Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 34
18. SEPTEMBER 2007 ÞRIÐJUDAGURlh hestar2
ÍLandssambandi hestamannafélaga, LH, eru 46 félög sem eru dreifð um allt land. Skráðir félagar í hestamannafé-lögum eru yfir tólf þúsund. Kannanir hafa leitt í ljós að yfir þrjátíu þúsund Íslendingar stunda hestaíþróttir (út-
reiðar) að staðaldri hér á landi. Hestaíþróttin er bæði almenn-
ings- og keppnisíþrótt. Undir almenningsíþróttina falla útreið-
ar, sem að stórum hluta fara fram á tilbúnum reiðvegum, en
keppnisíþróttin fer fram á keppnisvöllum hestamannafélag-
anna.
Hestaíþróttin hefur átt síauknum vinsældum að fagna síð-
astliðin ár og hefur iðkendum fjölgað jafnt og þétt. Landssam-
band hestamannafélaga er í dag þriðja fjölmennasta sérsam-
bandið innan Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, ÍSÍ, að-
eins fótboltinn og golfið hafa fleiri iðkendur.
Umgengni barna og unglinga við dýr er af hinu góða. Flest-
ir eru sammála um að samvera fjölskyldunnar í hesthúsinu og
við útreiðar hafi forvarnargildi hvað varðar vímuefnanotk-
un unglinga. Hestamennskan hefur nefnilega þá sérstöðu að
þrjár kynslóðir geta auðveldlega stundað hana saman sér til
ánægju og heilsubótar; börnin, pabbarnir og mömmurnar, af-
arnir og ömmurnar.
Hestaíþróttin hefur einnig þá sérstöðu að vera ein af fáum
íþróttagreinum þar sem konur og karlar keppa á jafnréttis-
grunni í sömu keppnisflokkum. Hestaíþróttin er því jafnréttis-
íþrótt í þeim skilningi. Jafnræðið meðal iðkenda er með
mesta móti og kynferði eða aldur skiptir litlu. Þegar kemur að
heimsmetum, þá getur fjórtán ára unglingur slegið gildandi
heimsmet 55 ára manns á jafnræðisgrunni.
LH hefur nú ákveðið í samvinnu við Fréttablaðið að gefa
út sérblað um hestamennsku og dreifa því einu sinni í mán-
uði með þessu víðlesnasta dagblaði landsins. Ég er ekki í nein-
um vafa um að þetta framtak á eftir að hafa jákvæð áhrif á
ímynd hestaíþróttarinnar út á við og nýtast hestamönnum og
hestamannafélögunum við að koma sjónarmiðum sínum og
réttlætismálum á framfæri. Á því er full þörf.
Málgagn
hestamanna
Haraldur Þórarinsson, bóndi
á Laugardælum við Selfoss,
er formaður Landssambands
hestamannafélaga. Hann
hefur skýra og ákveðna sýn á
hvað LH stendur fyrir.
„Markmið LH hefur frá stofn-
un þess verið að stuðla að bættri
meðferð hesta, ræktun íslenska
hestsins og að efla reiðhesta-
íþróttina. LH ber að gæta hags-
muna félaganna og standa vörð
um hestamennskuna sem menn-
ingararf og lífsstíl. Frá upphafi
hefur LH verið í nánu samstarfi
við Bændasamtök Íslands. Þessi
samtök stóðu saman að fyrsta
Landsmóti hestamanna 1950 og
svo hefur verið síðan.“
HESTVÆN SVEITARFÉLÖG
NÁ FORSKOTI
Hver eru helstu baráttumál LH
þessi misserin?
„Stóru málin eru æskulýðs-
málin, öryggismál og skipulags-
og reiðvegamál, bæði í dreifbýli
og þéttbýli. Sem betur fer hefur
okkur orðið verulega ágengt í
reiðvegamálum og þar á Vega-
gerðin stóran þátt. Hestamennsk-
an er í svo örum vexti, bæði sem
áhugamál og atvinnugrein. Nokk-
ur sveitarfélög hafa sýnt fram-
sýni; sjá hvaða verðmæti eru
fólgin í því að skapa góða aðstöðu
fyrir hestamennsku. Ég er viss
um að þessi sveitarfélög munu
hagnast á þessu til lengri tíma
litið og ná ákveðnu forskoti í að
laða til sín nýja íbúa.“
MENNTAMÁLIN Í MÓTUN
„LH hefur skyldum að gegna
gagnvart menntun og fræðslu í
hestamannafélögunum, og grunn-
og framhaldsskólum landsins. Allt
frá því að ÍSÍ lagði til við sín sér-
sambönd að þau létu búa til náms-
efni fyrir sína íþróttagrein hefur
LH unnið að því verkefni í sam-
starfi við fagaðila. Haustið 2006
var sett á laggirnar námsbraut
í hestamennsku við Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, FSU, með full-
tingi menntamálaráðuneytisins.
Henni var strax vel tekið af nem-
endum og þar eru nú 42 nemend-
ur, 26 á fyrra ári og 16 á öðru ári.
Sigurður Sigursveinsson, skóla-
meistari FSU, telur námsbraut-
ina góðan feng fyrir skólann. Í
Fjölbrautaskóla Norðvesturlands
á Sauðárkróki, FNV, hefur hesta-
mennska verið valfag í allnokk-
ur ár. Við vonumst til að það verði
sett upp hestabraut í fleiri skól-
um í náinni framtíð.“
ÆSKULÝÐSMÁLIN Á OKKAR KÖNNU
Skarast þetta nám ekkert við
nám í hestamennsku á Hólum og
á Hvanneyri?
„Nei, alls ekki. Námið í land-
búnaðarskólunum er á háskóla-
stigi og þar útskrifast tamninga-
menn og reiðkennarar. Hlutverk
LH er hins vegar að stuðla að
námi fyrir börn og unglinga og
hinn almenna hestamann. Þess
má geta að LH, FSU og mennta-
málaráðuneytið hafa skrifað
undir viljayfirlýsingu þess efnis
að komið verði á fót námi í hesta-
fræðum sem er hliðstætt iðnnámi
en þær hugmyndir eru enn þá á
frumstigi. En þetta er bara fátt af
mörgu, það eru mörg skemmtileg
verkefni fram undan,“ segir Har-
aldur Þórarinsson að lokum.
Skemmtileg verkefni
fram undan hjá LH
Haraldur Þórarinsson
Kennarar og nemendur á hestabraut FSU. Fremst: Magnús Lárusson, Hugrún Jóhannsdóttir, þá Sigurður Sigursveinsson skóla-
meistari, Arndís Björk Brunjólfsdóttir, kennari við hestabraut FNV, og Freyja Hilmarsdóttir. MYND/JENS EINARSSON
Það er ævinlega mikið stuð á uppskeruhátíð hestamanna og þar mætir
fólk í sínu fínasta pússi, það gerir alla vega hin þekkta hestakona Sig-
ríður Pjetursdóttir. MYND/HANNES SIGURJÓNSSON
„Það er brýn nauðsyn að auka
framlög til reiðvegagerðar veru-
lega frá því sem nú er, annars gæti
farið svo að takmarka verði um-
ferð hesta á ákveðnum svæðum,“
segir Halldór H. Halldórsson, for-
maður samgöngunefndar LH.
Halldór segir að framlag rík-
isins til reiðvegagerðar sé ekki
í samræmi við þær tekjur sem
hestatengd ferðaþjónusta afli
ríkissjóði.
„Samkvæmt upplýsingum frá
Ferðamálaráði komu 422 þúsund
ferðamenn til Íslands í fyrra og
gert er ráð fyrir að þeim fjölgi í
460 þúsund á þessu ári.
Rannsóknir Hagstofunnar og
Ferðamálaráðs benda til að um 20
prósent ferðamanna sæki sér af-
þreyingu í hestatengdri ferðaþjón-
ustu. Miðað við tölur frá Hagstof-
unni frá árinu 2001 um tekjur af
hestatengdri ferðaþjónustu, sem
þá voru sjö og hálfur milljarður,
gætu þær verið um 14,3 milljarð-
ar fyrir árið í ár.
Á sama tíma er framlag til reið-
vega 60 milljónir á ári næstu árin,“
segir Halldór.
Takmörk á hestaumferð Uppskeruhátíð LH og Félags hrossabænda verður að venju haldin á Broadway og í þetta
sinn laugardaginn 10. nóvember næstkom-
andi.
Veislustjóri verður hinn landskunni sjón-
varpsmaður Gísli Einarsson sem eins og allir
vita hefur sérstakan áhuga á landbúnaði og
öllu sem þrífst í hinum dreifðari sveitum
landsins. Hann mun því örugglega finna sam-
hljóm með hestamönnum og kitla hláturtaug-
ar þeirra.
Að venju verður ræktunarmaður ársins út-
nefndur og eftirfarandi knapaverðlaun verða
veitt:
Uppskeruhátíð 10. nóvember
Málgagn Landssambands hestamannafélaga
Útgefandi: Landssamband hestamannafélaga
Heimilisfang: Íþróttamiðstöðin, Engjavegi 6, 104 Reykjavík
Netfang: lh@isisport.is Sími: 514-4030
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Jens Einarsson
Netfang: jenseinars@simnet.is Sími: 862-7898
Auglýsingar: Fréttablaðið/Bjarni Þór Sigurðsson
sími: 512-5435 gsm. 822-5062
HELSTU SAMSTARFSAÐILAR LH ERU:
MATSEÐILL KVÖLDSINS
Forréttur: Maríneraðir sjávarréttir á spjóti
Aðalréttur: Kryddhjúpaður lamba-
hryggvöðvi með fondant-kartöflum
Eftirréttur: Tveggja laga súkkulaði-
frauð með suðrænni berjasósu
Miðaverð í mat og
skemmtun er 6.900 kr.
Miðaverð á dansleik 1.600 kr.
Miða- og borðapantanir eru á
Broadway í síma 533-1100 — og
munið að fyrstir koma fyrstir fá!
Íþróttaknapi ársins
Gæðingaknapi ársins
Kynbótaknapi ársins
Skeiðknapi ársins
Efnilegasti knapi ársins
Knapi ársins
Vilhjálmur Skúlason,
varaformaður
Landssambands hestamannafélaga.
lh hestar
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSTÍLL