Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 06.09.2007, Blaðsíða 10
„Í dag eigum við betri greiningar- tæki en það er ekkert sem bendir til þess að tíðni geðhvarfa hjá börnum sé að aukast eða að um faraldur sé að ræða hér á landi,“ segir Bertrand Lauth, barna- og unglingageðlæknir. Tilfelli barna með geðhvörf (Bipolar Disorder) í Bandaríkjunum hafa fjörutíufaldast á árunum 1994 til 2003. Þetta kemur fram í grein eftir Benedict Carey hjá dagblaðinu New York Times. Þar kemur einnig fram að sérfræðingar telja nær öruggt að tilfellum hafi enn fjölgað síðan árið 2003 og til dagsins í dag. Bertrand segir ástæður þessarar aukningar geta verið þær að fólk sé meira meðvitað í dag um erfiðleika barna, leiti meira til sérfræðinga og viti meira um réttindi barna. „Ég held að það sé þó eðlilegt að spyrja sig þeirrar spurningar hvort um ofgreiningu sé að ræða, án þess að ég geti fullyrt nánar um niðurstöðu þessarar rannsóknar. Ég veit að í Bandaríkjunum þarf ákveðnar sjúkdómsgreiningar til að fólk geti fengið endurgreidda læknisþjónustu frá einkatryggingafélögum og það gæti spilað inn í þessa miklu aukningu þar í landi.“ Geðhvörf eru öfgafullar geðsveiflur þar sem manneskja getur sveiflast á milli þunglyndis og örlyndis. Þangað til nýlega var talið að sjúkdómurinn kæmi aðeins fram á fullorðinsárum. Í greininni kemur fram að í gegnum tíðina hafi misfarist að greina sjúkdóminn í börnum og nú fái þau börn meðferð við sjúkdómnum sem á þurfi að halda. Aðrir eru á þeirri skoðun að geðhvörf séu ofgreindur sjúkdómur hjá börnum og í dag sé hvaða árásar- gjarna og hvatvísa barn greint ranglega með geðhvörf. Í kjölfar greiningar sé barnið sett á mjög öflug geðlyf sem sjaldnast henti börnum og hliðar- verkanir séu alvarlegar, eins og þyngdaraukning. Bertrand segir málið tvíþætt. Annars vegar horfi læknar hugsanlega of oft til ákveðinna sjúkdóma og hins vegar hafi geðsjúkdómar í börnum verið vangreindir hér áður fyrr. „Ég er ekki á móti því að greina sjúkdóma betur núna, en vissulega þarf að gæta þess að sjúkdómsvæða ekki of mikið. Einnig þarf að greina sjúkdóma án þrýstings frá einka- tryggingafélögum eins og í sumum tilfellum í Bandaríkjunum,“ segir Bertrand. Tíðni geðsjúkdóms hjá börnum margfaldast Tilfelli barna með geðhvörf í Bandaríkjunum hafa fjörutíufaldast á árunum 1994 til 2003 samkvæmt nýlegri rannsókn. Ekkert bendir til að um faraldur sé að ræða á Íslandi, segir Bertrand Lauth barna- og unglingageðlæknir. Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins, sagðist í gær sannfærður um að fulltrúar allra 27 aðildarríkja sambandsins myndu leggja loka- blessun sína yfir nýjustu upp- færsluna á stofnsáttmála þess á leiðtogafundi í október. Að sínu mati ættu þingkosningar, sem búist er við að efnt verði til í Pól- landi í haust, ekki að verða til þess að fresta afgreiðslu nýja ESB- sáttmálans. Utanríkisráðherrar aðildarríkj- anna koma saman í Portúgal á morgun, föstudag, til að ræða nýja sáttmálann. Portúgalar gegna for- mennskunni í sambandinu síðari helming ársins. Á málþingi á vegum Evrópu- réttarstofnunar Háskólans í Reykjavík í gær sagði Pierre Mat- hijsen, prófessor í Brussel og fyrrverandi skrifstofustjóri hjá framkvæmdastjórn ESB, að ráða- menn sambandsins vonuðust til að nýi sáttmálinn verði fullgiltur í öllum aðildarríkjunum án þess að hann verði nokkurs staðar borinn undir þjóðaratkvæði. Fyrir því væru góð rök, enda kvæði nýi sáttmálinn á um mun umfangs- minni uppfærslu á eldri sáttmál- unum en til stóð að gera með stjórnarskrársáttmálanum svo- nefnda, sem meirihluti kjósenda í Frakklandi og Hollandi felldu í þjóðaratkvæðagreiðslum fyrir tveimur árum. Barroso treystir á samstöðu Glerfínar gluggafilmur – aukin vellíðan á vinnustað R V 62 09 3M glu ggafilm ur fyrir skóla, s júkrahú s, skrifs tofur, verslani r og að ra vinnu staði Fagme nn frá RV sjá um uppset ningu A T A R N A – K M I / F ÍT Nóatúni 4 • Sími 520 3000 www.sminor.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.