Fréttablaðið - 06.09.2007, Page 80
Ég var í heita pottinum með huggulegri konu um daginn.
Ég gat ekki haft augun af henni,
ekki vegna þess að hún var svo
hugguleg, heldur af því að á hök-
unni var hún með stóran og loð-
inn fæðingarblett. Ég skipaði
sjálfum mér í huganum að hætta
að stara, en það þýddi ekkert. Um
leið og færi gafst glápti ég á hök-
una jafn dáleiddur og kanína í
bílljósum.
fyrir pólitíska rétthugs-
un er aðdráttarafl hins óvenju-
lega – fríksins – enn sprelllifandi.
Fríkum fer þó ört fækkandi, þökk
sé læknavísindunum, og sérstök
fríksjó hafa verið aflögð. Jóhann
risi þyrfti að fá sér 9-5 vinnu ef
hann væri uppi í dag. Í staðinn er
komin fram glæný tegund fríka.
Það eru hinir geðveikislega ríku,
hvers líf, tekjur og umsvif eru
óskiljanleg almennum meðalræfl-
um sem eiga engin bréf – eða í
mesta lagi bréf í Decode sem þeir
hafa skíttapað á. Ég missi alveg
kúlið þegar ég er nálægt þessu
fólki, góni bara á það eins og
algjör sveitalubbi.
var skattakóngur og
skrilljóner á bretti við hliðina á
mér í ræktinni um daginn og ég
gat ekki hætt að gjóa augunum á
hann. Ég fylgdist með manngarm-
inum og hlustaði á hvert orð sem
hann lét út úr sér við einkaþjálf-
arann. Hann er miklu yngri en ég,
andskotinn hafiða! Ætli detti
fimm þúsund kallar úr vasanum á
honum? Er hann að græða jafn
mikið á þessum 10 mínútum á
brettinu og ég hef á mánuði?
Hvað er aftur yfirdráttarheimild-
in mín há? Svona hugsaði ég og
svitnaði extra mikið.
síðar var billjóner og
sambýliskona hans, líka alltof rík,
fyrir aftan mig á Hagkaupskassa.
Ég fór að hitna á hausnum og titra
í hnjánum þegar ég reyndi að
kíkja á þau og hvað þau væru að
kaupa – örugglega ostrur og
bleika klósettpappírinn með
hvolpinum, hugsaði ég. Þegar ég
kom heim sá ég að ég hafði gleymt
veskinu mínu við kassann og
þurfti að snúa skömmustulegur
við til að sækja það. Seinna fatt-
aði ég að þetta voru auðvitað und-
irmeðvituð mistök. Ég ætlaði
bara að sýna ríka fólkinu að ég
væri líka ógeðslega ríkur. Svo
ríkur að ég nota einnota veski.
Ný frík
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Ekkert vandamál
er okkur ofviða
Við metum tíma viðskiptavina okkar mikils og kappkostum að veita úrlausn
á jafnvel erfiðustu vandamálum innan sólarhrings. Þetta kunna viðskiptavinir
okkar að meta, enda eru þeir ánægðustu viðskiptavinir farsímafyrirtækja,
samkvæmt Íslensku ánægjuvoginni.
Hringdu í 1414 og vandamálið er úr sögunni
Leysum öll vandamál innan sólarhrings
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
2
2
8
6
8