Fréttablaðið - 06.09.2007, Qupperneq 12
„Blæjan er allt annað
en fatnaður eða venjulegur höfuð-
klútur. Rétt eins og spennitreyja og
líkpokar eru ekki föt, eða skírlífis-
belti voru ekki flíkur, eða Davíðs-
stjarnan sem fest var á gyðinga á
tímum helfararinnar var ekki hluti
fatnaðar,“ sagði Maryam Namazie,
stofnandi Samtaka fyrrverandi
múslima í Bretlandi, í erindi sem
flutt var á vegum Alþjóðastofnun-
ar, Siðmenntar og Skeptíkusar í
gær.
Maryam er fædd í Teheran í
Íran en fluttist þaðan með fjöl-
skyldu sinni árið 1980 eftir að
klerkastjórn náði völdum í Íran og
stofnaði íslamskt lýðveldi undir
forystu Ayatollah Khomeini. Hún
hefur unnið að fjölda mannúðar-
mála víðs vegar um heiminn.
Á fundinum kom Maryam inn á
málefni sem fáir hafa hróflað við
hér á landi. „Þið óttist að vera köll-
uð rasistar eða vera sökuð um
skort á umburðarlyndi ef þið setj-
ið út á íslam. En sumu á ekki að
sýna umburðarlyndi. Sumt er ein-
faldlega ekki hægt að þola,“ segir
Maryam. Hún telur Vesturlönd og
vestrænar kvennahreyfingar vera
að bregðast konum með því að
berjast ekki gegn þeirri kúgun
gagnvart konum og börnum sem
íslam viðhaldi. Sagði hún ómögu-
legt að skilja hvers vegna Vestur-
lönd brygðust ekki við því að grýta
mætti konur til dauða samkvæmt
íslömskum lögum, taka samkyn-
hneigða af lífi og meina litlum
stúlkum út úr brennandi húsum
væru þær ekki með blæju. Vísaði
hún til fjölmargra annarra frétta-
mála sem hún furðaði sig á að
hefðu ekki vakið meiri reiði á
Vesturlöndum en raun bæri vitni.
Í ljósi þeirra dæma sagði hún ólíð-
andi að íslamistar fengju að
blekkja fólk á Vesturlöndum með
því að tala um réttinn til að bera
blæju og láta þetta tákn kúgunar
eins og hún kallar það líta fallega
út fyrir Vesturlandabúum.
Maryam benti einnig á að Vest-
urlönd hefðu átt þátt í því að íslam
hefði náð enn meiri fótfestu í
sumum löndum en áður hefði
verið og nefndi sem dæmi Afgan-
istan og Írak.
Maryam sagði Íslendinga, sem
og aðrar þjóðir, eiga að gæta sín á
því að hér mynduðust ekki svo-
kölluð gettó án þess að gagnkvæm
aðlögun yrði. Ástæðan væri sú að í
slíkum hópum næðu ofstækisfull-
ir leiðtogar ávallt undirtökum.
Í lokin áminnti hún fólk um að
flestir múslimar væru gott fólk
rétt eins og gengur og gerist. Það
væruu lögin sem sett væru í krafti
íslams sem væru slæm. „Það er í
gangi helför gegn konum og henni
eigum við að berjast gegn.“
Vill enga kurteisi
í garð íslamista
„Það á ekki að sýna íslamistum kurteisi.“ Þetta segir Maryam Namazie stofn-
andi Samtaka fyrrverandi múslima í Bretlandi. Hún varar við uppgangi íslam
og umburðarlyndi gagnvart lögum sem stangast á við almenn mannréttindi.
Þið óttist að vera kölluð
rasistar eða vera sökuð
um óumburðarlyndi ef þið setjið
út á íslam … Sumt er einfaldlega
ekki hægt að þola
Stefnt er að því að
Iðnskólinn í Reykjavík og Fjöl-
tækniskóli Íslands sameinist í
nýjan skóla; Tækniskólann, um
áramót.
Vinna við úttekt á fjárhag og
starfsemi skólanna, sem gerð er á
vegum menntamálaráðuneytis-
ins, er langt komin. Ákvörðun um
sameiningu er á hendi mennta-
málaráðherra enda báðir skólarn-
ir í ríkiseigu.
Grunnur að sameiningu hefur
þegar verið lagður; nafni rekstr-
arfélags Fjöltækniskólans hefur
verið breytt úr Menntafélaginu í
Rekstrarfélag Tækniskólans en
ráðgert er að félagið starfræki
sameinaðan skóla. Er það í eigu
Samtaka iðnaðarins, Iðnaðar-
mannafélagsins í Reykjavík,
Landssambands útvegsmanna,
Samorku og Sambands kaup-
skipaútgerða.
Jón B. Stefánsson, skólameist-
ari Fjöltækniskólans, segir að í
ljósi fyrirhugaðrar sameiningar
eigi skólarnir þegar í nokkru sam-
starfi; nemendur Fjöltækniskól-
ans sæki til dæmis nokkur fög í
Iðnskólann.
Hann segir að margt ávinnist
við sameiningu, samlegð verði á
ýmsum sviðum starfseminnar.
Fjöltækniskólinn varð til við sam-
rekstur Vélskóla Íslands og Stýri-
mannaskólans í Reykjavík árið 2003
en rætur Iðnskólans í Reykjavík má
rekja aftur til 1973.
Ferðaskrifstofa
Auglýsingasími
– Mest lesið