Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 60
Á föstudag var opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur sýning á verkum ljósmynd- arans Dante: Hin umkomulausu börn Afganistans. Myndirnar á sýningunni sýna börn í Afganistan í hvunndeginum sem einkennist af óróleika stríðsrekstr- ar og óstöðugleika á svæðinu eins og alkunna er. Börnin þar hafa mátt þola meira harðræði fyrir níu ára aldur en flestir þola á heilli mannsævi. „Þrátt fyrir þetta skynjar maður hjá þeim ein- læga von og styrk til að takast á við framtíðina,“ segir listamaðurinn Dante sem dvaldi í landinu um skeið en hann býr og starfar í Reykjavík. Dante stundaði nám í Gerrit Rietveld Acadamy í Amsterdam í Hollandi og Ins- titute of American Indian Arts í Santa Fe í Nýju-Mexíkó og hefur unnið verk sín að stórum hluta út frá arfleifð sinni sem indíáni. „ Það að vera indíáni hefur stöðug áhrif á listsköpun mína og víkkar út skilning minn á viðfangsefnum. Ég myndi þó ekki fullyrða að sú staðreynd að ég sé indíáni hafi áhrif á alla mína vinnu, en ég veit þó að í sumum verkum mínum hef ég tilhneigingu til þess að bera hugmyndafræði indíána saman við hinn nýja heim. Sum verk eru einföld þar sem ég leitast við að ná fram þögulli fegurð en önnur geta komið áhorfandan- um í uppnám og jafnvel fengið hann til þess að fyllast frumstæðri tilfinningu.“ Sýningin er sett upp í Skotinu og verð- ur uppi til 24. október, en fram undan er á Ljósmyndasafninu stórsýning á verk- um ljósmyndara Dagblaðsins Vísis sem verður opnuð 15. september og kemur hún í stað sýningar þeirra Páls Stefáns- sonar, Rax og Olaf Otto Becker AUTOM- ATOS sem lýkur nú um helgina. Börn í Afganistan Ískalt íslenskt vatn - hvenær sem er GE kæliskáparnir eru öflugir, endingargóðir og glæsilega innréttaðir Amerískir GE kæliskápar á tilboðsverði AFSLÁTTUR 25% Auglýsingasími – Mest lesið Ath. 19.27 spilar Sinfónían í beinni á Rás 1 Ríkisútvarpsins Vorblót eftir Stravinskí. Það er best að skrúfa tækin í botn, halla sér aftur og láta þessa kviðu hvolfast yfir sig með öllum þeim krafti sem í tónlistinni býr. Á sínum tíma varð allt brjálað út af þessari tónlist en nú til dags gengur mönnum betur að skilja í henni máttinn. Sinfóníuhljómsveit Íslands er komin til starfa eftir sum- arhlé og heldur sína fyrstu hljómleika í kvöld. Á dagskrá eru verk eftir Atla Heimi Sveinsson, Stravinskí og Mozart. Einleikari kvöldsins er Ari Þór Vilhjálmsson en hljómsveitarstjóri er Rumon Gamba. Það styttist í dvalarlok hljómsveit- arinnar á Melunum þar sem hún hefur nú spilað í hátt í fimmtíu ár. Engan gat grunað þegar hljómsveit- in fór úr fyrra húsnæði, Þjóðleikhúsi og síðar Austurbæjarbíói, að svo langt liði þar til hún fengi sitt eigið hús. Besta band á Íslandi er hún oft kölluð af poppurunum landsins sem oftast fá meiri umfjöllun en okkar stóra hljómsveit. Fram undan er stórt ár hjá Sinfón- íunni. Nýr styrktaraðili er kominn henni til hjálpar: FL Group. Rumon Gamba verður áfram aðalhljóm- sveitarstjóri hennar og dagskrá tón- leika kvöldsins gefur okkur fyrir- heit. Á þessum upphafstónleikum hljómsveitarinnar í vetur mun ungur fiðluleikari, Ari Þór Vilhjálmsson, leika fiðlukonsert Mozarts nr. 3, sem tónskáldið samdi aðeins nítján ára gamall. Þá verður einnig frumflutt verk Atla Heimis Sveinssonar, Alla Turca og svo framvegis..., þar sem Atli hyllir meistarann frá Salzburg eins og honum einum er lagið og endurgreiðir og launar fyrir sig með nýju verki en Atli er fyrstur íslenskra tónskálda til að vera á launum hjá hljómsveitinni til lengri tíma. Hið magnþrungna Vorblót Stravinskís rekur síðan endahnútinn á tónleikana og munu tónar Igors skekja húsið sem oft áður. Á laugardag er síðan haldinn hinn árlegi Sinfóníudagur. Þá gefst öllum áhugasömum tækifæri til að kynn- ast hljómsveitinni. Dagskráin hefst kl. 13 með því að einstakir hljóð- færahópar hljómsveitarinnar kynna sig og hljóðfæri sín fyrir gestum í anddyri og hliðarsölum bíósins. Trúðurinn Barbara mun veita tón- listarmönnunum dygga aðstoð við þetta starf. Klukkan 14.30 verða síðan stuttir tónleikar með allri hljómsveitinni í aðalsalnum, og þá verður líka dregið í happdrætti sem gestir Sinfóníudagsins geta tekið þátt í. Starfsfólk Sinfóníunnar mun jafnframt veita áhugasömum ráð- gjöf og aðstoð við að velja sér áskriftarleiðir en þær eru nokkrar sem fyrr í hinu fjölbreytta og stóra prógrammi hljómsveitarinnar og úr vöndu að ráða. Vefur hljómsveitarinnar gefur nasasjón af dagskránni, sem er raun- ar svo efnismikil að erfitt er að gera grein fyrir henni í stuttri grein. Fram undan eru tónleikar með ein- leikurum á borð við Ágúst Ólafsson, Víking Heiðar og Sigurð Flosason. Bara þennan mánuð eru á dagskrá verk eftir íslensk tónskáld á borð við Jón Þórarinsson (Völuspá í næstu viku) og Jón Leifs (forleikurinn að Galdra-Lofti). Kammersveit hljómsveitarinnar verður með útibú í Þjóðmenningar- húsi. Margir erlendir gestir munu kæta áhorfendur og hljómsveitina með innleggi sínu í þann galdur sem vikulega er framinn úti á Melum. Nægir þar að nefna Petri Sakari, Evu Ollikainen, Esa Hakkila, Erling Blöndal og Vladimir Ashkenazy. Vefslóð hljómsveitarinnar er www. sinfonia.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.