Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 31
Síðustu misseri hafa karlar tekið
upp á því að ganga með handtösk-
ur, enda sífellt fleira sem þarf að
hafa við hendina í lífi nútíma-
mannsins. Í vetur verður það
ómissandi að eiga stóra leður-
tösku til daglegra nota og hönnuð-
ir bjóða nú leðurtöskur á mismun-
andi verði eins og gengur eftir
merkjum, allt frá H&M til Dior,
Celio eða YSL, allir veðja á stórar
töskur.
Áður fyrr var það staðreynd að
karlmenn fóru aðeins í verslanir
þegar þá vantaði eitthvað. Nú er
öldin önnur og karlmenn eru orðn-
ir eins og hver önnur kona, labba
milli búða og skoða, jafnvel mörg-
um sinnum áður en þeir láta
slag standa. Skilin milli hins
karlmannlega og kvenlega
hafa aldrei verið eins óskýr.
Þetta má sjá hjá Prada
sem kemur skemmtilega
á óvart með herra
stretch-buxunum, líkum
þeim sem allar konur á
Íslandi voru í fyrir
einum 25 árum, með
teygju undir hælunum.
Prada hefur öðru hvoru
boðið upp á tvílit föt
þar sem liturinn eins
og færist yfir í annan
frá efri hluta til neðri
hluta, til dæmis í peysu.
Þessi stíll er kallaður „tie-
dye“ og í þetta skipið eru
það lakkskór, jafnt fyrir
konur og karla, sem voru
sýndir á tískusýningu
Prada í Mílanó. Ekki virðast inn-
kaupastjórar tískuhúsanna hafa
haft mikla trú á þessum lakkskóm
því þeir eru ekki fáanlegir hér í
París. En blessunarlega fyrir
tískusjúka er hægt að treysta á
Zöru. Hönnuðirnir þar hafa gert
nánast fullkomna eftirlíkingu af
tie-dye skónum hjá Prada sem
kosta 99 evrur (4-500 evrur hjá
Prada). Í vetur er það áfram topp-
urinn að vera í lakkskóm. Meira
en nokkru sinni er málið að blanda
saman fatnaði frá fínum tískuhús-
um og ódýrari merkjum. Kris Van
Assche, nýr hönnuður Dior
Homme, sýndi fyrir sitt eigið
merki skyrtur með öðru skyrt-
ulafinu ofan í buxunum og hinu
utan yfir og nú eru allir
tískupinnar með eitt skyrtulaf
ofan í buxunum.
Fyrir nokkru lýsti frægur
tískufræðingur í Banda-
ríkjunum því yfir að metr-
ómaðurinn væri allur. Ég
held að þessi yfirlýsing
hafi verið heldur snemma
á ferðinni. Þær breytingar
sem hafa orðið á karl-
ímyndinni síðustu ár eru
komnar til að vera. Herra-
snyrtivörur seljast sem
aldrei fyrr, undirfatafram-
boð hefur aldrei verið meira og
fleiri og fleiri bjóða herrum
upp á alls kyns fegurðarmeð-
ferðir. Snyrtipinninn er mann-
gerð sem er komin til að vera
hvort sem okkur líkar betur eða
verr.
Köttur að
næturlagi
Cat Deluxe at Night er nýr
ilmur frá fyrirsætunni
Naomi Campbell.
Grunntónar Cat Deluxe
at Night eru blanda
mjúkra baðmullar-
blóma, dýrmætra
viða og rafs.
Hjartatónar ilms-
ins eru alpafjóla og
bóndarós. Topptón-
arnir eru síðan sólber,
sæt pera og ávaxta-
blanda.
Cat Deluxe-línan inni-
heldur einnig sturtugel,
húðmjólk og lyktareyði.
Nýlega kom á markaðinn
skemmtilegur ilmur frá Yves
Saint Laurent.
Ilmurinn ber
heitið Young
Sexy Lovely
og er léttur
og kvenlegur
í fallegum
umbúðum.
Markhópurinn
sem framleiðend-
ur höfðu í huga er ungar konur
með tískuvit og -áhuga. Því
skemmir það ekki fyrir að lykt-
in stendur sannarlega undir
nafni. Ungleg, kynþokkafull og
yndisleg.
Ung, sexí
og alúðleg
Veglegur kaupauki fylgir öllum keyptum
vörum frá Levante út september!
Fæst í apótekum og smásöluverslunum um land allt
*Gildir á meðan birgðir endast
Vekja eftirtekt!
®
Margar gerðir af búningasilfri.
Þetta er ódýrasta mynstrið. Allt sem þarf á upphlutinn,
settið frá 90.530, kr.
Allar upplýsingar um hefð og
gerðir búninga eru veittar á staðnum.
Gullkistan - Frakkastíg 10 - Sími: 551-3160.
Sérverslun með
kvensilfur