Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 2
„Ungir sjálfstæðismenn telja tímabært að taka til alvar- legrar skoðunar kosti og galla þess fyrir íslenskt hagkerfi, almenning og athafnalíf, að halda úti eigin mynt.“ Svo segir í ályktun sem sam- þykkt var á þingi Sambands ungra sjálfstæðismanna á Seyðisfirði um helgina. Þórlindur Kjartansson, nýr for- maður SUS, segir gjaldmiðil vera tæki til að auðvelda fólki að eiga viðskipti sín á milli en ekki hluta af menningu. Íslenska hagkerfið hafi vaxið svo mikið að aðrir kraftar séu farnir að verka á það en áður og því hljóti að koma til endurskoð- unar hvort eðlilegt sé að halda úti eigin mynt. Hann segir SUS ætla að móta eigin hugmyndir í málinu og leggja til umræðunnar. Í ályktuninni segir að nauðsyn- legt sé að skoða fordómalaust hvort íslenska krónan sé að einhverju leyti orðin viðskiptahindrun enda sýni reynslan að veruleg óvissa og kostnaður fylgi því að eiga við- skipti í jafn sveiflukenndri mynt og raunin sé. Erlend fjárfesting í íslensku atvinnulífi sé minni en ella og mikill vaxtamunur auki kostnað fyrir fólk og fyrirtæki og geri íslensku krónuna berskjald- aða gagnvart spákaupmennsku. Þá er áhrifamáttur peningamála- stefnu Seðlabankans dreginn í efa enda geti stór hluti íslenskra fyrir- tækja fjármagnað rekstur sinn í annarri mynt en íslensku krón- unni. Þórlindur segir stofnanir Sjálf- stæðisflokksins ekki áður hafa stigið jafn stórt skref í átt að opin- skrárri umræðu um krónuna og býst við jákvæðum undirtektum í þingliði flokksins. „Ég held að allir geti verið sammála um það grund- vallarsjónarmið að peningar séu til að auðvelda mönnum að eiga við- skipti og ef í ljós kemur að íslenska krónan er orðin hindrun og að fyr- irtæki geti ekki stækkað get ég ekki ímyndað mér annað en að fyrir þessu sé hljómgrunnur.“ Skoða hvort krónan sé viðskiptahindrun Ungir sjálfstæðismenn segja mörg rök hníga að því að kostnaðarsamt sé fyrir Íslendinga að halda úti eigin gjaldmiðli og vilja að kostir og gallar krónunnar verði metnir. Þeir efast um áhrifamátt peningamálastefnu Seðlabankans. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, brá sér í gær í hlutverk „bensíntitts“ – eða öllu heldur „etanóltitts“ – með því að dæla sjálfur fyrstu tankfyllinni af lífetanóli á bíl á Íslandi. Í ávarpi við þetta tækifæri á eldsneytisstöð Olís við Suður- landsbraut sagði forsetinn að með vígslu fyrstu etanóldælunnar á Íslandi væri stigið mikilvægt skref í átt að því að Íslendingar öxluðu frekari ábyrgð á því að draga úr mengun frá bílaflotan- um og að gera íslenskt hagkerfi minna háð olíuinnflutningi. Skoraði forsetinn á þjóðina að taka þátt í þjóðarátaki til að „kveðja olíuna og bensínið“. Það eru Olís og Brimborg sem standa að innleiðingu lífetanól- tækninnar hérlendis. Sjö merkilegustu mannvirki Vestfjarða voru útnefnd á fundi dómnefndar um helgina. Auglýst hafði verið eftir tilnefningum frá almenningi í sumar, og bárust tillögur um tæplega sjötíu mannvirki. Útnefnd voru Síldarverksmiðj- an í Djúpavík, jarðgöngin á Arnarnesi við Ísafjarðardjúp, gamla sjúkrahúsið á Ísafirði, garðurinn Skrúður við Núp í Dýrafirði, vegurinn út í Svalvoga, mannvirki Samúels Jónssonar í Selárdal og þorpið Flatey á Breiðafirði. Á næstunni verður gefinn út bæklingur um mann- virkin handa ferðalöngum. Útnefndu sjö merk mannvirki Geir H. Haarde forsætisráðherra hóf opinbera heimsókn til Svartfjallalands í gær. Í ferðinni, sem lýkur á morgun, fundar hann meðal annars með Filip Vujan- ovic, forseta landsins, Zeljko Sturanovic forsæt- isráðherra, Milan Rocen utanríkisráð- herra og Ranko Krivapovic, forseta þjóðþingsins. Ísland varð fyrsta ríkið til að viður- kenna sjálfstæði Svartfjallalands hinn 8. júní 2006, fimm dögum eftir að þjóðin lýsti yfir eigin sjálfstæði. Stofnað var til stjórnmálasambands milli Íslands og Svartfjallalands 26. september sama ár. Geir Haarde til Svartfjallalands Sænski skopmynda- teiknarinn Lars Vilks, sem hefur fengið morðhótanir frá al-Kaída samtökunum, sagðist í gær vera búinn að fá fulla lögregluvernd. „Ég má ekki lengur búa heima hjá mér. Ég hef bara fengið að ná í nokkra hluti,“ sagði Vilks, sem ávann sér reiði öfgamúslima fyrir að teikna skopmynd af Múhameð spámanni. Á laugardaginn lagði Abu Omar al-Baghdadi, leiðtogi al-Kaída í Írak, fé til höfuðs honum og ritstjóra héraðsblaðsins Nerikes Allehanda, þar sem skopmyndin var fyrst birt. Fær nú fulla lögregluvernd „Sigrún, öskrar músin nú?“ Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðis- ins, vill láta endurskoða reglur um opnunartíma skemmtistaða í miðborginni. Í ávarpi á Miðborgar- þingi í gær lagði hann til að skemmti- stöðum yrði lokað klukkan tvö. „Við erum að kalla eftir því að það sé mótuð skýr stefna borgaryfir- valda um mannlíf í miðborginni; hversu margir skemmti- staðir skuli vera þar, hversu lengi þeir skuli vera opnir og hvernig eigi að svala skemmtanaþörf Íslendinga,“ segir hann. Á þinginu sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri einnig að löggæslumyndavélum í miðborginni verði fjölgað um átta með það í huga að efla öryggi borgara enn frekar. Vill endurskoða opnunartíma Lagt er til að hér verði komið á flötu skattkerfi sem í sér feli lækkun skatta og afnám hliðar- skatta í einni af 90 tillögum Við- skiptaráðs Íslands um umbætur í viðskiptaumhverfi hér. Ráðið fagn- aði í gær 90 ára afmæli sínu. Björgvin G. Sigurðsson, við- skiptaráðherra, fagnaði tillögum ráðsins í pallborðsumræðum á afmælishátíð Viðskiptaráðs í gær. Hann segir að hér beri að stefna að flötum skatti, enda væri slíkt fyrir- komulag það besta fyrir bæði ein- staklinga og fyrirtæki. Finnur Oddsson, framkvæmda- stjóri Viðskiptaráðs, kynnti tillög- urnar níutíu sem miða eiga að auk- inni samkeppnishæfni landsins. Hann hvetur stjórnvöld til að móta skýra framtíðarsýn sem miði að því að styrkja allar stoðir íslensks hag- kerfis. Tillögurnar eru fram settar í níu efnisköflum þar sem fjallað er um stefnu og langtímamarkmið, stjórnsýslu, skattaumhverfi, fjár- mál hins opinbera, vinnumarkað og lífeyrismál, viðskiptaumhverfi og fjármálaþjónustu, mennta- og heil- brigðismál og atvinnumál. Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir menntamálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra og Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra veittu skýrslu Viðskiptaráðs viðtöku fyrir hönd ríkisstjórnarinnar og tóku þátt í pallborðsumræðum þar sem efni hennar og tillögur voru ræddar. Ráðherra styður flatan skatt Portúgalskur dómari hefur synjað beiðni lögreglunnar um að kalla Gerry og Kate McCann til Portúgals í frekari yfirheyrslu. Dómarinn ætlar í staðinn að senda bresku lögregl- unni lista með spurningum og biðja hana um að yfirheyra hjónin. Portúgalska lögreglan kannar nú sjúkrasögu Madeleine og einnig sjúkrasögu móður hennar, Kate McCann. Móðurina er verið að skoða vegna fregna um þunglyndi. Sjúkrasagu Madeleine er skoðuð vegna gruns um ofnæmi fyrir svefnlyfjum. Madeleine McCann hvarf af hótelherbergi fjölskyldu sinnar í Algarve í Portúgal 3. maí síðastliðinn. Ekki aftur til Portúgals
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.