Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 53

Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 53
fiú fær› 103 flúsund á mánu›i Mx12 er n‡r hávaxtareikningur Kaupflings flar sem vextirnir eru greiddir mána›arlega í sta› árlega. fiú getur rá›stafa› vöxtunum a› vild inn á hva›a reikning sem er. Hver innlögn er bundin í sjö daga en sí›an laus til úttektar. Vextir eru stighækkandi eftir tíma og fjárhæ›. Lágmarksinnstæ›a er 1 milljón kr. Mx12 er óver›trygg›ur innlánsreikningur og ársávöxtun er frá 12,55% - 13,60%. Nánari uppl‡singar í síma 444 7000, í næsta útibúi Kaupflings e›a á kaupthing.is ef flú leggur 10 milljónir inn á Mx12 hjá Kaupflingi. Mx12 – vi› borgum flér vextina mána›arlega E N N E M M / S ÍA / N M 2 9 5 17 * Fyrir fjármagnstekjuskatt. Það sem einkennt hefur stefnu íslenskra stjórnvalda undan- farin ár gagnvart láglaunafólki er fjandskapur. Það er ekki nóg að þau hafi hvatt til þess með öllum ráðum að lágmarkslaunum væri haldið niðri, heldur virðast þau leggja sig fram við að hækka skatta á því fólki sem lægstu launin hefur. Á sama tíma afnema þau og lækka skatta á hátekjufólki. Þessa dagana eru fulltrúar verka- lýðsfélaga innan Starfsgreinasam- bands Íslands að ræða saman og móta kröfur sínar um kjarabætur og launahækkanir sem leggja á fram við atvinnurekendur þegar samningafundir hefjast síðar í haust. Augljóst virðist að verka- lýðsfélögin muni fyrst og fremst krefjast umtalsverðar hækkunar lágmarkslauna, en þau eru svo lág að til skammar er. Það vita allir sem hafa augun opin að verðbólga, hækkanir á vöru og þjónustuverði, hærra húsnæðisverð og stórauknar greiðslur af húsnæðislánum hafa hirt að öllu leyti þær kjarabætur, sem félög innan Starfsgreinasam- bands hafa náð á yfirstandandi samningstímabili. Og það vita allir að núverandi lágmarkslaun verka- lýðsfélaganna duga einstaklingi hvergi nærri til eðlilegrar fram- færslu. Þess vegna verða aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld að taka höndum saman við gerð komandi kjara- samnings og bæta verulega kjör þessa fólks. Til þess að leið- rétta mesta óréttlætið verða lágmarkslaun að hækka a.m.k. um þriðjung. Ég sé ekki fyrir mér að mánaðarlaun, sem duga eiga til framfærslu hér á Íslandi í dag, megi vera undir kr. 167.000. Þó eru þau of lág ef ekkert annað kemur til. Þess vegna verða stjórnvöld að taka á sig rögg og hækka skattleysismörkin eigi síðar en um næstu áramót í kr. 140.000 á mánuði og bæta þannig fyrir þá ósvinnu að hafa haldið þeim niðri áratugum saman í stað þess að láta þau fylgja launaþróun í landinu. Í raun væri aðeins verið að bæta lág- launafólki það sem ranglega var af því tekið. Stjórnvöld hafa á þremur síðustu kjörtímabilum afnumið eða lækkað skatta á hátekjufólki. Þau hafa fellt niður 7% hátekjuskatt og lækkað verulega almennan tekjuskatt. Þessar aðgerðir gefa t.d. manni með ráðherralaun yfir milljón krónum meira í auknar ráðstöfunar- tekjur á hverju ári. Á sama tíma er skattleysismörkum haldið niðri með þeim afleiðingum að skatt- byrði eykst verulega á láglauna- fólki. Þess vegna hljóta verkalýðs- félögin að fylgja vel eftir kröfunni um að skattleysismörk hækki í kr. 140.000 á mánuði og fylgi síðan launaþróun í landinu. En það er fleira en kauphækkun og skattalækkun sem verkalýðs- félögin verða að ná fram í komandi samningagerð. Almennt launafólk verður, ekkert síður en vel laun- aðir opinberir embættismenn, að geta búið við atvinnuöryggi. Það á ekki og má ekki vera hægt að segja fólki upp án þess að rökstudd ástæða liggi þar til grundvallar. Þess vegna verða alþingismenn og ráðherrar að hætta öllum undan- slætti með ILO-samþykkt nr. 158 og fullgilda hana núna strax í haust áður en skrifað verður undir væntanlegan almennan kjara- samning aðila vinnumarkaðarins. Ég vona að Samfylkingin hafi sama áhuga á ILO-samþykktinni nú eftir að hún komst í ríkisstjórn eins og hún lét í veðri vaka á síðasta þingi. Fyrir nokkru síðan sagði Jóhanna Sigurðardóttir núverandi félagsmálaráðherra, „Minn tími mun koma“. Já, Jóhanna, þinn tími og Samfylkingar- innar er kominn. Vera Samfylk- ingarinnar í ríkisstjórn og afstaða þingmanna hennar til málefna sem varða afkomu verkafólks er verðugur prófsteinn á hve marktækir þingmenn hennar eru. Höfundur er fyrrverandi formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar. Hungurlaun Húmanistar eru þeir einstakl-ingar sem aðhyllast svokallað- an húmanisma (manngildishyggju) en hann hefur í raun fylgt mannin- um frá örófi alda þó að skilgrein- ingin sjálf sé ekki nema um 150 ára gömul. Húmanismi birtist t.d. í því að manneskjan hefur þurft að reiða sig á rökvísi sína, fyrirhyggju og jákvætt samstarf við annað fólk til þess að komast af. Þegar við lýsum tegundinni manninum (homo sapi- ens) sem „hinum viti borna manni“ erum við í raun að höfða til kjarna húmanismans. Það er geta manns- ins til að skoða umhverfið og finna í því eiginleika sem eru jafnvel utan beinnar skynjunar skilningar- vitanna og nota þá sér í hag. Það er hin greinandi hugsun og getan til að búa til verkfæri og flytja þekkinguna á milli kynslóða. Lífsskoðanir (life stance) eru samansafn þeirra hugmynda sem lúta að því hvernig við horfum á heiminn, hvernig við útskýrum líf- ríkið og náttúruna og hvaða aðferðum við viljum beita til að afla nýrrar þekkingar (þekkingar- fræði) og vita hvernig við eigum að hegða okkur gagnvart hvert öðru og umhverfi okkar (siðfræði). Þá eru menningarlegar hugmyndir um framkvæmd mannfagnaða vegna persónulegra lífsáfanga og tryggðarbanda oft samofinn hluti af lífsskoðunum fólks. Þekkingar- fræði húmanista byggir á því að notast einungis við rökfræðilegar (vísindalegar) aðferðir og til- raunir á hinum þekkta efnis- heimi til að afla staðreynda um heiminn, lífið og tilveruna. Húman- ismi (manngildis- hyggja) byggir á mannvirðingu, einstaklingsfrelsi, samábyrgð, lýðræði og vísindalegri aðferðafræði. Skynsemishyggja (rationalism) og veraldarhyggja (secularism) eru ríkir þættir í húmanisma. Lífsskoðunarfélögum má skipta í annars vegar trúfélög og svo aftur veraldleg félög sem ekki trúa á guð eða guði eins og Siðmennt, félag siðrænna húman- ista á Íslandi. Hin almenna skil- greining á trú er sú að fylgjandinn trúi á einhvers konar æðri mátt eða guðlegan anda. Húmanistar eru því ekki trúaðir og eiga það sameiginlegt með trú- leysingjum (non-believers) og guðleysingjum (atheists). Guðleysi og trúleysi eru hins vegar mun afmarkaðari hugtök en manngildis- hyggja því þau skilgreina í raun einungis að manneskjan sé ekki trúuð, burtséð frá öðrum lífs- skoðunum hennar. Það eru því til trúleysingjar sem gætu ekki talist til húmanista þó að trúleysið sé þeim sameiginlegt. Höfundur er læknir og félagi í Siðmennt. Hvað er húmanismi?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.