Fréttablaðið - 18.09.2007, Side 16

Fréttablaðið - 18.09.2007, Side 16
fréttir og fróðleikur Safn fyrir alls konar fólk Hræðsla getur heltekið fanga sem eiga eftir að af- plána stuttan tíma af löng- um dómi og bíða þess að hefja venjubundið líf. Löng dvölin ýtir undir félagslega óvirkni, segir Þórarinn V. Hjaltason, sálfræðingur hjá Fangelsismálastofnun. Reynslan af rekstri áfangaheimilis Verndar við Laugateig 19 í Reykja- vík er góð, segir Þráinn Bj. Farest- veit, forstöðumaður Verndar. Þar hafa fangar notið stuðnings við að undirbúa sig fyrir þátttöku í venju- bundnu lífi utan fangelsisveggja. Sá tími getur reynst föngum erf- iður, einkum þeim sem hafa verið lengi í fangelsi. Hræðslan við að treysta á sjálfan sig í frjálsu lífi getur heltekið menn. „Löng fang- elsisdvöl getur haft neikvæð áhrif á menn, í víðasta skilningi. Dvölin getur ýtt undir félagslega óvirkni þar sem fangarnir sjá ekki um sig sjálfir að öllu leyti. Til langs tíma getur þetta verið erfitt,“ segir Þórarinn Viðar Hjaltason, sem sinnir sálfræðiþjónustu fyrir fanga hjá Fangelsismálastofnun ásamt Önnu Kristínu Newton. Eins og greint var frá í Fréttablað- inu fimmtudaginn 13. september lét fanginn Sigurður Júlíus Hálfdánar- son sig hverfa af áfangaheimili Verndar sunnudaginn 9. september en hann var handtekinn seint að kvöldi miðvikudagsins 12. septem- ber eftir að hafa verið leitað í þrjá daga. Sigurður var dæmdur árið 1998 í sextán ára fangelsi fyrir manndráp af ásettu ráði. Hann hafði dvalið á Vernd í tæpa fjóra mánuði þegar hann lét sig hverfa en hann átti eftir að afplána innan við sex mánuði af dómi sínum. Mörg dæmi eru um það hér á landi, samkvæmt upplýsingum frá Fang- elsismálastofnun, að fangar eigi í erfiðleikum með að fóta sig í lífinu eftir afplánun. Sumir fari hratt í sama farið og þeir voru í fyrir afplánun. „Því miður hefur það gerst stundum að fíkniefnaneyslan dregur menn til dauða en svo eru líka mörg dæmi um menn sem ná að standa sig og vinna vel í sínum málum. Það er virðingavert því það þarf mikinn aga til,“ segir Þórar- inn. Félagsráðgjafar og sálfræðingar gegna mikilvægu hlutverki við að byggja upp sjálfstraust fanga sem á það til að „molna niður“ innan fang- elsisveggja eins og einn heimildar- manna Fréttablaðsins komst að orði. Fangar hafa aðgang að félags- ráðgjöfum og sálfræðingum á Vernd en frumkvæðið að því að nýta sér þá þjónustu kemur frá þeim sjálfum. Það reynist mörgum föngum erfitt. „Þegar fangarnir eru komnir á Vernd eru þeir farnir að takast á við hluti sem venjulegu fólki finnst einfaldir. Einn af þeim er að treysta sjálfum sér til lifa eðli- lega, sækja vinnu, fara út í búð og eiga félagslíf. Þetta getur verið áþján fyrir fanga, sem hafa ekki búið við valfrelsi árum saman,“ segir Þórarinn. Það getur verið vandkvæðum bundið að skapa andrúmsloft innan fangelsa sem virkar mannbætandi á þá sem þar dvelja. Refsingin sem slík, að vera lokaður inni, hjálpar ekki án sérfræðihjálpar, en félags- ráðgjafar og sálfræðingar vinna mikilvægt starf með föngum. Þeirra starf er kjarninn í því megin- markmiði að gera refsivist fanga að betrunarvist. Þetta markmið nær ekki alltaf til fanga. Eins og mál standa núna hafa á milli 40 og 50 prósent fanga setið inni áður fyrir lögbrot af ýmsu tagi. Fyrri fangelsisdvöl hefur því ekki haft þau áhrif að viðkomandi ein- staklingar fari út af braut afbrota. Þessi staðreynd leiðir hugann að því hvort það sé rétt viðhorf að halda því fram að refsivist geti um leið verið betrunarvist. Einföld töl- fræðinálgun mælir gegn því. Þrátt fyrir það sýna dæmisögur, þótt fáar séu, að fangelsisvist getur verið upphafið að breytingu til hins betra hjá sumum. Flestir heimildarmanna Frétta- blaðsins voru sammála um að það væri þröngsýni að halda að afbrota- menn myndu hætta fyrri iðju með því að loka þá inni með öðrum afbrotamönnum. Ekki er það til að auka líkurnar á breytingu til batnaðar að fíkniefnaneysla innan fangelsisveggja hér á landi hefur alla tíð verið þó nokkur. Fíkniefna- neysla í fangelsum er alþjóðlegt vandamál enda fáir markaðir fyrir fíkniefnasala vænlegri en fangelsi þar sem mikill meirihluti fanga hefur verið, eða er, háður fíkniefnum. Samnorræn heildarskoðun á fang- elsismálum stendur nú yfir og verða upplýsingar úr henni ljósar von bráðar, samkvæmt upplýs- ingum frá Erlendi Baldurssyni, deildarstjóra hjá Fangelsismála- stofnun. Þar verður meðal annars skoðað hversu margir fangar á Norðurlöndunum hafa náð að fóta sig eftir fangelsisvist og hversu margir lenda aftur í fangelsi. Helteknir af hræðslu við frelsið Útlegðarforsetar snúa aftur til Pakistans

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.