Fréttablaðið - 06.09.2007, Qupperneq 70
FÓR BEINT
Á TOPPINN
Í USA
Magnaðasta spennumynd sumarsins
MATT DAMON ER JASON BOURNE
MBL
www.SAMbio.is 575 8900
ÞRJÁR VIKUR Á TOPPNUM Í USA
Ertu að fara að gifta þig?
Þá viltu alls ekki lenda í honum!!!
Drepfyndin gamanmynd með hinum eina sanna
Robin Williams og ungstirninu Mandy Moore.
Langmest sótta myndin á Íslandi í dag
KEFLAVÍK
AKUREYRI
ÁLFABAKKA
ASTRÓPÍÁ kl.6:30-8:30-10:30 L
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 7
BOURNE ULTIMATUM kl. 5:40 - 8 - 10:20 14
KRINGLUNNI
LICENSE TO WED kl. 8 7
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 6 L
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 L
DISTURBIA kl. 5:30 - 8 - 10:20 14
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 - 10:10 7
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 8 - 10:10 L
RATATOUILLE M/- ENSKU TAL kl. 8:10 - 10:20 L
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
TRANSFORMERS kl. 5:30 - 8 - 10:40 10
S. 482 3007SELFOSSI
ASTRÓPÍÁ kl. 8 - 10 L
RUSH HOUR 3 kl. 8 - 10 12
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10:30 12
ASTRÓPÍA kl. 8 - 10 L
VIP
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SURFS UP ENSKT TAL kl. 4 - 6 - 8 - 10
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 - 6
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.30
BOURNE ULTIMATUM LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 4 - 8 - 10
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 4 - 6
RUSH HOUR 3 kl. 6 - 8 - 10.10
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
KL. 5.30 Away From Her / Die Falscher
KL. 8 Away From Her / Sicko / Cocaine Cowb.
KL. 10.30 Sicko / Shortbus / The Bridge
EVENING kl.5.30 - 8 - 10.30
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl.6
SÝNINGARTÍMAR GRÆNA LJÓSSINS
14
12
14
12
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6
DISTURBIA kl. 8 - 10.10
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 - 10.10
RUSH HOUR 3 kl. 6 síðasta sýning
14
14
12
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10.10
BOURNE ULTIMATUM kl. 5.30 - 8 - 10.30
RUSH HOUR 3 kl. 6 - 8 - 10
BECOMING JANE kl. 8 -10.30
Yfir 25.000 manns!
LANG MEST SÓTTA MYNDIN
Á ÍSLANDI
SICKO
með íslensku
m texta AWAY
FROM HER
MIÐASALA OG DAGSKRÁ Á MIDI.IS
Dramatísk ástarsaga í anda
Notebook frá höfundi The
Hours með úrvali stórleikara
Hennar mesta leyndarmál var
hennar mesta náðargáfa.
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
- bara lúxus
Sími: 553 2075
DISTURBIA kl. 8 og 10.20 14
BRETTIN UPP íslenskt tal kl. 6 L
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 5.40, 8 og 10.20 14
RATATOUILLE kl. 5.30 L
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Er til eitthvað eitt í þessum heimi
sem getur fengið mann til þess að
gleðjast jafn auðveldlega og oft og
tónlist? Auðvitað myndi maður
gleðjast brjálæðislega ef lottóvinn-
ingur myndi falla manni í skaut, ef
Palestínumenn og Ísraelar myndu
sættast og/eða ef maður myndi
heimta gamlan og góðan vin úr
helja. Líkurnar á þessu eru hins
vegar, því miður, hverfandi og þá
er gott að eiga traustan vin eins og
tónlistin er. Og ef einhver sveit í
heiminum í dag kann að gleðja jafn
auðveldlega (að minnsta kosti hið
litla hjarta undirritaðs) þá hlýtur
sú sveit að vera hin ástralska
Architecture in Helsinki.
Fyrri plötur sveitarinnar voru
báðar frábærar og á þeirri þriðju
er gleðinni haldið áfram. Platan er
sú fyrsta frá sveitinni sem gefin er
út af stóru plötufyrirtæki (Poly-
vinyl) og flestir virðast ekki á eitt
sáttir um ágæti plötunnar. Fyrir
mitt leyti svíkur hún mig, sem
aðdáanda Architecture in Helsinki,
ekki um eitt prósent. Lögin eiga
samt til að flakka of mikið um og
söngur Camerons Bird er oft full
taugaveiklaður. Eftir nokkra tamn-
ingahlustun rennur platan samt í
gegn eins og bros unglings á nýj-
ustu Will Ferrell myndinni.
Heart It Races og Hold Music
flokkast auðveldlega með bestu
lögum ársins og fleiri lög fá einnig
háa einkunn en önnur ekki, eins og
gengur og gerist. Places Like This
er einfaldlega þannig plata að
maður smellir henni í tækið og
leyfir henni að njóta sín. Platan er
reyndar nokkuð frábrugðin fyrir-
rennurum sínum en samt getur
engin önnur sveit en AiH verið hér
á ferð. Ég get samt vel skilið að
hljómsveitin stuði einhverja og
sérstaklega þessi plata, því vissu-
lega er hún stuðandi. Ég get samt
ekki annað séð en að hér sé blúss-
andi jákvætt stuð á ferð.
Heilbrigði og hjartans kæti
„Það er allt of langt síðan
gefin var út almennileg
barnaplata með broddi og
ádeilu,“ segir leikarinn
og söngvarinn Guðmund-
ur Ingi Þorvaldsson, sem
hefur samið barnarokk-
söngleikinn Sagan af Eyfa
(bönnuð börnum).
Plata með nítján lögum eftir Guð-
mund Inga kemur út í október.
„Þessi plata er tileinkuð börnum
sem voru send í sveit heim til mín
í gamla daga á bæina í kring.
Þarna voru tveir til þrír sveita-
bæir sem tóku við krökkum sem
áttu bágt. Þeir sögðu manni oft
algjörlega ótrúlegar sögur af lífi
sínu. Maður var svo mikill krakki
að maður sagði bara: „Viltu ekki
samt koma í fótbolta?“ Löngu
seinna áttaði maður sig á því
hvernig lífi þau hefðu lifað en
flest þeirra hafa orðið að góðum
og gildum þjóðfélagsþegnum,“
segir Guðmundur Ingi, sem ólst
upp í Reykholtsdal í Borgarfirði.
Platan fjallar um ævi Eyfa frá
fæðingu þar til hann verður
sautján ára og fær bílprófið.
„Þetta fjallar um strák sem á góða
frumbernsku en fullorðna fólkið í
kringum hann er með allt niður
um sig. Þegar hann er átta ára
greinist hann með hvítblæði og
þá kemur í ljós að pabbi hans er í
raun ekki pabbi hans. Pabbinn
drepur sig og mamman fer á kaf í
rugl. Hann eignast misgáfulega
skyndipabba og síðan er hann tek-
inn frá mömmu sinni og sendur í
sveit til afa síns. Þar lifir hann líf-
inu og verður að manni,“ segir
Guðmundur og bætir við: „Platan
óður til lífsgleði og stórkostlegrar
aðlögunarhæfni barna.“
Platan er fyrsta verkefni vetrar-
ins hjá listfélaginu Fimbulvetri.
Hátt í eitt hundrað manns koma
að verkefninu, þar á meðal Selma
Björnsdóttir, Þórunn Lárus-
dóttir, Árni Beinteinn Árnason,
Ólafur Darri Ólafsson, Guðrún
Ásmundsdóttir og Þórdís Elva
Þorvaldsdóttir. Einnig hafa þeir
Axel Árnason, Árni Hjörvar
Árnason og Þórður Gunnar Þor-
valdsson verið honum til halds og
trausts.
Guðmundur er afar ánægður með
þennan myndarlega hóp. „Þetta
er stórkostlegt og það eru for-
réttindi að fá að vera listamaður
að vinna að sínum eigin hugðar-
efnum.“ Hann útilokar ekki að
söngleikur byggður á plötunni
verði settur á fjalirnar en það eigi
þó allt eftir að koma í ljós.
„Við byrjuðum á þessu því okkur
langaði til að halda stór og
skemmtileg þemapartí með tónlist
sem fær fólk til að dansa. Næntís-
tónlistin er fyndin og skemmtileg
og fötin líka þannig að okkur
fannst þetta tilvalið þema,“ segir
Curver sem heldur, í samstarfi við
hina bresku Kiki-Ow, tvö slík partí
um helgina hvort í sinum lands-
hlutanum. Eitt á Nasa í Reykjavík
og annað á Sjallanum á Akureyri.
Gestir hafa tekið næntís-þemað
alla leið og margir mæta í neon-
göllum með flautur um hálsinn og
neonljós í hárinu.
Curver segir að það hafi alveg
vantað svona þemapartí í íslenskt
skemmtanalíf og fólk sé þyrst í
þetta. „Það hafa margir sagt eftir
kvöldin að þeir hafi ekki dansað
svona mikið í mörg ár og það er
fyrst og fremst það sem við vilj-
um að fólk geri.“
Hægt er að nálgast miða á bæði
kvöldin á midi.is. Gleðin verður í
Sjallanum á föstudag og á Nasa á
laugardag.
Næntís-þemað slær í gegn