Fréttablaðið - 06.09.2007, Side 78
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
„Auðvitað er smá hnútur í magan-
um fyrir messuna á sunnudaginn.
En ég vil fólki mjög vel þótt margt
af því sem ég hef gert hafi oft
stuðað fólk. Það að ég skuli vera
litinn hornauga er ekkert nýtt
fyrir mig og er minn kross að
bera,“ segir grínistinn Jón Gnarr,
sem þurfti að standa af sér mikið
moldviðri á þriðjudag þegar full-
trúar Þjóðkirkjunnar sögðu aug-
lýsingu hans fyrir Símann vera
smekklausa. Undir það tók Jakob
Rolland, kanslari kaþólska bisk-
upsembættisins á Íslandi, en Jón
er einmitt virkur meðlimur í kaþ-
ólska samfélaginu hér á landi.
En grínistinn er ekki af baki
dottinn og segist ekki þurfa að
biðjast afsökunar á auglýsingunni,
þvert á móti. „Mér fannst ummæli
séra Karls Sigurbjörnssonar bæði
leiðinleg og ómakleg og mér sárn-
aði þau. Sem kaþólikki skipar
kvöldmáltíðin stóran sess í mínu
lífi og ég á í sambandi við Guð.
Það að ég sé kristinn gefur mér í
rauninni leyfi til að túlka kvöld-
máltíðina á þennan hátt því þetta
er minn óður til þessa atburðar og
til Krists og hann er gerður af
kærleika,“ segir Jón en bætir því
við að hann hafi frekar kosið að
ræðaa þetta á þriðjudag á fræði-
legum grundvelli sökum starfs
síns en ekki trúarlegum. „Ég er
hins vegar reiðubúinn að mæta
hvaða guðfræðingi og presti sem
er því ég veit að ég hef hreina
samvisku.“
Jón segir að sumir virðist halda
að grín og auglýsingar séu ein-
hver lágkúra en svo sé einfaldlega
ekki. „Þetta er bara tjáning fólks
sem hefur leyfi til að tjá sig. Og
við megum ekki gleyma því að
húmorinn er demparinn í gegnum
lífið. Auglýsingin er ekki eitthvert
trúarklám heldur er hún gerð af
virðingu fyrir viðfangsefninu. Og
ég tel mig geta staðið fyrir mínu
máli vegna þess að ég gerði þetta
af heilum hug.“
Með í maganum fyrir messu
„Ég er búin að kenna fyrir
aðra í níu ár og fannst tími til
kominn að breyta til,“ segir
Sigrún Birna Blomsterberg,
sem opnaði nýverið dansstúd-
íó undir eigin nafni í húsa-
kynnum Boot Camp að Suður-
landsbraut 6b. „Um leið fæ ég
til mín nemendur sem vilja
koma og dansa hjá mér í stað
þess að lenda bara hjá mér af
tilviljun.“
Sigrún Birna ætlar að kenna
ein til að byrja með en fyrstu
námskeiðin hefjast hinn 10.
september. „Ég er að kenna
fjölbreytta stíla; street, funk
og það nýjasta sem er að ger-
ast í hip hop-heiminum. Hip
hop-hugtakið er alltaf að
breytast - New Wave, Quick-
Melt og R&B eru allt stílar í
stöðugri þróun, nokkurs konar
undirgreinar undir því sem
var einu sinni bara kallað hip
hop. Svo er ég með hópa fyrir
yngstu kynslóðina líka.“
Auk þess að opna nýjan
dansskóla er Sigrún aðaldans-
höfundur George Michael-
sýningar sem sett verður upp
á Broadway í tilefni af 25 ára
söngafmæli kappans. „Það
verða átta dansarar á sviðinu.
Þetta er því krefjandi en mjög
spennandi,“ segir hún og hlær
þegar hún er spurð að því
hvort fleiri tímar séu í sólar-
hringnum hjá henni en öðru
fólki. „Ég er einmitt farin að
velta því fyrir mér hvernig ég
geti púslað þessu öllu saman.
Maður verður bara dansandi
til miðnættis alla daga og fer
svo í heitt bað þess á milli.“
Dansar til mið-
nættis alla daga
Tónskáldið Veigar Margeirsson,
sem býr í Los Angeles, er eldheitur
aðdáandi knattspyrnuliðsins L.A.
Galaxy sem David Beckham leikur
með.
Hefur hann sótt fjölmarga leiki
með liðinu undanfarin ár og fagnar
að sjálfsögðu komu Beckhams.
„Eftir að Beckham var keyptur
seldu þeir dálítið mikið af mönnum
og endurskipulögðu leikmannahóp-
inn,“ segir Veigar. „Það er mikið
„hæp“ í kringum hann sem „cele-
brity“. Það var leiðinlegt að hann
skyldi koma meiddur en hann spil-
aði nokkra leiki og stóð sig mjög
vel. Ég sá hann skora fyrsta mark-
ið sitt þegar þeir unnu tvö núll.“
Heimavöllur L.A. Galaxy tekur
um þrjátíu þúsund manns og er
hann nálægt heimili Veigars. „Þetta
er mjög flottur fótboltavöllur.
Hann er ekki stór en öll sætin eru
góð,“ segir Veigar, sem sjálfur
spilaði fótbolta í Keflavík á
sínum yngri árum, auk þess
sem dóttir hans er dugleg við
tuðrusparkið.
Að sögn Veigars fór
miða- og minjagripasala
upp úr öllu valdi þegar
Beckham kom til liðsins.
Skiptar skoðanir eru samt
um fótbolta í landinu
þrátt fyrir komu enska
knattspyrnugoðsins.
„Það er oft fráhrindandi
fyrir Ameríkana að það er
ekki skorað mikið að með-
altali í fótbolta og það
sem fer sérstaklega í
taugarnar á þeim er
uppbótartíminn. Í
körfuboltanum og
ameríska fótboltan-
um er hægt að skora
á síðustu sekúndunni
en fólk fattar ekki að dóm-
arinn bæti bara við þegar hann
vill og flauti af þegar honum sýn-
ist. Það sem vinnur með fótboltan-
um er samt að þarna er ekki þessi
neikvæða steraímynd því fótbolti
byggist frekar á tækni og snerpu
en kröftum.“ Þegar Veigar er ekki
að skemmta sér á heimaleikjum
L.A. Galaxy er hann önnum kafinn
við tónsmíðar. Nýverið útsetti hann
verk fyrir Fílharmoníusveit Los
Angeles auk þess sem hann var í
Prag þar sem hann tók upp tónlist
fyrir sýnishorn úr bíómyndum. Á
meðal nýlegra verka hans á því
sviði er sýnishorn fyrir myndina A
Mighty Heart með Angelinu Jolie í
aðalhlutverki, sem verður frum-
sýnd hérlendis á næstunni. Einnig
hefur hann undanfarið samið tón-
list við auglýsingar Símans, þar á
meðal hina umdeildu auglýsingu
um Jesús og Júdas.
„Ég hef greinilega reynt að vera
í tískunni, sem á þessum tíma
var dálítið öfgakennd. Ég er
hrædd um að ég myndi vekja
mikla athygli ef ég færi að klæð-
ast þessu í dag.“