Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 53

Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 53
Nú þegar komið hefur fram að enginn hefur nokkurn tíma viljað gefa húsunum að Laugavegi 4 og 6 grið, friða þau eða færa til, því sem næst, upprunalegs horfs, er rétt að drepa létt á dyr og minna á hlutverk rýnihóps sem hefur verið starfandi að því að gefa álit sitt á teikningum af nýjum bygg- ingum við Laugaveginn. Á fund- um rýnihópsins hefur ítrekað komið fram að menn telja sitt hlut- verk vera að sjá til þess að það sem verður byggt á Laugavegi, sé áreiðanlega betra en það sem þarf að víkja, verður rifið. Það er alls ekki alltaf sjálfgefið að þetta nýja sé betra en það gamla. Rýnihópurinn hefur frá upphafi gert mjög viðamiklar athuga- semdir við þær teikningar sem kynntar hafa verið fyrir honum, af Laugavegi 4-6. Frá upphafi hafa fulltrúar hópsins verið nokkuð einróma um að það sem rís á þess- um viðkvæma stað gömlu verslun- argötunnar, þurfi að vera þannig úr garði gert að sátt ríki um það. Mismunandi áherslur hafa svo verið um hin ýmsu atriði. Undir- rituð hefur til dæmis ævinlega talað gegn öllum byggingum sem skerða sólarljós á gangstéttinni norðanverðri. Það er gert af þeirri grundvallarskoðun (og af fenginni reynslu) að sólarljósið sé eitt helsta aðdráttaraflið fyrir þá sem vilja ganga um miðbæinn. Aðrir í rýnihópnum hafa lagt ríka áherslu á að nýja húsið sýni umhverfi sínu tilhlýði- lega hóg- værð, beri það ekki ofur- liði. Um það er auðvelt að sammælast. Nú vill svo óheppilega til að sú fundar- gerð frá rýni- hópi um Laugaveg 4- 6, sem send var inn í borgarkerfið og var t.a.m. skipulagsráði til hlið- sjónar þegar tekin var ákvörðun um að láta niðurrifsheimildina óáreitta, var frá fundi þar sem 2 fulltrúar mættu ekki og sá þriðji þurfti að sitja hjá. Fulltrúi kaupmanna í rýnihópn- um dvaldist erlendis, en fulltrúa íbúa barst aldrei fundarboð og var því fjarri mikilvægri samkundu. Þriðji fulltrúinn hafði reyndar gert tillögu að lausn fyrir bygg- ingar á þessum stað, hverrar aðalsmerki var virðing fyrir liðn- um tíma og reisn gamalla húsa um leið og notagildi húsanna var gert nægjanlegt fyrir nútímalegar kröfur. Sá sat hjá. Svo götótt fundargerð var sem sagt það plagg, sem borgarfulltrú- ar höfðu til hliðsjónar, sumir sjálf- sagt undrandi á viðsnúningi rýni- hópsins, sem fram að þessu hafði spyrnt mjög við fótum, og verið trúr því markmiði að láta ekki Laugaveginn verða verri eftir en áður. Láta ekki ósmekklega ásýnd fermetragræðginnar tróna yfir svæði sem við eigum öll saman og taka af okkur sólarbletti, sem eru líka sameign okkar allra. Þetta dæmi sem hér er rakið, sýnir enn og aftur að starf rýni- hópsins gefur falskt öryggi og getur hvorki verndað þau hús sem nú standa við Laugaveg, né tryggt borgarbúum framúrskarandi nýbyggingar. Auðvitað liggur rót vandans í því deiliskipulagi, sem samþykkir slíkt fermetramagn í gömlu og grónu umhverfi. En það er líka umhugsunarefni fyrir þá sem „eiga“ byggingarréttinn á lóðum við Laugaveg, hvort það, að hugsa um hagsmuni heildarinnar sé ekki affarasælast fyrir alla: Okkur gangandi vegfarendur, fagur- kerana, þá sem vilja laða fólk á Laugaveginn, fólk framtíðarinnar og þá ekki síst eigendur bygginga- réttarins. Það er hægt að byggja af smekkvísi og virðingu fyrir sameiginlegri sögu og sameigin- legu rými, þannig að allir græði. En það er líka hægt að byggja af smekkleysi og græðgi, svo að jafn- vel þeim ofbjóði sem seinþreyttir eru til vandræða. Höfundur er íbúi í miðborginni og á sæti í rýnihópi um nýbyggingar á Laugavegi. Falskt öryggi á Laugaveginum

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.