Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 63
3 4 5 6 7 8 9
Annað kvöld hefjast á BBC 1
sýningar á nýrri þáttaröð þeirra
Dawn French og Jennifer
Saunders sem báðar eru þekktar
fyrir sjónvarpsverk sín. Í upphafi
störfuðu þær sem skemmtikraft-
ar í klúbbum en veldi þeirra óx
hratt, bæði með leik í hinu þekkta
gamanþáttaliði Fimm og síðan í
þáttum undir eigin nafni. French
lék síðan aðalhlutverk í kunnum
þáttum um prest í smáþorpinu
Dibley, meðan Saunders setti
saman margar raðir um tísku-
kvendin tvö í þættinum Absolu-
tely Fabulous sem framleiddur
var af BBC á árunum 1992 til
2005.
Nýja þáttaröðin verður sú
síðasta sem þær munu gera, en
jafnframt er í vændum síðasta
ferð þeirra um Bretlandseyjar
þar sem þær munu koma fram á
mörgum stöðum og verður slegist
um miðana, því þær hafa á
tveimur áratugum skapað sér
einstaka stöðu í bresku þjóðlífi og
ná vinsældir þeirra langt út fyrir
bresku eyjarnar.
French hefur boðað að hún
hyggist setjast í helgan stein og
segist sannfærð um að lífdagar
hennar styttist, en hún hefur frá
unga aldri átt við offituvandamál
að stríða. -
Síðasta serían
Sigga Björg Sigurðardóttir mynd-
listarkona opnar einkasýningu í
New York í dag í Galerie Adler
sem er á 27. stræti vestur í Chel-
sea-hverfinu. Sýningu sína kallar
Sigga „Paradox Parade“ en hún
samanstendur af teikningum á
pappír, teiknimynd og veggjamál-
verkum.
Sigga Björg er búsett í Glasgow
og hefur starfsstöð sína þar þótt
hún sýni víða. Hún útskrifaðist frá
The Glasgow School of Art 2004
og hefur síðan haslað sér völl í
sýningum víðsvegar um heim.
Í kynningu Galeri Adler segir:
„Okkur langar að kynna ykkur
einhverjar þær undarlegustu
verur sem þú hefur rekist á.“
Verkin sýna furðuverur af ýmsu
tagi sem koma fram í ímyndun
listamannsins, sumar minna á
barnateikningar en allar eiga þær
sameiginlegt að vekja með áhorf-
andanum bros í kátleika sínum og
kúnstugheitum. Sýningin stendur
til loka október.
Sigga sýnir í Chelsea
Í ár eru 150 ár liðin frá fæðingu
Jóns Sveinssonar, Nonna, þessa
merka rithöfundar og jesúíta-
prests, en hann fæddist 16. nóv-
ember árið 1857. Af því tilefni
verður opnuð sýning honum og
ferli hans helguð í Þjóðarbók-
hlöðunni á laugardag. Kalla
aðstandendur sýninguna „Pater
Jón Sveinsson – en kallaðu mig
Nonna“. Sýningin um Nonna lýsir
merkilegu lífshlaupi hans í máli
og myndum. Konur í Zontaklúbbi
Akureyrar, sem reka Nonnahús á
Akureyri, eiga veg og vanda að
gerð sýningarinnar. Hún er sett
upp í samvinnu við Þjóðdeild
Landsbókasafns Íslands –
Háskólabókasafns og stendur til
6. október. Sýningin verður einn-
ig sett upp á Amtsbókasafninu á
Akureyri og í Köln í Þýskalandi
síðar á árinu. -
Sýning um Nonna