Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 10
Ísland hefur nú um
alllangt skeið verið í heimsforystu
í nýtingu endurnýjanlegra orku-
gjafa þegar kemur að húshitun og
raforkunotkun heimila og iðnaðar,
en Íslendingar eru aftur á móti
orðnir eftirbátar annarra þjóða
þegar kemur að orkunotkun í sam-
göngum. Til að vekja athygli á þess-
um vanda og varpa ljósi á leiðir til
að bæta úr þessu stendur nú yfir í
Reykjavík tveggja daga alþjóðleg
ráðstefna um umhverfisvænar
lausnir í samgöngumálum.
Ráðstefnan, sem fer fram undir
ensku yfirskriftinni Driving Sustain-
ability ´07, er samstarfsverkefni
Reykjavíkurborgar, ráðuneyta
umhverfis- og samgöngumála,
sænska sendiráðsins og fjölda fyrir-
tækja, þar á meðal Olís og Brim-
borgar sem standa saman að því að
bjóða Íslendingum í fyrsta sinn upp
á lífetanól og bíla sem ganga fyrir
því umhverfisvæna eldsneyti.
Meginboðskapurinn í þeim
erindum sem flutt voru á fyrsta
degi ráðstefnunnar í gær var að
þótt enn væri ekki fundin „hin
endanlega lausn“ sem tekið gæti
við af hinu kolefnaeldsneytisknúna
samgöngukerfi nútímans þá væru
nú þegar til lausnir sem, með
tiltölulega litlum tilkostnaði og
breytingum á þeim innviðum sem
fyrir eru, væru samkeppnishæfar
við bensín- og dísilknúna bíla. Þótt
vissulega væri að sumu leyti sam-
keppni milli þeirra tæknilegu
lausna sem mögulegar eru, eins og
milli etanól-, gas-, tvinn-, rafmagns-
og vetnisbíla, þá hefði hver
stuðning af hinum. Ekki væri
ástæða til annars en nýta þær allar
þótt ekki væri enn ljóst hver þeirra
yrði ofan á í framtíðinni eða hvort
einhver ein lausn yrði fyrir valinu.
Það skýrðist ekki nema með
reynslunni.
Svíar hafa náð heimsforystu í að
innleiða lífetanól-tæknina í bíla-
flota sinn. Með því eldsneyti, sem
framleitt er úr lífmassa sem til
fellur í landbúnaði og er blandað
saman við bensín (85 prósent
etanól, 15 prósent bensín), minnkar
koltvísýringslosun um allt að 80
prósent samanborið við bíl með
hefðbundna bensínvél.
Árni Mathiesen fjármálaráð-
herra sagði ríkisstjórnina vera að
vinna að rammalöggjöf til að ýta
undir aukna notkun umhverfis-
vænna farartækja hérlendis.
Óábyrgt að bíða með
vistvænar lausnir
Á ráðstefnu sem hófst í Reykjavík í gær kom fram að ekki aðeins væri ástæðu-
laust heldur beinlínis óábyrgt að grípa ekki tafarlaust til aðgerða til að draga úr
notkun kolefnaeldsneytis og losun koltvísýrings í samgöngum á Íslandi.
Sími 590 5000
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
8
1
0
2
Eigum frábært úrval nýlegra lúxusfólksbíla og jeppa frá Volkswagen, Audi og Mercedes Benz með
allt að 90% lánum á afar hagstæðum kjörum. Bílarnir eru til sýnis á Bílaþingi, Laugavegi 174.
Opið kl. 10–18 á Laugavegi 174
VW Touareg V8 bensín
Skr. d. 16.4.2004
19" álfelgur, dráttarbeisli
loftpúðafjöðrun, lykillaust aðgengi
sóllúga, vindskeið, aurhlífar
rafmangnsopnun á hlera
leðurinnrétting, xenon-ljós
Verð 4.950.000 kr.
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi á liðnu ári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2006.
3. Ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað félagsins.
4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
5. Breyting á samþykktum: Tillaga um að hækka hlutafé félagsins með
útgáfu nýrra hluta, að fjárhæð 292.000.000 kr. að nafnvirði á genginu
13,7 sem þegar hefur fengist áskrift fyrir. Það leiðir af tillögunni að
hluthafar falla frá áskriftarrétti.
6. Breyting á samþykktum: Tillaga um að hækka hlutafé félagsins með
útgáfu nýrra hluta, að fjárhæð 230.000.000 kr. að nafnvirði á genginu
16,5 sem þegar hefur fengist áskrift fyrir. Það leiðir af tillögunni að
hluthafar falla frá áskriftarrétti.
7. Kosning stjórnar og endurskoðanda.
8. Umræður og atkvæðagreiðslur um önnur málefni sem
löglega eru upp borin.
miðvikudaginn 28. febrúar nk. á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2,
Reykjavík, sal G. Fundurinn hefst kl. 16.00.
1. Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi á liðnu ári.
2. Ársreikningur félagsins fyrir starfsárið 2006.
Auglýsingasími
– Mest lesið
Fangi á Litla-Hrauni var
í gær sýknaður af ákæru fyrir að
hafa í fórum sínum steralyf og
fleiri efni. Héraðsdómur Suður-
lands taldi að ákæruvaldinu hefði
ekki tekist að sýna fram á að
maðurinn hefði átt hátalara, sem
efnin fundust í og var í fanga-
klefa mannsins.
Þegar leitað var í klefa
mannsins fundust um hundrað
töflur og tvö glerhylki af steralyfi
í hátalarakassa við hliðina á
sjónvarpi. Maðurinn sagðist
ekkert kannast við efnin í
hátalaranum, og sagði að annar
maður hefði gefið sér boxið þegar
hann yfirgaf fangelsið.
Sýknaður af
steraákæru
Jón H.B. Snorrason,
aðstoðarlögreglustjóri á höfuð-
borgarsvæðinu, segir enga hættu
á því að Lúkasarmálið þvælist um
í kerfinu.
„Lögreglustjórar geta útkljáð
það sín á milli, hvar er heppilegast
að mál séu rannsökuð. Þetta mál
fer því alls ekki í einhvern stjórn-
lausan sendingaferil á milli emb-
ætta. Væntanlega hefur hann
[Sýslumaðurinn á Akureyri]
samband við það embætti þar sem
hann telur eðlilegast að rannsóknin
fari fram,“ segir Jón.
Fram hefur komið að sýslu-
maðurinn á Akureyri hefur fengið
til meðferðar kæru Helga Rafns
Brynjarssonar, áður meints hunda-
drápara. Sýslumaður efast um að
málið eigi heima fyrir norðan og
kveður brotin tvö aðgreind.
Helgi Rafn býr á Seltjarnarnesi,
brotin voru framin á netinu og ein-
ungis hluti þeirra með norðlensk-
um lyklaborðum.
Aðstoðarlögreglustjóri segir
hins vegar að Lúkasarmálið hafi
verið sent til meðferðar
Sýslumannsins á Akureyri, því
allar upplýsingar um upprunalega
atburðinn voru þar.
Hann segir ljóst að um aðskild
mál sé að ræða. „Þetta meinta
hundsdráp var hins vegar tilkynnt
til lögreglunnar á Akureyri og þar
fór fram rannsókn á því hver hefði
sagt hvað og svo framvegis. Til
dæmis eru þar upplýsingar um
hver hafi komið þessum röngu
upplýsingum af stað.“
Lúkas ekki í stjórnlausan feril