Fréttablaðið - 18.09.2007, Blaðsíða 66
B&L
Nýliðar Fjölnis í
Iceland Express-deild kvenna
hafa samið við makedóníska
bakvörðinn Slavicu Dimovska um
að spila með liðinu í vetur.
Dimovska er 22 ára landsliðs-
kona sem hefur spilað við góðan
orðstír með Triglias í grísku
úrvalsdeildinni undanfarin tvö
tímabil. Triglias féll síðasta vor og
Dimovska elti kærasta sinn til
Íslands en hann er Dimitar
Karadzovski, núverandi leikmaður
Stjörnunnar.
Dimovska var með 5,7 stig að
meðaltali með Makedóníu í b-deild
Evrópukeppninnar 2005 en hún
vakti mikla athygli með sextán
ára landsliðinu í Evrópukeppninni
2003 þegar hún skoraði 33 stig og
gaf 6 stoðsendingar í leik gegn
Úkraínu í milliriðli keppninnar.
Dimovska er leikstjórnandi með
gott þriggja stiga skot og mun
örugglega hjálpa nýliðum Fjölnis
að stíga sín fyrstu skref. Hún var
fimmti stigahæsti leikmaður
grísku deildarinnar í fyrra með
22,6 stig og var einnig í fjórða sæti
í stoðsendingum.
Fjölnir mun ekki tefla fram
bandarískum leikmanni til að
byrja með. Gréta María Grét-
arsdóttir mun þó spila með liðinu
en hún hefur tekið sér frí undan-
farin ár lék með liðinu seinni hluta
síðasta veturs.
Makedónísk lands-
liðskona til Fjölnis
Blikastúlkan
Berglind Björg Þorvalds-
dóttir skoraði fimm mörk
fyrir íslenska 17 ára
landsliðið sem vann 7-1
sigur á Lettum í fyrsta
leik sínum í riðlakeppni
Evrópumótsins en keppni
hófst í Slóveníu í gær.
Staðan var 5-0 fyrir
Ísland í hálfleik og Lett-
arnir skoruðu síðan loka-
mark leiksins úr víti. Hin
mörk íslenska liðsins
skoruðu fyrirliðinn Dagný
Brynjarsdóttir og félagi
Berglindar úr Breiða-
bliki, Sigrún Inga Ólafs-
dóttir.
Dagný, sem varð í gær-
kvöldi Íslandsmeistari
með Val, gat ekki fagnað
með félögum sínum þar
sem hún er úti með lands-
liðinu. Næsti leikur liðs-
ins er svo við Slóveníu á
miðvikudag og lokaleik-
urinn er á laugardag
þegar leikið verður gegn
Úkraínu.
Fimma Berglindar
Valur fékk gullið
tækifæri til að hrifsa toppsæti
Landsbankadeildarinnar af FH,
sem hefur setið sem fastast á
toppnum síðan í júlí árið 2004.
Það tækifæri fór forgörðum hjá
Hlíðarendaliðinu þar sem það
fékk aðeins eitt stig í rimmunni
við Skagamenn í Laugardal.
Fyrri hálfleikur í Laugardalnum
í gær var tilþrifalítill. Skagamenn
lágu sem fyrr frekar aftarlega og
Valsmenn voru þess utan varkárir
í sóknaraðgerðum sínum enda
hafa skyndisóknir Skagamanna
verið baneitraðar í sumar.
Fyrsta færið kom ekki fyrr en
eftir rúmlega 20 mínútna leik
þegar Atli Sveinn fékk frían
skalla í teignum en hann skallaði
yfir. Atli gerði betur níu mínútum
síðar þegar Páll Gísli gerði sig
sekan um slæm mistök í teignum,
boltinn féll fyrir fætur Atla sem
skoraði örugglega.
Þetta reyndist vera eina skotið
í fyrri hálfleik sem fór á markið,
sem segir umtalsvert um þann
sóknarbolta sem var í boði í fyrri
hálfleiknum.
Skagamenn bættu aðeins í
sóknarleikinn í kjölfar marksins
en hann var ómarkviss. Stans-
lausar háar sendingar í teiginn
voru léttir æfingaboltar fyrir
Kjartan í markinu, sem var á
tánum.
Það var sama deyfðin yfir
leiknum framan af síðari hálfleik
en um miðjan hálfleikinn hitnaði
loksins í kolunum þegar Andri
Júlíusson átti frábæra sendingu
fyrir markið sem Björn Bergmann
skilaði í netið. Aðeins sex
mínútum síðar skoraði Björn
glæsilegt skallamark eftir
sendingu Guðjóns Heiðars. Tvö
mörk hjá Skagamönnum úr
nánast einu alvöru sóknum þeirra
í leiknum.
Valsmenn létu það ekki slá út af
laginu og Pálmi Rafn jafnaði
leikinn fjórum mínútum síðar
þegar hann tók frákast í teignum.
Nokkuð líf var í báðum liðum það
sem eftir lifði leiks en inn vildi
boltinn ekki og liðin skiptust því á
jafnan hlut, sem var sanngjörn
niðurstaða þegar upp var staðið.
„Í það heila er ég nokkuð sáttur
en þó ósáttur við þann kafla þegar
við fáum á okkur tvö mörk,“ sagði
Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals,
sem var ekki sáttur við Kristin
Jakobsson dómara. „Guðjón
Þórðarson tók Kristin Jakobsson
á taugum. Eftir það var aldrei
spurning á hvort liðið hallaði í
öllum vafaatriðum. Jafntefli gerir
það samt að verkum að næsti
leikur gegn FH er úrslitaleikur
og það er styrkur.“
Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA,
var nokkuð sáttur í leikslok.
„Fyrir fram hefði ég verið nokkuð
sáttur við jafntefli en úr því sem
komið var hefðum við vel getað
unnið leikinn. Við komum sterkir
til baka eftir að hafa lent undir og
það var ekki mikið í kortunum hjá
Völsurum og þeir skora sín mörk
úr föstum leikatriðum,“ sagði
Guðjón, sem er sáttur við
tímabilið hjá sínum mönnum.
„Árangur okkar í sumar er
langt fram úr þeim væntingum
sem til liðsins voru gerðar. Við
gerðum ráð fyrir að vera í
fallslagnum en svona er þetta í
fótboltanum. Það er ekki hægt að
búast við neinu.“
Valsmenn nýttu ekki gullið tækifæri á að komast í toppsæti Landsbankadeildarinnar þegar ÍA kom í heim-
sókn í Laugardalinn. Lokatölur 2-2 og Valur því enn í öðru sæti deildarinnar.