Fréttablaðið - 18.09.2007, Síða 70

Fréttablaðið - 18.09.2007, Síða 70
1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 „Það er Búllan. Undirstöðu- góður og hollur skyndibiti fyrir fólk sem býr á þessari gráðu veraldar.“ „Viðbrögðin voru vægast sagt mikil og góð,“ segir Kári Sturluson umboðsmaður, sem skipulagði sér- staka forsýningu á kvikmynd hljómsveitarinnar Sigur Rósar, Heima, um síðustu helgi. Um þrjá- tíu erlendum fjölmiðlamönnum var boðið að sjá myndina í Borgarbíói á Akureyri á laugardaginn og í kjöl- farið fengu þeir að ræða við liðs- menn hljómsveitarinnar. „Það skipti engu máli úr hvaða horni Evrópu maður hleraði við- brögð, þau voru alls staðar ótrúleg og yfirlýsingar sumra voru ansi athyglisverðar. Til að mynda sagði ritstjóri Q, Paul Rees, að myndin væri sennilega ein af fimm bestu tónleikamyndum sem hann hefði séð á ævinni. Heima væri mynd sem hann vildi sjá aftur og aftur,“ segir Kári. „Aðrir gengu enn lengra í yfirlýsingum sínum. Einn blaða- maður frá Finnlandi sagði meira að segja að hún væri besta tónleika- mynd sögunnar.“ Meðal þeirra fjölmiðla sem sendu fulltrúa sína til Akureyrar voru Observer, The Sun, Le Figaro, El Pais og Gaffa auk miðla frá Portú- gal, Finnlandi og Þýskalandi. Kári telur að þessi uppákoma hafi heppn- ast vel; að mikið umtal og spenna eigi eftir að vera fyrir frumsýning- una. „Þótt Reykjavík sé yndisleg þá heppnaðist vel að breyta aðeins til og fara norður. Við kunnum Akur- eyringum bestu þakkir fyrir mót- tökurnar. Strákarnir í hljómsveit- inni voru líka hæstánægðir með þetta, bæði með ferðina og eins við- brögðin sem þeir fengu við mynd- inni. Þeim fannst alveg frábært, eftir alla vinnuna sem þeir hafa lagt í myndina, að fá að heyra hvað öðrum finnst.“ Heima fjallar sem kunnugt er um tónleikaferð Sigur Rósar um Ísland sumarið 2006. Myndin verð- ur heimsfrumsýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, 27. september næstkomandi. Almennar sýningar hefjast svo 5. október í Háskólabíói og hefst for- sala á þær sýningar 25. september. „Ég er að skrifa kvikmyndahand- rit og er búinn að hreiðra um mig í litlu herbergi rétt hjá Sacre Coeur- kirkjunni í bed & breakfast hjá einhverju fólki,“ segir Þorgrímur Þráinsson sem er nú kominn til borg ástarinnar, sjálfrar París. Rithöfundurinn situr þar við skriftir og að þessu sinni er það hvorki bók um samband kynjanna né tár, bros og takkaskó heldur kvikmyndahandrit sem hann hefur gengið með í maganum ansi lengi. „Ég fékk hugmyndina fyrir átján árum og þá átti þetta að verða bók sem hét Fingraför úr fortíðinni,“ segir Þorgrímur, sem unir sér greinilega vel í höfuðborg Frakklands. „Án þess að vilja gefa of mikið upp þá fjallar hún í stuttu máli um það að við þurfum fyrr eða síðar að horfast í augu við syndir okkar úr fortíðinni,“ útskýrir Þorgrímur og harðneitar að tjá sig eitthvað frekar. „En hún gerist í París og það er ástæðan fyrir dvöl minni hér,“ bætir hann við. „Ég var reyndar búinn að skipuleggja þetta fyrir löngu og nú er bara verið að brjóta um bók- ina mína þannig að þetta var alveg kjörið tækifæri.“ Þorgrímur verður í borginni til 26. september en síðustu fjóra dagana kemur eiginkonan Ragn- hildur Eiríksdóttir. „Og þá verður smá rómantík í borg elskend- anna,“ segir rithöfundurinn og skellir upp úr. „Annars er París bara svo mögnuð borg, þú þarft ekki hafa einhverja skipulagða dagskrá á takteinunum heldur ertu bara þarna.“ Þorgrímur í borg ástarinnar Ítalska tískumerkið Zegna hefur útnefnt Garðar Thor Cortes sem sérlegan sendiherra og mun hér eftir útvega honum föt fyrir allar opinberar athafnir. Zegna er eitt virtasta karlmannstískumerki heims og getur verðið á jakka- fötunum verið allt frá 120 þúsundum íslenskra króna. Margir af frægustu leikurum heims hafa klæðst fötum frá Zegna og nægir þar að nefna Adrien Brody, Michael Caine og Kenneth Branagh. Garðar mun klæðast nýrri vetrarlínu frá fyrirtækinu opinberlega auk þess sem nú standa yfir viðræður við tískublöðin GQ og Esquire Magazines um að gera tískuþætti með tenórnum. Sævar Karl hefur öðru hvoru boðið upp á föt frá Zegna og kann- ast því vel við merkið en hann segir að þetta sé kannski ekki mikill heið- ur. „Þetta er fyrst og fremst bara starf sem þeir láta hann hafa en Garðar verður vissulega betur klæddur fyrir vikið,“ segir Sævar. „Þeir setja unga menn á oddinn og Garðar er glæsi- legur maður sem allir Íslendingar geta verið stoltir af,“ segir Sævar, sem telur að þetta eitt geti haft mjög jákvæð áhrif á feril söngvarans unga. „Þetta verður honum til framdráttar, engin spurning, flott föt verða mönnum alltaf til framdráttar.“ Garðar Thor í fyrirsætustörf ÁRMÚLA 11 | Sími 568-1500 | Lónsbakka | Sími 461-1070 | www.thor.is Rafmagnstalíur Keðjutalíur og víratalíur Aflið nánari upplýsinga hjá sölumönnum. DEMAG

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.