Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 4
 Þrír menn voru handteknir í Þýskalandi í gær. Þeir eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk á tveimur stöðum í Þýskalandi; bandaríska herflugvellinum við Ramstein og á alþjóðaflugvellin- um í Frankfurt. Monika Harms saksóknari segir að mennirnir hafi gengist undir þjálfun í Pakistan. Einnig hafi þeir útvegað sér um 700 kíló af vetnis- peroxíði sem nota átti í sprengju- gerð. „Þetta hefði getað gert þeim kleift að útbúa sprengjur með meiri sprengikraft en var í sprengjuárásunum á London og Madrid,“ segir Jörg Zierke, yfir- maður þýsku sakamálalögregl- unnar. Tveir hinna handteknu eru Þjóð- verjar, 22 og 28 ára gamlir, sem snerust til íslamstrúar. Sá þriðji er 29 ára gamall Tyrki. Lögreglan veitti þeim fyrst athygli þegar þeir sáust fylgjast með banda- rískri herstöð í Hanau í Þýska- landi í lok síðasta árs. Allir eru þeir sagðir hafa hlotið þjálfun í Pakistan á vegum sam- taka sem nefnast Bandalag hei- lags stríðs íslams, sem sögð eru samtök súnnímúslima með rætur í Úsbekistan. Tveir mannanna voru hand- teknir í sumarhúsi í Þýskalandi í gær, en sá þriðji komst undan út um baðherbergisglugga. Honum tókst þó ekki að komast lengra en 300 metra, þar sem lögreglan hafði girt svæðið af. Daginn áður hafði leyniþjónusta dönsku lögreglunnar handtekið átta manns í Kaupmannahöfn, sem einnig höfðu sprengiefni í fórum sínum og eru grunaðir um að hafa haft hryðjuverk í bígerð. Lögregl- an fullyrti að mennirnir hefðu haft bein tengsl við Al Kaída, samtökin sem Osama bin Laden hefur verið í forystu fyrir. Þá hófust í Danmörku í gær réttarhöld yfir fjórum mönnum sem handteknir af voru sams konar ástæðum í Óðinsvéum fyrir ári. Hvorki Þýskaland né Danmörk hafa til þessa orðið fyrir árásum íslamskra hryðjuverkamanna. Þýskaland hefur hins vegar verið með herlið í Afganistan og Danir hafa verið með herlið bæði í Írak og Afganistan, og þar með beinast spjót herskárra múslima nánast sjálfkrafa að Þýskalandi og Dan- mörku. Skopmyndirnar af Múhameð spámanni, sem birtust í danska dagblaðinu Jyllandsposten fyrir tveimur árum, eiga einnig sinn þátt í að Danmörk er ennþá hugs- anlegt skotmark hryðjuverka- manna. „Þetta er ekkert búið. Íslamskir öfgamenn tala enn um þetta,“ segir Evan Kohlberg, bandarískur sérfræðingur sem fylgst hefur með starfsemi hryðjuverkamanna víða um heim. Höfðu útvegað sér öflug sprengiefni Þrír menn voru handteknir í Þýskalandi í gær, daginn eftir að danska lögregl- an handtók átta menn í Kaupmannahöfn. Mennirnir eru grunaðir um að hafa haft hryðjuverk í bígerð. Þeir höfðu útvegað sér 700 kíló af sprengiefni. Almenningur sem leggur leið sína í miðborg Reykjavíkur að næturlagi um komandi helgi ætti að taka eftir breytingu til hins betra, segir Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins. Hann segir að fleiri en lögregla verði þó að koma að til að bæta ástandið, og að því sé unnið. „Við boðum aukna sýnilega löggæslu, menn munu þá sjá meira af lögreglumönnum við störf, og finna þá væntanlega til meira öryggis,“ segir Stefán. Eins og fram hefur komið í Fréttablaðinu munu sérsveitar- menn frá Ríkislögreglustjóra aðstoða við löggæslu í miðborginni næstu helgar. „Við munum láta verkin tala á þessu sviði eins og öðrum,“ segir Stefán. „Ég held að það sé ekki tímabært að tala um hvernig við ætlum nákvæmlega að útfæra þetta, en við erum að vinna að skipulagn- ingu löggæslu og auknum sýnileika í miðborginni.“ Stefán segir að haldið verði áfram að stöðva fólk fyrir brot á lögreglusamþykkt. Í sumar hafi lögfræð- ingar gengið vaktir um helgar til að mögulegt hafi verið að ljúka minni háttar brotum með sekt á staðnum, sem hafi gefið góða raun, og nokkur slík mál komi upp um hverja helgi. Lögreglan mun láta verkin tala 39.900 kr. Fer›askrifstofa í eigu Iceland Express www.expressferdir.is 21.–25. september Beint flug til Nice Verð á mann aðeins Nánar á www.expressferdir.is eða í síma 5 900 100 NICE, CANNES OG MONACO EINSTAKTTÆKIFÆRI! Að minnsta kosti níu manns týndu lífi og ellefu manns er saknað eftir að fellibyl- urinn Felix gekk yfir Miskito- strandhéraðið í Níkaragva, en yfirvöld í Níkaragva, Hondúras og Gvatemala voru við því búin að hann ylli mun meira tjóni. Á sama tíma skall hitabeltis- stormurinn Henríetta á vestur- strönd Mexíkós, en þá hafði hann sótt í sig veðrið og taldist lægsta stigs fellibylur. Minnst sjö manns eru talin hafa týnt lífi af völdum Henríettu á leið hennar eftir Kyrrahafsströndinni og yfir Baja California-skaga. Felix banaði minnst níu Rúmlega vikulöng hitabylgja varð 25 manns að bana í suðurhluta Kaliforníuríkis í Bandaríkjunum. Hitinn náði hæst 43 gráðum á eyðimerkursvæðum í ríkinu og lækkaði hann einungis um nokkrar gráður að nóttu til. Tugir þúsunda heimila voru án rafmagns vegna álags á rafkerf- inu sökum aukinnar notkunar loft- ræstikerfa. Talið er að fimmtán hafi látist vegna hitans í Los Ang- eles og aðrir tíu á öðrum svæðum. Hitabylgja varð 25 að aldurtila „Lyf eru ólík annarri vöru að því leytinu til að kaupandi og greiðandi eru ekki þeir sömu. Þar gilda því ekki þessi sígildu markaðslögmál,“ segir Rúna Hauksdóttir Hvannberg heilsuhag- fræðingur, umbeðin að skýra hvað felist í sérsviði hennar, heilsuhag- fræði. Rúna hefur verið skipuð formaður lyfjagreiðslu- nefndar af heilbrigðisráðherra. Lyfjagreiðslunefnd ákvarðar meðal annars hámarksverð lyfja. Hún segir að ef nefna skuli einhverjar væntanlegar áherslur hennar í nefndinni verði þær í þá áttina að skerpa á þessu sérsviði lyfja- og heilsuhagfræð- innar. Lyf eru ólík annarri vöru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.