Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 74
Fram undan eru tveir
heimaleikir hjá íslenska karla-
landsliðinu í undankeppni EM í
Sviss og Austurríki 2008. Það eru
tvö heitustu lið riðilsins, Spánverj-
ar og Norður-Írar, sem mæta á
Laugardalsvöllinn. Spánverjar
hafa unnið fjóra leiki í röð og
Norður-Írar hafa náð í 16 af 18
mögulegum stigum síðan þeir
steinlágu fyrir íslenska liðinu í
fyrsta leiknum í Belfast.
Íslenska landsliðið hefur spilað
þrjá heimaleiki í riðlinum til
þessa. Tveir fyrstu leikirnir töp-
uðust síðasta haust, sá fyrri 0-2
fyrir Dönum og sá síðari 1-2 fyrir
Svíum. Eini heimaleikur þessa árs
í keppninni var gegn Liechten-
stein í júníbyrjun en hann endaði
með 1-1 jafntefli.
Ef marka má fyrri úrslit ættu
menn að vera bjartsýnir fyrir
þessa tvo leiki. Íslenska liðið vann
2-0, gerði markalaust jafntefli og
hélt hreinu í síðustu tveimur heim-
sóknum Spánverjum í Laugardal-
inn. Liðið hefur enn fremur unnið
báða heimaleiki sína gegn Norður-
Írum 1-0. Ingi Björn Albertsson
skoraði sigurmarkið 1977 og Þórð-
ur Guðjónsson lék það síðan eftir
23 árum síðar. Áhyggjuefnið er
kannski hrakfarir íslenska liðsins
í undanförnum heimaleikjum.
Það er samt af sem áður var að
Laugardalsvöllurinn væri helsta
vígi íslenska landsliðsins því gengi
liðsins hefur farið hríðversnandi í
síðustu undankeppni og ef það fer
ekki að breytast í næstu leikjum
stefnir í versta heimavallarárang-
ur íslenska landsliðsins í 28 ár.
Íslenska landsliðið hefur unnið
tuttugu heimaleiki í síðustu fjór-
tán undankeppnum fyrir annað-
hvort heimsmeistaramót eða Evr-
ópumeistaramót og að minnsta
kosti einn heimaleik í öllum und-
ankeppnum síðan í undankeppni
fyrir Evrópumótið í Belgíu sem
fram fór árið 1980.
Heimavallarvígið á Laugardals-
velli var sterkast í undankeppnum
EM 2000 og HM 2002. Íslenska
landsliðið vann þá 6 af 10 leikjum
og tapaði aðeins tveimur, 0-1 fyrir
Úkraínu í lokaleik sínum í undan-
keppni EM 2000 og svo 1-2 fyrir
Dönum í fyrsta leik sínum í und-
ankeppni HM 2002. Íslenska liðið
var með yfir 50 prósenta árangur í
undankeppni EM 2004 en í síðustu
undankeppni náði liðið hins vegar
aðeins að vinna einn leik af fimm
og markatalan var sú versta síðan
í undankeppni EM í Vestur-Þýska-
landi 1988.
Nú er að sjá hvort íslenska
landsliðið bæti sinn leik og takist
að byggja aftur upp vígi sitt á
þjóðarleikvanginum í Laugardal.
Er heimavallarvígið hrunið?
Evrópukeppnin í körfubolta:
Þýski handboltinn
RENAULT PREMIUM LANDER
Renault Premium Lander 450.26 6x4.
B&L Atvinnubílar - Sími 575 1200
Þessi glæsilegi trukkur
verður til sýningar og
reynsluaksturs á Trukka-
deginum hjá Aðalflutning-
um, Skútuvogi 8,
laugardaginn 8. september
1.deild karla
Valbjarnarvelli kl 18.00 fimmtudag 06.sept.
Tekst Þrótturum að tryggja sér sæti
í Landsbankadeildinn 2008 ?
Von er á gesti númer 4000
á heimaleik Þróttar í deildinni,
sá fær vegleg verðlaun í hálfleik.
Lifi Þróttur!
ÞRÓTTUR - ÞÓR
Íslenska landsliðið
tryggði sér þriðja sætið í sínum
riðli í b-deild Evrópukeppninnar
með öruggum 14 stiga sigri á Aust-
urríki, 91-77, í lokaleik sínum í
gærkvöldi þar sem Jakob Örn Sig-
urðarson átti stórleik. Íslenska
landsliðið lenti mest 12 stigum
undir, 9-21, í fyrsta leikhlutanum
en var búið að jafna fyrir hálfleik
og setti síðan á svið skotsýningu í
seinni hálfleik, þar sem tíu íslensk-
ar þriggja stiga körfur litu dags-
ins ljós.
Það tók íslensku strákana nokk-
urn tíma að hitta því liðið klikkaði
á 11 af 13 þriggja stiga skotum
sínum í fyrsta leikhlutanum. Það
átti eftir að breytast því íslenska
liðið setti niður 15 þriggja stiga
skot það sem eftir lifði leiksins.
Íslenska liðið byrjaði ekki vel,
hittnin var engin í upphafi og
Austurríkismenn voru duglegir að
sækja hratt í bakið á íslensku
strákunum og skora ódýr stig úr
hraðaupphlaupum. Austurríki
komst í 3-11, 6-17 og 9-21 og hafði
tíu stiga forskot, 13-23, eftir fyrsta
leikhlutann. Baráttuhundarnir
Fannar Ólafsson og Helgi Már
Magnússon komu með mikinn
kraft inn af bekknum og kveiktu
neistann í íslenska liðinu en besti
maður liðsins var þó án nokkurs
vafa Jakob Örn Sigurðarson sem
átti stórkostlegan leik. Jakob hélt
uppi íslensku sókninni á meðan
aðrir leikmenn liðsins virtust vera
ískaldir og spilaði síðan félaga
sína uppi eftir að skotin þeirra
fóru að detta. Jakob endaði leikinn
með 21 stig, 10 stoðsendingar, 7
fráköst og engan tapaðan bolta en
hann hitti úr 7 af 12 skotum sínum
í leiknum.
„Það tók okkur smá tíma að
komast í gang. Ég er búinn að
segja það oft við strákana að það
er ekkert erfitt að spila gegn
svona vörn fyrstu tíu mínúturnar
en síðan fer þetta að þreyta þá og
taka frá þeim einbeitingu að vera
alltaf með mann í andlitinu út um
allan völl. Það gekk fullkomlega
upp og síðan hittu bara allir í
seinni hálfleik,“ sagði Sigurður
Ingimundarson, þjálfari íslenska
liðsins, sem stýrði liðinu til sigurs
í 8 af 9 leikjum ársins.
„Það var ofsalega skemmtileg
stemning hjá strákunum í sumar
og þeir ætluðu sér að spila vel.
Liðsheildin var frábær, stemning-
in í hópnum var einstök og menn
voru að leggja sig á fullu í þetta.
Það er frábær varnarvinna sem er
ástæðan fyrir því að við höfum
verið að vinna þessa leiki,“ sagði
Sigurður.
Það hefur verið frábært að
fylgjast með íslenska liðinu í
sumar, fyrst tryggði það sér gull á
Smáþjóðaleikunum í fyrsta sinn í
14 ár, þá vann það glæsilegan
sigur á geysisterku liði Georgíu
og kórónaði árið síðan með því að
vinna þrjá síðustu leiki sína og
tryggja sér þriðja sætið.
Íslenska körfuboltalandsliðið endaði frábært sumar með því að vinna öruggan 14 stiga sigur á Austurríki,
91-77, í gær. Íslensku strákarnir unnu þrjá síðustu leiki sína í riðlinum. Jakob Örn Sigurðarson átti stórleik.