Fréttablaðið - 18.09.2007, Síða 6
Bera Kate og Gerry McCann
ábyrgð á hvarfi dóttur sinnar,
Madeleine McCann?
Finnst þér starfsemin sem fer
fram í Kolaportinu mikilvæg?
Glerfínar gluggafilmur
– aukin vellíðan á vinnustað
R
V
62
09
3M glu
ggafilm
ur fyrir
skóla, s
júkrahú
s, skrifs
tofur,
verslani
r og að
ra vinnu
staði
Fagme
nn frá
RV
sjá um
uppset
ningu
PÍTUBAKKI 2.390 kr.
ÁVAXTABAKKI
2.480 kr.
Vínber, melónur, ananas, appelsínur,
perur og fleiri gó›ir ávextir.
N†TT
PANTA‹U Í SÍMA 565 6000 / FRÍ HEIMSENDING*
*Frí heimsending gildir a›eins ef panta›ir eru 3 e›a fleiri bakkar.
Tikka masala kjúklingur,
jöklasalatog pítubrau›.
Reykt skinka, eggjasalat,
jöklasalat og pítubrau›.
Nánari uppl‡singar á somi.is
N†TT
„Ég held að ekki sé hall-
að á neinn þegar ég segi að þetta
sé stærsti styrkur sem einstakl-
ingur hefur varið í eitt verkefni,
og svo sannarlega á sviði mennta-
mála,“ segir Svafa Grönfeldt,
rektor Háskólans í Reykjavík
(HR).
Svafa kynnti í gær, á níutíu ára
afmælisdegi Viðskiptaráðs
Íslands, nýjar leiðir í fjármögnun
skólans til að tryggja honum sess
meðal framsæknustu háskóla
Evrópu. Þær miða að því að bjóða
einstaklingum og fyrirtækjum að
koma með beinum hætti að upp-
byggingu skólans. Svafa greindi
frá því í ávarpi á afmælisfundin-
um að Róbert Wessmann, forstjóri
Actavis, muni leggja fram 1.000
milljónir króna sem hlutafé og
framlag í Þróunarsjóð HR.
„Hann leggur meira en áttatíu
prósent af þessari upphæð í
Þróunarsjóðinn sem mun leiða til
þess að við byggjum upp innviði
skólans. Hann er því ekki að
styrkja byggingar heldur
þekkingarþáttinn.“
Svafa segist vona að Róbert sé
sá fyrsti til að slá tóninn og bindur
miklar vonir við að fleiri aðilar
viðskiptalífsins, hvort sem það
eru einstaklingar eða fyrirtæki,
sjái sér hag í því að koma með
þeim í það verkefni að gera HR að
leiðandi alþjóðlegum háskóla og
brautryðjandi afli í rannsóknar-
starfi og nýsköpun í kennslu og
útrás Íslendinga á sviði menntun-
ar. „HR er í rauninni skóli atvinnu-
lífsins. Aðildarfélagar í ýmsum
samtökum atvinnulífsins hafa
verið okkur mjög hliðhollir í
gegnum tíðina. Þetta er bara enn
ein leið sem við erum að fara til að
fá þá til stuðnings við okkur og
þeir fá auðvitað að njóta
ávinningsins.“
Svafa sagðist í ávarpi sínu von-
ast til að sem flestir slægjust í
hópinn og að sem flest íslensk
fyrirtæki sæju kostina í því að
auka samkeppnishæfni sinna
starfsmanna með því að hafa hér
skóla sem fólk geti stundað nám í
samhliða starfi. „Þessu nýja
fjármagni verður ekki varið í
steinsteypu heldur þekkingu,
rannsóknir og uppbyggingu á
kennsluliði skólans.“
Leggur einn milljarð til
Háskólans í Reykjavík
Róbert Wessmann, forstjóri Actavis, leggur einn milljarð króna sem hlutafé og framlag
í nýstofnaðan Þróunarsjóð Háskólans í Reykjavík. Stærsti styrkur sem einstaklingur
hefur varið í eitt verkefni segir Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík.
„Þeir sem fara með
völdin í þessum málaflokki gagnrýna
lyfjaverð af því að það er vinsælt og
sleppa um leið við að tala um það sem
máli skiptir eins og vöxt útgjalda í
heilbrigðiskerfinu almennt,“ segir
Jakob Falur Garðarsson, framkvæmda-
stjóri Frumtaka, samtaka framleiðenda
frumlyfja.
Samtökin segja margt í opinberri
umræðu um lyfjaverð ekki standast
skoðun og að órökstuddar fullyrðingar
séu settar fram.
Jakob Falur segir að til dæmis hafi
hlutfall lyfja af opinberum heilbrigð-
isútgjöldum lækkað undanfarin ár; úr
rúmum níu prósentum árið 2000 í
rúmlega sjö og hálft prósent árið 2005.
Þá nemi lyf og lækningavörur í dag 1,2
prósentum af útgjöldum heimilanna og
hafi lækkað síðustu ár en húsnæði,
hiti, rafmagn, póstur og sími hafi
hækkað.
Jakob segir lyfjaverð á Íslandi
sambærilegt og á hinum Norðurlönd-
unum og telur að sameiginlegur
lyfjamarkaður, líkt og heilbrigðisráð-
herra vill taka upp, leiði ekki til
verðlækkunar. „Ég held að verðið muni
ekki lækka af því að það er nú þegar
það sama og á hinum Norðurlöndun-
um. Og á meðan Landspítalinn getur
ekki greitt birgjum sínum fyrir lyf,
ætti hann að eiga auðveldara með að
greiða birgjum í öðrum löndum?“
Michael B.
Mukasey, fyrrverandi dómari í
New York, verður næsti dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna, ef
George W. Bush Bandaríkjaforseti
fær vilja sínum framgengt á
Bandaríkjaþingi.
„Mukasey dómari sér skýrt þá
hættu sem steðjar að þjóðinni,“
sagði Bush við athöfn í Hvíta
húsinu í gær, þar sem hann skýrði
frá ákvörðun sinni. „Hann veit
hvað þarf til að ná árangri í þessu
stríði og hann kann að gera það
þannig að það brjóti ekki í bága við
lög okkar og stjórnarskrá.“
Mukasey hefur undanfarið verið
dómsmálaráðgjafi Rudys Giuliani,
fyrrverandi borgarstjóra í New
York og núverandi keppanda í
frambjóðendavali Repúblikana-
flokksins fyrir forsetakosning-
arnar haustið 2008.
Um átján ára skeið var Mukasey
dómari við alríkisdómstól í New
York og kom það meðal annars í
hans hlut að dæma Omar Abdel
Rahman og El Sayyid Nosair í
ævilangt fangelsi fyrir sprengju-
árás á Tvíburaturnana í New York
árið 1993.
Mukasey tekur við af Alberto
Gonzales, sem sagði af sér vegna
harðrar gagnrýni sem hann hafði
sætt fyrir embættisfærslur sínar.
Bandaríkjaþing þarf þó að veita
samþykki sitt áður en Mukasey
getur tekið við starfinu.
Mukasey í stað Gonzales
Geislavirkt svæði við
kjarnorkuverið í Chernobyl
verður hulið stálkápu sem kemur
í stað steypubyggingarinnar sem
byggð var eftir kjarnorkuslysið
1986, samkvæmt fréttavef BBC.
Að fimm árum liðnum, þegar
kápan verður komin upp, geta
yfirvöld byrjað að taka kjarna-
ofninn í sundur. Áætlaður
kostnaður er um fjörutíu
milljarðar íslenskra króna.
Forseti Úkraínu, Viktor Júst-
sjenkó, fagnar áformunum. Hann
segir nú fyrst hægt að horfast í
augu við alþjóðasamfélagið og
segja að fundist hafi lausn á
vandanum.
Kjarnorkuver
klætt stálkápu