Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 25
Hún ber nafnið Sóley með
réttu; komin af grasalæknum
og knúin köllun til að finna
náttúrunni farveg í betri heilsu
mannfólksins.
„Ætli áhuginn liggi ekki í genun-
um. Ég er komin af miklum grasa-
læknum og síðan ég var lítil hefur
hugur minn leitað í átt til grasa-
lækninga og lækningajurta,“ segir
leikkonan Sóley Elíasdóttir sem
nú stefnir á BS-gráðu frá enskum
grasalækningaskóla á sama tíma
og hún sýður eigin grös til fram-
leiðslu græðandi smyrsla.
„Á unglingsárum stefndi ég á
lyfjafræði en svo tók leiklistin
mig heljartökum. Í dag langar mig
alls ekki í kemíska lyfjafræði
heldur vil tína mín eigin fjallagrös
því náttúran hefur öll svörin,“
segir Sóley sem styðst við gamlar
uppskriftir frá langafa sínum,
Erlingi grasalækni, og langalang-
ömmu sinni, Grasa-Þórunni.
„Öll grös og jurtir sem ég nota í
smyrslin tíni ég í skógi Snorra-
staðalands í Árnessýslu, en þar er
umhverfið hreint, ómengað og líf-
rænt. Það er svo hægt að tína grös
hvar sem er, en þar sem ég bý í
Hafnarfirði í námunda við álver
vil ég ekki taka jurtir úr hafn-
firskri náttúru,“ segir Sóley, en
uppskriftir grasameðalanna hafa
gengið frá manni til manns í fjöl-
skyldu hennar áratugum saman.
„Frændfólk mitt er margt mikl-
ir grasalæknar og ömmusystur
mína, Ástu Erlingsdóttur, þekkja
allir. Þessi gen eru mjög sterk í
mér, ég upplifi þetta sem köllun
og í draumum vitja mín aðilar
sem segja hvað ég þarf að gera,“
segir Sóley sem árum saman
hefur búið til eigin grasameðul
sem hún hefur gefið vinum og
ættingjum.
„Mér fannst kominn tími til að
leyfa almenningi að njóta þess-
ara kraftaverka og stofnaði í
sumar fyrirtækið Sóley – grös og
heilsa. Í gær komu fyrstu vör-
urnar á markað í Heilsuhúsinu,
en það eru smyrslin Græðir og
Kisstu mig, með einföldu i-i
vegna þess að ég hugsa þessi
krem lengra en á Íslandsmarkað.
Þetta eru stórkostlegar vörur
með alhliða græðandi virkni á
brunasár, exem, útbrot, rassa-
bruna á börnum, harða hæla,
hvers kyns þurrk og húðhreistur.
Þær virka strax og gera undra-
verð kraftaverk á til dæmis
bruna. Kisstu mig er frunsu- og
gyllinæðarkrem sem hefur verið
notað öldum saman og útrýmir
frunsum um leið og þær koma,“
segir Sóley, en nafn hennar vísar
til blómaættar með mikinn lækn-
ingarmátt.
„Mér finnst dásamlegt að vera
úti og tína jurtir. Leiklistin verður
að bíða. Ég finn enga köllun til að
fara á svið. Ég hef verið föst í leik-
húsinu í fjórtán ár og átt fjóra
krakka í leiðinni. Leikhússtarfið
er ekki fjölskylduvænt en grasa-
lækningar sameina fjölskylduna.
Það má vel sinna börnum sam-
hliða slíkum heimilisiðnaði,“ segir
Sóley hamingjusöm, þar sem hún
sýður jurtir sem hún er að prófa
fyrir ný grasasmyrsl.
„Ég er að búa til handáburð og
andlitskrem, en Græðir og Kisstu
mig eru meiri lækningakrem. Ég
nota eingöngu lífræn krem sem
ég hef soðið sjálf fyrir sjálfa mig
og hef aldrei verið betri í húð-
inni,“ segir Sóley brosandi og heil-
brigðið uppmálað.
Grösin eru í genunum