina. roald@frettabladid.is Menningarminjum bjargað á Húsavík Hérna sést Bjarnabúð að utan sem hefur gegnt margvíslegu hlutverki í gegnum tíðina. Norðursigling hefur staðið í ströngu við að gera upp gamalt húsnæði á Húsavík. Hörður segir það kostnaðarsamt en á móti komi að hlutirnir endist þá betur. MYND/HILDUR HARÐARDÓTTIR Norðursigling bjargaði húsinu Skuld frá niðurrifi og fann því nýtt hlutverk. Nú er þar rekið vinsælt kaffihús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.