Fréttablaðið - 06.09.2007, Qupperneq 75
Eiður Smári Guðjohnsen
tók í gær þátt í sinni fyrstu fót-
boltaæfingu af fullum krafti í tvo
mánuði er landsliðið æfði á ÍR-
vellinum. „Ég var óragur við að
gera allt á æfingunni og það er
mikilvægt,“ sagði Eiður eftir
æfinguna. „Tilfinningin er ágæt,
ég finn að vísu að ég er ekki 100%
klár en það var ekkert vandamál
að æfa.“
Hann segir það útilokað að hann
verði í byrjunarliðinu gegn Spáni
á laugardag en vonast til að spila
stærra hlutverk gegn Norður-
Írum á miðvikudag. Báðir leikirn-
ir verða á Laugardalsvellinum.
„Við þurfum bara að meta
ástandið eftir því sem nær dregur
að leiknum. Ég er tilbúinn að taka
á mig það hlutverk sem mér verð-
ur gefið.“
Fáir bjuggust við því að Eiður
yrði með landsliðinu vegna
hnémeiðsla sinna. Hann hefur misst
af öllu undirbúningstímabilinu með
félagsliði sínu, Barcelona.
Spurður af hverju hann ákvað
að koma til móts við landsliðið
þegar hann hefði getað einbeitt
sér að því að ná sér góðum heima
sagði Eiður ástæðuna einfalda.
„Mig langaði til að koma. Það er
alltaf gaman að hitta strákana og
spila með landsliðinu. Alltaf þegar
ég hef áður verið meiddur og
misst af leikjum hefur verið sett
spurningamerki við það hvort ég
sé virkilega meiddur. Nú sér fólk
að ég er tæpur en samt vil ég
koma,“ sagði hann. „Ég hef svo
gaman af þessu og ég vil að fólk
geri sér grein fyrir því. Ég sé fram
á að geta tekið eitthvað þátt í leikj-
unum og vildi því koma.“
Eiður segir það endanlega undir
landsliðsjálfaranum komið hvað
hann muni spila mikið. „Ég sagði
honum að ég gæti alla vega tekið
þátt í æfingunum.“
Spurður um hvaða væntingar
hann hafi til leikjanna tveggja
segir hann það varla raunhæft að
fara fram á sigur gegn Spáni.
„En ég yrði sáttur ef allir kæmu
út úr leiknum á jákvæðum nótum.
Ef allir gætu verið sammála um að
við hefðum lagt allt okkar í leikina
og ef við getum borið höfuðið hátt.
Landsliðið þarf að senda frá sér
jákvæða strauma og að þetta sé
allt á réttri leið hjá okkur.“
Langaði að koma og vera með landsliðinu
Real Madrid átti
möguleika á að gera samninga við
þá Cristiano Ronaldo, Lionel
Messi og Giovani dos Santos á
sínum tíma en peningar félagsins
fóru í að kaupa stórstjörnur í stað
þess að semja við framtíðarmenn.
Miguel Angel Portugal vann
fyrir Real Madrid á þessum tíma
og segist naga sig í handarbökin í
dag. „Það var einu sinni þannig
hjá „Los Galacticos“ að stóru
stjörnurnar gengu fyrir öllu. Ég
gat samið við Gio og Messi þegar
þeir voru fjórtán ára og okkur
bauðst einnig Ronaldo en það
voru bara engir peningar til,“
sagði hann í viðtali við útvarps-
stöðina Marca.
Missti af Messi,
Ronaldo og Gio
Króatísku leikmennirnir
hjá ÍA, þeir Dario Cingel og
Vjekoslav Svadumovic, hafa
samið við félagið til næstu
tveggja ára. Þeir komu hingað til
lands í vor og hafa sinnt lykilhlut-
verki í liði Skagamanna sem situr
í þriðja sæti Landsbankadeildar
karla.
Svadumovic hefur skorað sex
mörk fyrir ÍA í sumar og Cingel
verið með bestu varnarmönnum
deildarinnar. Hann hefur til að
mynda sex sinnum verið valinn í
lið umferðarinnar hjá Fréttablað-
inu.
Verða áfram
uppi á Skaga
Steven Gerrard, leikmað-
ur Liverpool og enska landsliðs-
ins, gat í gær tekið þátt í æfingu
landsliðsins þrátt fyrir að hann sé
tábrotinn. England mætir Ísrael í
gríðarlega mikilvægum leik í
undankeppni EM 2008 á laugar-
daginn. Englendingar verða
einfaldlega að vinna ætli þeir
ekki að missa af farmiðanum til
Austurríkis og Sviss.
„Ástand hans verður metið af
læknaliði enska landsliðsins og
ákvörðun um hvort hann verði
klár í leikinn á laugardag verður
tekin síðar í vikunni,“ sagði í
yfirlýsingu frá enska knatt-
spyrnusambandinu í gær.
Gerrard var
með á æfingu