Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.09.2007, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 18.09.2007, Qupperneq 8
Samson Properties hefur átt í viðræðum við Lista- háskóla Íslands (LHÍ) um hugsan- leg kaup á svokölluðum Frakka- stígsreit, sem afmarkast af Laugavegi og Hverfisgötu, Frakka- stíg og langleiðina vestur á Vita- stíg. Samson er fasteignaþróunar- félag í eigu Björgólfs Guðmunds- sonar, formanns bankaráðs Lands- banka, og sonar hans, Björgólfs Thors, eiganda Actavis. Félagið á húsnæði kvikmyndahússins Regn- bogans við Hverfisgötu og Vegas, nektardansstaðar við Frakkastíg, ásamt flestum lóðum þar á milli. Hjálmar H. Ragnarsson, rektor LHÍ, neitar þessu ekki, en segir erfitt að upplýsa um þessar hug- myndir, sem séu skammt á veg komnar. Allar slíkar fram- kvæmdir yrðu í nánu samráði við stjórnvöld og Reykjavíkur- borg. „Það hefur alltaf verið stefna Listaháskólans, frá því hann var stofnaður, að vera í miðbænum. Skólinn hefur fengið lóð frá Reykjavíkurborg í Vatns- mýrinni og við getum annað hvort byggt þar eða notað hana til að útvega okkur aðra lóð,“ segir Hjálmar og minnir á að enn sé óvissa um framtíð Reykjavíkur- flugvallar og þar af leiðandi um aðstöðu fyrir skólahald í Vatns- mýri. LHÍ þarfnast húsnæðis sem er milli 13.000 og 14.000 fermetrar að stærð. Spurður um húsin sem fyrir eru á svæðinu, segir Hjálmar of snemmt að ræða útfærslu bygg- ingarinnar. „Við höfum gengið út frá því að byggja nýtt hús yfir skólann, en ekki endurgera gömul. Skólinn hefur hins vegar ekki áhuga á því að ryðja verðmætri borg og byggð í burtu, þannig að ef mikil verðmæti felast í þessum húsum höfum við ekki áhuga á því,“ segir Hjálmar. Ásgeir Friðgeirsson, talsmaður Samson Properties, staðfestir þetta og segir viðræðurnar lið í viðleitni félagsins til að finna heildstæðar lausnir sem styrki og efli miðbæinn. Of snemmt sé að ræða málið af nákvæmni eða segja nokkuð um framtíð einstakra húsa. Á reitnum sé möguleiki á talsvert stórri byggingu. „En það er alveg ljóst að menn gera ekkert nema með virðingu fyrir sögunni og viðhorfum borgarbúa,“ segir hann. En það er alveg ljóst að menn gera ekkert nema með virðingu fyrir sögunni og viðhorfum borgarbúa. Hvaða bandaríski embættis- maður sagði nýlega að Íraks- stríðið snerist um olíu? Hvað heitir leikkonan sem stofnaði Útvarpsstöðina Ólínu á dögunum? Hvað heitir spjallþáttastjórn- andinn sem kveður Skjá einn í byrjun október? 8 52 39 4 58A 41 41A 35 6058 45 54 33 60A 4337 43B 56 Microsoft tapaði í gær áfrýjunarmáli fyrir Evrópudóm- stólnum og þarf að greiða rúma fjörutíu milljarða íslenskra króna í sekt. Dómstóllinn staðfesti úrskurð framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins frá árinu 2004 um að fyrirtækið hefði misnotað markaðsráðandi stöðu sína. Auk sektarinnar þarf Microsoft að bjóða upp á útgáfu af Windows- stýrikerfinu án þess að Media Player hljóð- og myndspilarinn sé innifalinn. Með því að láta spilarann fylgja með stýrikerfinu hafi fyrirtækið útilokað samkeppn- isforrit, segir meðal annars í úrskurðinum. Microsoft tapar áfrýjunarmáli Miðbær Reykjavíkur hefur frá upphafi verið í stöðugri þróun og mótun. Um þessar mundir eru hafnar miklar framkvæmdir í eldri hverfum borgarinnar og áform eru víða uppi um endurgerð og uppbyggingu húsa og svæða. Segja má að borgin standi á tímamótum sem sést á kraftmikilli opinberri umræðu um leiðir til að efla miðborg Reykjavíkur. Samson Properties er fasteignaþróunarfélag sem vill taka virkan þátt í að efla og treysta miðborgina. Félagið býður til morgunverðarfundar þar sem ræddar verða áherslur og leiðir við endurnýjun og uppbyggingu miðborga. Jafnframt verða kynntar hugmyndir að nýjum miðborgarkjarna í Reykjavík þar sem horft er til framtíðar og virðing borin fyrir sögulegri sérstöðu miðborgarinnar. Lifandi miðborg Fundarstjóri er Sveinn Björnsson, framkvæmdastjóri Samson Properties Fundurinn er opinn öllum, enginn aðgangseyrir Samson býður Listaháskóla Frakkastígsreit Félag Björgólfsfeðga á í viðræðum við Listaháskólann um framtíðarhúsnæði hans. „Alltaf verið stefna skól- ans að vera í miðbænum,“ segir rektor Listaháskólans. Slökkvilið var kallað út um hálftíu í gærmorgun þegar kviknaði í sogkerfi á trésmíðaverk- stæði við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Sogkerfinu er ætlað að soga til sín sag og kviknar einstaka sinnum í því þegar neistar fjúka frá öðrum vinnuvélum. Nægt súrefni er við þessar aðstæður og sag er mjög eldfimt. Töluverð vinna var við að slökkva glóð í gámi sem sagið var í. Eignatjón var ekki verulegt. Kviknaði í sagi „Þeir voru komnir um borð í björgunarbátinn þegar ég kom að. Bátur þeirra sat á skeri en það mátti ekki tæpara standa því hann valt út af skerinu nokkrum mínútum síðar og maraði í kafi svo aðeins stýrishúsið stóð upp úr sjónum,“ segir Guð- brandur Baldursson, hótelstjóri á Reykjanesi við Ísafjarðardjúp, og segist hann hafa verið kallaður til af því hótelið hefur yfir hraðbát að ráða. Guðbrandur segir að um 20 til 25 mínútur hafi liðið frá því að neyðarkall mannanna barst og þar til hann kom og bjargaði þeim úr björgunarbátnum. Það tók næsta bát, rækjubátinn Val, um 45 mín- útur að komast á vettvang. Björg- unarbáturinn var hífður um borð í Val áður en farið var með menn- ina að landi á Nauteyri, þaðan sem þeir komu. Að sögn Guðbrands tjáðu mennirnir honum að þeir hefðu verið í sportveiði um dag- inn og verið á leið í land þegar óhappið varð. Báturinn steytti á skeri milli Vatnsfjarðar og Mjóafjarðar og kom þá leki að honum. Báturinn var dreginn á kafi til Ísafjarðar og í gærmorgun var báturinn sokkinn við bryggju, en var hífður í land eftir hádegi að sögn lögreglu. Dreginn til hafnar í kafi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.