Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 4
Það er hreinlega eins og
ég hafi verið skorin upp
og eitthvað tekið út úr mér.
www.lyfja.is - Lifið heil
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
L
Y
F
3
89
96
0
9.
20
07
Acidophilus Bifidus + FOS
Mjólkursýrugerlar, góðir fyrir meltinguna.
Champignon DETOX + FOS og Spirulina
Hreinsaðu líkamann – eyðir óæskilegri lykt.
Milk Thistle DETOX
Hreinsaðu líkamann að innan.
Psyllium Husk Fibre
Rúmmálsaukandi, gott fyrir
meltinguna.
30% afsláttur
af Vega vítamínum
Stærsta einstaka ákvörð-
un sem stjórnvöld standa frammi
fyrir varðar framtíð krónunnar, að
því er fram kom í máli Erlends
Hjaltasonar, formanns Viðskipta-
ráðs, í níutíu ára afmæli samtak-
anna í Salnum í Kópavogi í gær.
„Á undanförnum misserum hefur
peningahagstjórn ekki skilað þeim
árangri sem henni er ætlað,“ segir
Erlendur. Hann kveður ástæður
þessa margþættar, en afleiðinguna
sveiflukenndan gjaldmiðil og háa
stýrivexti. „Til að skapa fyrir-
tækjum stöðugt og hagfellt
umhverfi er mikilvægt að gera hér
bragarbót. Viðskiptaráð telur mikil-
vægt að halda uppi faglegri og
virkri umræðu um stöðu krónunnar
og mun ekki skorast undan ábyrgð
sem leiðandi aðili í þeirri umræðu.“
Þótt ríkisstjórnin hafi lokið sínum
fyrstu níutíu dögum við völd sé
ekki þar með sagt að tónninn hafi
verið sleginn í störfum hennar. „Ég
tel að næstu níutíu dagar, upphaf
þings og þau störf sem fram undan
eru tengd því, muni gefa til kynna
hvers megi vænta,“ segir formaður
viðskiptaráðs.
Viðskiptaráð gaf út í tilefni af
afmælinu lista með níutíu tillögum
sem miða að því að bæta sam-
keppnishæfni landsins, við-
skiptaumhverfi og framtíðarhorfur.
Erlendur segist vonast til að listinn
verði frjósamur jarðvegur nýrrar
ríkisstjórnar sem með styrkum
meirihluta hafi möguleika á að
hrinda mikilvægum málum í
framkvæmd.
Gjaldmiðillinn er stærsta málið
„Þrettándi ágúst er gæfudag-
ur í mínu lífi,“ segir Fanney Sigur-
jónsdóttir, sem þann dag fór 73
ára gömul aftur út á vinnumarkað-
inn eftir meira en áratugs hlé.
Fanney er einn margra nýrra
starfsmanna sem svöruðu auglýs-
ingu Nóatúnsverslananna sem
óskuðu eftir fólki með lífsreynslu.
Fyrir rúmum áratug þurfti Fann-
ey að hætta að vinna vegna
slitgigtar. Hún hafði um árabil
rekið eigin snyrtistofu og sinnti
síðar eldri borgurum í Skjóli.
„Ég var komin með krepptar
hendur og gafst bara upp en með
tímanum og æfingum lagaðist ég,“
segir Fanney, sem síðan í ágúst
hefur unnið í Nóatúni í Hamra-
borg í Kópavogi. Þar raðar hún
aðallega snyrtivörum í hillur og er
þrjá daga í viku frá klukkan níu til
tvö. Og stundum lengur því henni
finnst svo gaman.
„Á dauða mínum átti ég von
frekar en að ég færi aftur að vinna
73 ára gömul. Fólkið hér er yndis-
legt og ég hlakka til að vakna á
hverjum morgni. Það er hreinlega
eins og ég hafi verið skorin upp og
eitthvað tekið úr mér. Ég get varla
lýst því hvað ég er ánægð,“ segir
Fanney til að lýsa þeirri gjör-
breytingu sem orðið hefur á líðan
hennar.
Eftir nýlega lagabreytingu
getur fólk sem er eldra en sjötíu
ára nú unnið launavinnu án þess
að lífeyrir þess skerðist á móti.
Fanney telur að breytingin ætti að
eiga við fleiri lífeyrisþega svo
þeir gætu notið þess sama og hún.
Hvað sjálfa sig varðar játar Fann-
ey að hún sé komin í framtíðarstarf:
„Ég verð hérna eins lengi og þeir
vilja hafa mig. Og ég reikna með
að þeir vilji hafa mig á meðan ég
geri enga vitleysu.“
Guðríður H. Baldursdóttir,
starfsmannastjóri hjá Kaupási,
móðurfélagi Nóatúns, segir að
þegar auglýst hafi verið eftir fólki
með lífsreynslu hafi áhersla verið
lögð á sveigjanlegan vinnutíma.
Viðbrögðin hafi verið góð. Meðal
þeirra sem hafi sótt um hafi nokkri
verið á áttræðisaldri.
„Við fengum fyrirspurnir frá
fólki frá hálffimmtugu og yfir sjö-
tugt. Sumir voru óöruggir og
spurðu hvort þeir væru ekki allt
of gamlir en okkar útgangspunkt-
ur var að sníða þetta alveg að því
sem fólkið sjálft hafði í huga. Þetta
er fólk sem hefur ákveðinn þroska
og það fylgir því ákveðið traust að
leita til eldri starfsmanns. Og við-
skiptavinirnir virðast kunna vel
að meta það,“ segir Guðríður H.
Baldursdóttir.
Snýr aftur til vinnu
á áttræðisaldrinum
Fanney Sigurjónsdóttir er 73 ára og nýkomin aftur út á vinnumarkaðinn eftir
meira en áratugs hlé og segist nú hlakka til að vakna á hverjum morgni. Ekki
spillir fyrir að eftir lagabreytingu fær Fanney lífeyri sinn áfram óskertan.
Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, heldur
í opinbera heimsókn til Rúmeníu
í dag, fyrstur
íslenskra forseta.
Með í för verða
Björgvin G.
Sigurðsson
viðskiptaráðherra
og fjölmenn
viðskiptasendi-
nefnd skipuð
fulltrúum 25
fyrirtækja, og
fleirum. Þetta
kemur fram í
fréttatilkynningu frá skrifstofu
forseta Íslands.
Í ferðinni fundar forsetinn
meðal annars með Traian
Basescu, forseta Rúmeníu, og
Calin Popescu, forsætisráðherra
landsins. Hann opnar einnig
viðskiptaráðstefnu þar sem
fjallað verður um viðskipti
Íslands og Rúmeníu.
Ólafur Ragnar
fer til Rúmeníu
Litlu munaði að
hægristjórnin í Grikklandi missti
meirihluta sinn í þingkosningum
á sunnudag.
Stjórnarflokkurinn Nýtt
lýðræði hlaut 41,8 prósent
atkvæða og er nú með 152
þingmenn af 300, en stjórnarand-
stöðuflokkur sósíalista, PASOK,
hlaut 38,1 prósent atkvæða og 102
þingmenn.
Costas Karamanlis forsætisráð-
herra á erfitt verk fyrir höndum
með þetta nauman meirihluta ætli
hann að koma á umbótum í
efnahagsmálum og menntamál-
um, eins og stjórnin hefur lofað
en mætt hefur harðri mótspyrnu í
Grikklandi, meðal annars frá
verkalýðsfélögum.
Stjórnin sigraði
naumlega
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra hefur staðfest nýja
aðalnámskrá framhaldsskóla. Í
námskrána hefur verið bætt
starfsnámi þjónustu í skrifstofu-
og verslunargreinum.
Þrjár nýjar námsbrautir verða
til þegar námskráin tekur gildi;
grunnnám, skrifstofubraut og
verslunarbraut, undir nafni
þjónustugreina. Samkvæmt
tilkynningu á vef menntamála-
ráðuneytisins tekur námskráin
gildi í skólum frá og með
skólaárinu 2007 til 2008 eftir því
sem við verður komið, og að fullu
innan þriggja ára.
Staðfesti nýja
aðalnámskrá
Jónmundur
Guðmarsson, bæjarstjóri
Seltjarnarness, hefur ritað
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra bréf með kröfu um
skýringar á töfum og afstöðu
ráðherra til samkomulags og
framvindu framkvæmda vegna
tafa á byggingu hjúkrunar-
heimilis á Lýsislóð.
Samkomulagið hljóðaði upp á
að Seltjarnarnesbær legði til
lóðina og greiði einnig tíu
prósent af heildarkostnaði
framkvæmdanna en ráðuneytið
greiðir sjötíu prósent og Reykja-
víkurborg greiðir tuttugu
prósent. Framkvæmdirnar áttu
að hefjast á næsta ári.
Bæjarstjóri
krefst skýringa