Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 18
Átján nemar við lækna-
og hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands unnu
sjálfboðaliðastörf í
fátækrahverfum í Naíróbí
í sumar. Störfin fjölbreytt
og ómetanleg reynsla
fyrir nemana segir Jonah
Kitheka, framkvæmdastjóri
Provide International.
„Þetta er mjög mikilvægt verkefni
fyrir fólkið í fátækrahverfum Naír-
óbí. Þegar sjálfboðaliðarnir koma
til starfa eru þeir ekki bara að rétta
fólkinu hjálparhönd heldur öðlast
þeir dýrmæta reynslu sjálfir,“ segir
Jonah Kitheka, framkvæmdastjóri
og einn af stofnendum Provide
International.
Í sumar fóru átján nemar frá
lækna- og hjúkrunarfræðideild
Háskóla Íslands til sjálfboðaliða-
starfa í fátækrahverfum Naíróbí,
höfuðborgar Kenía. Tvö stærstu
fátækrahverfi Afríku eru í Naíróbí.
Nemarnir átján unnu á vegum
Provide International.
Jonah segir starf sjálfboðaliðanna
mikilvægt fyrir íbúa Kenía. „Í
fátækrahverfunum kynnast þeir
ýmsu sem þeir myndu kannski ekki
kynnast heima á Íslandi. Reynslan
sem sjálfboðaliðar á heilbrigðis-
sviði fá út úr þessu er ómetanleg
fyrir þá sjálfa. Þeir taka á móti
börnum við erfiðar aðstæður og
sinna alls kyns neyðarþjónustu.
Umhverfið í Naíróbí er ólíkt því á
Íslandi. Það bætist stöðugt við fólk
í fátækrahverfin og neyð fólksins
er mikil vegna sjúkdóma og skorts
á hreinlæti.“
Jonah segir mikilvægt að sjálf-
boðaliðar á heilbrigðissviði séu
búnir með að minnsta kosti tvö ár í
námi. „Þeir þurfa að vera aðeins
sjóaðir áður en þeir koma út til
starfa svo þeir taki ekki tíma frá
öðru starfsfólki í þjálfun,“ segir
Jonah og bætir við að skortur sé á
sjálfboðaliðum í félagsstörf á
heilsugæslustöðvunum. „Við þurf-
um einnig tannlæknanema. Tann-
pína er algeng og fáir tannlæknar á
svæðunum sem við störfum á. Við
höfum þurft að búa til tannlækna-
stofu úr engu og til dæmis notað
bílsæti í stað hefðbundins tann-
læknastóls. Við fáum mörg tilfelli á
dag og það er erfitt fyrir einn tann-
lækni að sinna sextíu sjúklingum
daglega, dag eftir dag.“
Jonah segir að íhugi fólk að
sækja um starf sem sjálfboðaliðar
þurfi það fyrst og fremst að hafa í
huga þá miklu fátækt sem ríkir í
fátækrahverfunum. „Sjálfboðalið-
inn hittir fólk sem býr við ótrúlega
mikla neyð. Fólk lærir mikið af
slíku starfi en kröfurnar eru gífur-
lega miklar og álagið líka.“
Jonah segist vona að samstarfið
við Ísland eigi eftir að eflast enn
frekar í framtíðinni. „Mín von er sú
að sjálfboðaliðar verkefnisins verði
fleiri í framtíðinni og þeir haldi
áfram að nýta sér þau tækifæri sem
felast í störfunum á heilsu-
gæslustöðvunum í Naíróbí og ann-
ars staðar í Kenía. Sjálfboðaliðarnir
hafa verið duglegir að afla sjálfir
styrkja til starfsins og vonandi
gengur það áfram vel í framtíð-
inni.“
Dýrmæt reynsla í fátækrahverfum Naíróbí