Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 11
Bæjaryfirvöld í Kópavogi senda á
næstunni bréf til hestamanna, sem hafa selt hesthús
sín í Glaðheimum í Kópavogi. Í bréfinu verður kynnt
fyrirkomulag varðandi afnot af hesthúsunum í vetur.
Hestamennirnir geta óskað eftir því að nota húsin og
verður gerður sérstakur leigusamningur við hvern og
einn.
Bjarnleifur Bjarnleifsson, formaður hestamannafé-
lagsins Gusts, segir að nýja fyrirkomulagið feli í sér
að menn séu áfram í sömu hesthúsum og áður. Engin
breyting verði á því. Ekki verði um neina leigu til
bæjaryfirvalda að ræða heldur verður í leigusamn-
ingnum aðeins kveðið á um þau hefðbundnu gjöld sem
hestamenn hafa borgað hingað til, til dæmis fasteigna-
gjöld.
„Núna er bara verið að staðfesta að menn borgi
þessi gjöld og tryggja mönnum hesthús næsta vetur
meðan við erum að byggja á Kjóavöllum.
Við úthlutum lóðum þar á næstu vikum og svo
hefjast framkvæmdir vonandi í haust. Þetta tekur allt
tíma en meiningin er að þessu verði lokið um áramót-
in 2008-2009 og að allir verði fluttir þá.“
Bandaríski
öldungadeildarþingmaðurinn
Larry Craig segist hugsanlega
ætla að hætta við afsögn sína.
Lögmenn hans segja fjölmörg
fordæmi fyrir
því í 220 ára
sögu þingsins
að minni háttar
afbrot leiði ekki
til afsagnar.
Félagar hans
í Repúblikana-
flokknum
kröfðust þess
að hann segði af
sér þing-
mennsku eftir
að hann hafði dregið til baka
játningu um að hafa falast eftir
kynmökum við óeinkennisklædd-
an lögreglumann á flugvelli.
Craig segist þó „ekkert rangt“
hafa gert og neitar því jafnframt
að vera samkynhneigður. Hann
hefur á ferli sínum barist gegn
auknum réttindum samkyn-
hneigðra.
Hættir kannski
við að hætta
Borgarstarfsmenn í
Mumbai á Indlandi hafa fengið
skýr fyrirmæli um að hætta að
hrækja innandyra í vinnunni.
Ljósmyndir af þeim sem brjóta
gegn þessu banni verða hengdar
upp á vegg ásamt nafni og
starfsheiti viðkomandi. Einnig
þurfa þeir að greiða sekt.
Herferðin beinist einkum að
starfsmönnum borgarskrifstofu
sem hefur umsjón með hreinlæt-
ismálum í borginni og gatnakerf-
inu. Í nóvember á síðan að hefjast
allsherjar hreinlætisherferð í
Mumbai, sem mun vera ein
óþrifalegasta borg á Indlandi.
Verða að hætta
að hrækja inni
MS drykkjarvörur í fjallgönguna
MS mjólkurdrykkirnir eru prótein- og kalkríkir og stútfullir
af næringarefnum. Veldu þér ískaldan mjólkurdrykk í
handhægum umbúðum í næstu verslun.
SUMIR ERU TRYGGÐIR, ÁN ÞESS AÐ VITA
NÁKVÆMLEGA FYRIR HVERJU. VERTU VISS