Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 14
Máli útgerðarfélagsins
Dala-Rafns frá Vestmannaeyjum
gegn olíufélögunum Skeljungi,
Olís og Keri, áður Olíufélaginu,
var í gær vísað frá í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Dala-Rafn er eina
útgerðarfélagið sem krafist
hefur skaðabóta vegna samráðs
olíufélaganna. „Þetta kemur
okkur á óvart,“ sagði Hlynur
Halldórsson héraðsdóms-
lögmaður, sem flutti málið fyrir
hönd Dala-Rafns, eftir að
úrskurðurinn lá fyrir.
Ker og Olís kröfðust frávísunar
á málinu og á úrskurður héraðs-
dóms aðeins við um þá kröfu.
Skeljungur gerði ekki kröfu um
frávísun en krafðist sýknu.
Eftir stendur mál Dala-Rafns
gegn Skeljungi en því hefur verið
frestað um ótilgreindan tíma.
„Ég lít svo á að þegar verið er að
vísa máli frá vegna vanreifunar,
eins og gert er í þessu tilfelli, þá
ætti að vísa málinu frá í heild
sinni,“ sagði Hörður F. Harðar-
son lögmaður Skeljungs. Hann
taldi skynsamlegast að krefjast
ekki frávísunar heldur fá frekar
efnislega niðurstöðu í málið eins
fljótt og kostur er. „Það var mat
mitt, og forsvarsmanna Skelj-
ungs, að það væri ekki neinn
grundvöllur fyrir málinu og því
væri best að ljúka því.“
Mál Dala-Rafns byggir á því að
samráð olíufélaganna, á árunum
1993 til og með meirihluta árs
2001, hafi leitt til þess að olíuvið-
skipti hafi verið dýrari en þau
hefðu verið ef fyrirtækin hefðu
ekki haft með sér samráð.
Í úrskurðinum er tekið fram að
óljóst sé af málatilbúnaði Dala-
Rafns hvort fyrir hendi sé „skil-
yrði sameiginlegrar ábyrgðar“ af
hálfu stefndu, Kers og Olís, um
að þeir hafi valdið sama tjóni og
Skeljungur, en Dala-Rafn átti
fyrst og fremst í viðskiptum við
Skeljung á fyrrnefndu tímabili.
Krafa Dala-Rafns byggist á því
að ábyrgðin sé sameiginleg þar
sem öll félögin beri ábyrgðina á
því að hafa haft samráð. „Við telj-
um að félögin eigi að bera sam-
eiginlega ábyrgð á tjóni sem er
afleiðing samráðsins. Eðlilegur
samkeppnismarkaður virkaði
ekki í Vestmannaeyjum á þessum
tíma frekar en annars staðar á
Íslandi,“ sagði Hlynur.
Dala-Rafn krafðist rúmlega 8,3
milljóna króna í bætur en krafan
er byggð á samanburði á verði
milli Íslands og Færeyja á þeim
tíma er samráðið átti sér stað.
„Við ætlum að fara vel yfir
málið en mér finnst líklegt að við
kærum þessa niðurstöðu til
Hæstaréttar,“ sagði Hlynur.
Samráðsmáli Dala-
Rafns vísað frá dómi
Máli útgerðafélagsins Dala-Rafns frá Vestamannaeyjum gegn olíufélögunum
hefur verið vísað frá dómi. Kemur á óvart, segir Hlynur Halldórsson lögmaður
Dala-Rafns. Ekki neinn grundvöllur fyrir málinu, segir lögmaður Skeljungs.
Við teljum að félögin eigi
að bera sameiginlega
ábyrgð á tjóni sem er afleiðing
samráðsins.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Fyrstu tveir etanólbílar
landsins eru til sýnis á bílasýn-
ingu í Perlunni um helgina.
Bílasýningin er í tengslum við
ráðstefnuna Orkugjafar framtíðar-
innar í samgöngum sem hefst á
mánudaginn. Þau bifreiðaumboð
sem bjóða upp á visthæfa bíla
sýna þá á sýningunni. Síðasti
sýningardagur er í dag.
Útblástur koltvísýrings frá
etanólbílum er um áttatíu
prósentum minni en í venjulegum
bensínbíl.
Etanólbílar til
sýnis í fyrsta sinn
Búddamunkar í Búrma (Mjanmar) virðast
vera að taka forystuna í fjöldamótmælum gegn
herstjórninni, sem hefur ráðið lögum og lofum í
landinu áratugum saman. Mótmælin hafa staðið yfir
í nærri mánuð og eru þau fjölmennustu sem orðið
hafa þar í háa herrans tíð.
„Munkarnir eru eina von okkar núna, eins og þeir
hafa alltaf verið í sögu Búrma,“ segir Hla Myint, 75
ára kennari. „Herstjórnin getur auðveldlega brotið á
bak aftur mótmæli stúdenta og almennings. En ef
munkarnir eru kúgaðir með ofbeldi hefur það
venjulega í för með sér neikvæðar afleiðingar og
frekari mótmæli.“
Munkarnir hafa krafist þess að herstjórnin biðjist
afsökunar á að hafa barið hundruð munka sem tóku
þátt í friðsamlegum mótmælum í Pakokko fyrir
hálfum mánuði. Frestur, sem stjórnvöldum var
gefinn, rann út í gær.
Hafi afsökunarbeiðni ekki borist hóta munkarnir
allsherjar mótmælum í dag. Þeir ætla að halda í
mótmælagöngur frá klaustrunum, hætta öllum
samskiptum við stjórnvöld og neita að þiggja
ölmusu frá þeim − sem þykir afar niðurlægjandi
fyrir stjórnvöld.
„Það sem stjórnin gerði í Pakokko er ófyrirgefan-
legt. Munkarnir eru reiðir,“ segir Zin Linn, upplýs-
ingaráðherra í útlagastjórn Búrma, sem hefur
aðsetur í Washington.
„Það sem stendur upp úr
eftir daginn er að stíflan virðist
vera vel byggð,“ sagði Sigurður
Arnalds, kynningastjóri Kára-
hnjúkavirkjunar, eftir fyrsta dag
tækniráðstefnu Landsvirkjunar
um virkjunina.
„Öll hegðun hennar er til fyrir-
myndar. Hún hefur lítið sigið,
steyptir flekar hafa lítið hreyfst og
leki er sáralítill. Niðurstaðan er að
vel hefur tekist til með hönnun og
byggingu stíflunnar.“
Um 160 manns mættu á ráðstefn-
una í gær. Páll Magnússon, stjórn-
arformaður Landsvirkjunar, fjall-
aði um mikilvægi framkvæmdanna
fyrir efnahag landsins og hlýddu
gestir á umfjöllun um hönnun stífl-
unnar.
Í dag verður meðal annars fjall-
að um jarðgangagerð, umhverfis-
vöktun og hvernig staðið hefur
verið að kynningu á verkefninu.
Ráðstefnan er opin öllum, en erind-
in eru flutt á ensku.
Kárahnjúkastífla er fjórða hæsta
stífla sinnar tegundar í heiminum
og er vatnsdýpið við stífluna um
180 metrar. Þá eru veðurfarslegar
aðstæður á framkvæmdasvæðinu
afar krefjandi.
Hefur stíflan því vakið athygli í
hinu alþjóðlega tæknisamfélagi og
fær mikla umfjöllun á erlendum
ráðstefnum og í fagtímaritum.
Virkjun sem vekur athygli
Borgaryfirvöld í
Feneyjum vilja nú banna
brúðkaupsgestum að kasta
hrísgrjónum yfir nýgift brúð-
hjón.
Ástæðan er sú að dúfnafjöldinn
í Feneyjum er orðinn svo mikill
að til vandræða þykir horfa.
Dúfnaskítur þekur fornfræg torg
borgarinnar og gamlar styttur
liggja undir skemmdum.
Hrísgrjónum er að gömlum sið
gjarnan kastað á brúðhjón til að
óska þeim velfarnaðar og
frjósemi, en aukaáhrif í Feneyj-
um eru þau að dúfurnar dafna
góðu lífi á því að gæða sér á
grjónunum.
Hrísgrjón ekki
leyfð lengur
„Við stóðum þarna og
byrjuðum bara að spila og
fylltum upp í eyðurnar eins og
við gátum,“ segir Hrólfur
Sæmundsson söngvari.
Hrólfur, Hilmar
Örn Agnarsson
organisti og
Jóhann Stefánsson
trompetleikari
voru staddir í
dómkirkjunni í
Berlín í mörg
hundruð manna
messu og hugðust
flytja fjögur lög
þegar organistinn
forfallaðist
fyrirvaralaust.
„Kirkjuverðirnir komu til okkar
og sögðu við okkur að við
þyrftum bara að spila eitthvað.
Þetta var ágætis æfing í nótna-
lestri.“ Hrólfur segir þá hafa
bætt við Ave María eftir
Sigvalda Kaldalons og endað svo
á Draumalandinu. Að sögn
Hrólfs gekk messan ótrúlega vel
og þeim var vel fagnað í lokin af
mörg hundruð kirkjugestum.
Björguðu
messu í Berlín
Leiðtogar Ísraela og
Palestínumanna, sem sitja munu
friðarráðstefnu í haust sem
Bandaríkjamenn eru aðalhvata-
mennirnir að baki, munu ekki
leggja þar fram neinar tíma-
mótatillögur. Frá þessu greindi
ísraelski forsætisráðherrann
Ehud Olmert á sunnudag.
Fulltrúar Palestínumanna
brugðust strax við þessum
orðum Olmerts með því að
spyrja hvort það tæki því þá
yfirleitt fyrir þá að sitja ráð-
stefnuna.
Ummælin koma fram fáeinum
dögum áður en von er á Condo-
leezzu Rice, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, á vettvang til að
undirbúa ráðstefnuna sem á að
fara fram í nóvember.
Olmert slær á
framfaravonir