Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 30
 18. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGUR2 fréttablaðið gæludýr Jenný Ásgerður og Anna María Guðbrandsdætur og Halldóra María Henrýsdóttir eiga einn hund og fimm kisur. Sumir geta ekki hugsað sér heim- ilið án ferfættra vina með blíð- leg augu, þarfir og kenjar. Þeirra á meðal eru þær Jenný Ásgerð- ur og Anna María Guðbrands- dætur og Halldóra María Henrýs- dóttir. Þær búa saman hér í borg og eiga einn hund, tvær fullorðn- ar kisur og fyrir nokkrum vikum bættust þrír kettlingar í hóp- inn. Það er því líflegt á heimilinu þessa dagana. Húsdýrin þar af- sanna líka kenninguna um að „allt fari í hund og kött“ ef þessar teg- undir búa saman því samkomulag- ið er prýðilegt og öllum líður vel. Þó að fullorðnu kisurnar, Gríma og Vikka, séu bara tveggja og þriggja ára þá eru þær arftakar annarra sem á undan voru. „Alveg síðan ég man eftir mér hafa verið kettir á heimilinu,“ segir Halldóra María. „Svo vorum við með aðra tík áður en þessi kom. Hún hét Rajsa eins og frúin hans Gorbastjovs,“ lýsir hún. Tíkin sem nú spígsporar tíg- ulleg um gólfið heitir Engilbjört. Að sögn Halldóru er hún blanda af Irish Setter og Golden Retriever. „Engilbjört brosir alltaf þegar einhver okkar kemur heim. Hún verður svo glöð,“ segir Halldóra glaðlega. Vikka heitir reyndar Wicty. Hitt er gælunafn. Hún er af persnesku kyni í móðurætt. Halldóra segir Vikku alltaf drekka mjólk á meðan hún sjálf fái sér morgunmat. „Við eigum okkar hátíðlegu morgun- verðarstund,“ segir hún hlæjandi. Það er Vikka sem á kettlingana, tveggja mánaða krútt. Halldóra segir þá tilbúna til að fara út í lífið vilji einhver þiggja þá. gun@frettabladid.is Engilbjört brosir þegar einhver kemur heim Tveggja mánaða högni sem hefur gaman af lífinu. Tasvígir tveggja mánaða kettlingar. Mæðgurnar Jenný og Halldóra með hluta af húsdýrunum á heimilinu. Gríma lætur fara vel um sig í kjöltu Jennýjar en Vikka er á förum úr fangi Halldóru. Á milli þeirra liggur Engilbjört yfirveguð og róleg. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Allt er til í henni Ameríkunni. Nokkrir dýraatferlisfræðingar hafa stofnað kattaskólann „Acat- emy“ í New York þar sem katta- eigendur geta komið og lært að skilja betur hegðun dýra sinna. Þetta gera þeir með því að hegða sér eins og kettir. Þeir klifra í kattaklórubrettum, leika sér að stórum bandhnyklum og leggja sig á stórum baunapúðum. Kennararnir vilja meina að þetta geti bæði orðið til þess að auka skilning kattaeigenda á gælu- dýrum sínum auk þess sem þetta dragi úr daglegu stressi. Skólinn er rekinn af framleið- endum kattamatarins Meow Mix í Daryl Roth leikhúsinu í New York. Þar starfa atferlisfræð- ingar sérhæfðir í kattardýrum, kattasálfræðingar, dýralæknar og meira að segja dýrasjáendur. Til dæmis var þar starfandi gæludýrasjáandinn Emerald DuCoeur sem bauð fólki að tengj- ast kettinum sínum, bæði lifandi og dauðum. Eftir sex daga námskeið í New York hélt „Acatemy“-hópurinn af stað í reisu um ellefu borgir í Bandaríkjunum. Eigendur í kattaskóla Hvað ætli hann sé að hugsa? FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA Nýr íbúi hefur flutt inn í hið sögu- fræga hús að Downingstræti 10 í London sem hýsir forsætisráð- herra Breta, Gordon Brown, og fjölskyldu hans. Hinn nýi íbúi heitir Sibyl og er svört og hvít læða í eigu Alistair Darling og konu hans, Margrétar, sem búa í íbúð á efri hæð Downingstræt- is tíu. Þetta er í fyrsta sinn í tíu ár sem gæludýr spígsporar um hús og garð sitjandi forsætisráðherra og virðist Sibyl kunna mjög vel við sig. Síðasti íbúi hússins af katta- rætt hét Humphrey en hann sett- ist þar að í ráðherratíð Margrét- ar Thatcher og lifði þar einnig meðan John Major dvaldi í hús- inu. Tony Blair sendi Humphrey á eftirlaun árið 1997 og telja marg- ir að það hafi verið gert að undir- lagi konu hans, Cherie. Cherie Blair ásamt kettinum Humphrey árið 1997 sem var sendur á eftirlaun stuttu síðar. Síðan þá hefur enginn köttur stigið loppu inn í Downingstræti 10 fyrr en nú þegar Sibyl læðist þar um. Nýr ferfættur íbúi í Downingstræti tíu Sibyl kann ljómandi vel við sig á hinum nýja dvalarstað. NORDICPHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.