Fréttablaðið - 18.09.2007, Qupperneq 58
ATH kl. 22.15
Í djassþættinum Fimmfjórðu á Rás 1 í kvöld má heyra upptökur frá tónleikum
„Straight-Ahead“ kvartettsins á djassklúbbnum Múlanum hinn 5. sept sl.
Kvartettinn er skipaður gítarleikurunum Andrési Þór Gunnlaugssyni og Jóni
Páli Bjarnasyni, bassaleikaranum Þorgrími Jónssyni og trommuleikaranum
Einari Val Scheving. Á efnisskrá eru söngdansar og djassklassík eftir Cole
Porter, George Gershwin, Charlie Parker o.fl. Umsjónarmaður er Lana Kolbrún
Eddudóttir.
Nýir leiknir þættir í röð um
íslenskan heim, íslenskar aðstæð-
ur, hljóta að vekja eftirtekt sjón-
varpsáhorfenda. Þegar ljóst er að
þungi í innlendri framleiðslu hjá
Ríkissjónvarpinu verður á ódýr-
ari studíóþætti eftir reyndum
formúlum, ætti keppinauturinn
(sem reyndar gefur út blaðið sem
þú heldur nú á) að reyna eitthvað
annað. Á sunnudag var fyrsti
þátturinn af Næturvaktinni
sýndur áskrifendum Stöðvar 2.
Næturvaktin er hálftíma leiknir
þættir. Vandað er til fram-
leiðslunnar í alla staði þótt tæp-
lega sé hægt að kalla röðina
sitkom (situation comedy er það
kallað á ensku). En varla er hægt
að kalla þættina því nafni, þeir
eru afleidd framleiðsla af
gömlum stofni en svipaða til-
hneigingu hefur mátt sjá víða í
nágrannalöndum okkar. Allar
aðalpersónur sem voru kynntar á
sunnudag eru annað og meira en
skopfígúrur, þótt sum atvikin
ættu að vera skopleg. Yfirbragðið
er annað: rannsókn á ólíkum
persónum – þetta er nánast
drama.
Víst þekkjum við mörg hin
miðaldra nöldursegg og
ofbeldismann sérsettra regla á
vinnustöðum. Gervi Jóns Gnarr
var að vísu nokkuð kunnuglegt úr
spjaldskrá hans yfir ólíkar
persónur sem hann hefur smíðað
á liðnum áratug. Eins eru þættir
úr hinum vongóða poppara
kunnuglegir í túlkun Péturs. Það
er helst nýliðinn sem er óráðin
stærð í þessu mengi. Nú er allt of
snemmt að segja hvernig þetta
tekst til – við sáum aðeins inngang
á sunnudag og vitum raunar ekki
mjög mikið. En allt var þetta vel
gert, lýsing og taka til fyrir-
myndar, hljóð afbragð, leikur
látlaus og á alvarlegum nótum
þar sem áhorfandanum var gefið
gott rými fyrir sitt innlegg, sína
móttöku. Útlit er gráðu hærra en
mátt hefur sjá í íslensku efni og
er nóg að minna á þann kröfulitla
umbúnað sem Spaugstofan sættir
sig við á móti glæsilegu útliti, til
dæmis á Stelpunum.
Nú er bara að sjá hvernig þetta
þróast. Það er engin ástæða til að
fá stjörnur í augun en það sem
komið er býður manni í grun að
Næturvaktin sæti verulegum
tíðindum í framþróun íslensks
sjónvarpsefnis og sýni með skýr-
um hætti að Ragnar Bragason
ætlar að halda áfram að ná tökum
á hinum erfiða miðli sögulistar á
tjaldi og skjá.
Vinna að næturlagi
Á föstudagskvöldið er frum-
sýning í Þjóðleikhúsinu í
Kassanum við Lindargötu
á nýju verki eftir Bjarna
Jónsson. Óhapp kallar
hann verkið og það gerist
í samtíma okkar, á heimili
ungra hjóna.
Óhapp! er þriðja verk Bjarna
Jónssonar sem Þjóðleikhúsið setur
upp en fyrr voru sýnd Kaffi og
Vegurinn brennur. Bjarni vakti
fyrst athygli sem leikskáld þegar
hann vann til verðlauna í leikverka-
samkeppni Leikfélags Reykjavíkur
við opnun Borgarleikhússins fyrir
hartnær átján árum. Hann var þá
ungur maður frá Akranesi en hann
hefur einnig samið verk fyrir
heimamenn þar. Hann sótti
menntun í leikhúsfræðum til Þýska-
lands og hefur frá því hann sneri
heim snemma á tíunda áratugnum
starfað að list sinni, bæði sem
þýðandi úr þýsku og sem höfundur
leikgerða bæði fyrir svið og
hljóðvarp. Hann hefur þýtt fjölda
verka fyrir svið, þar á meðal eftir
Thomas Bernhard, Mark Ravenhill,
Tennessee Williams, Goethe og
David Giselmann. Hann hefur
einnig þýtt nokkrar skáldsögur úr
þýsku og ensku, þar á meðal hina
stóru sögu Gunthers Grass, Blikk-
trommuna. Hann vann leikgerðir
eftir sögum Böðvars Guðmunds-
sonar, Híbýli vindanna og Lífsins
tré, fyrir Borgarleikhúsið og verkin
Sölumaður deyr eftir Arthur Miller
og Ævinlega eftir samnefndri sögu
Guðbergs Bergssonar fyrir Útvarps-
leikhúsið, auk verðlaunaðra leik-
gerða eftir Íslenskum aðli og sögu
Gyrðis Elíassonar, Svefnhjólinu,
sem hann vann með Múm og hlaut
fyrir verðlaun Norrænna útvarps-
stöðva 2004. Bjarni situr í stjórn
LOKAL, nýrrar alþjóðlegrar leik-
listarhátíðar sem nú er í start-
holunum.
Óhapp! er óvanalegt stofudrama
þar sem ólíkir heimar skarast en
Bjarni hefur í verkum sínum notað
það form sem hann sprengir upp á
sinn hátt.
Við lítum inn til ungra hjóna sem
glíma við fortíðina og hvort annað,
kennaraverkfall setur óvænt strik í
reikning sjónvarpsstjarna, sálfræð-
ingurinn leggur línurnar og kokkur-
inn töfrar fram unaðslegt lamba-
kjöt. Hér er á ferðinni „heimilisleg“
umfjöllun um þjóðfélag sem er á
kafi í sjálfu sér og ósköp kunnuglegt
fólk sem er ekki allt sem það
sýnist.
Bjarni segir þetta tilraun til að
henda reiður á hvað er að gerast
fyrir augum okkar: „Hvað er í
veruleikanum sem oft er eins og
sýndarveruleiki og hvernig brýr
eru milli tveggja heima. Ég vil
kanna hvernig leikhúsið getur
skýrt þessa heima fyrir okkur sem
hið leikræna getur svo vel.“
Leikstjóri sýningarinnar er
Stefán Jónsson en um leikmynd og
búninga sér Börkur Jónsson. Verkið
gerist á smekklegu heimili þar sem
innanstokksmunir eru frá Eirvík og
BoConcept en það er tekið sérstak-
lega fram í fréttatilkynningum
Þjóðleikhússins og er ný stefna þar
á bæ. Hljóðmynd gerir Frank Hall
en ljósahönnun annast Lárus Björns-
son. Meðal leikara í sýningunni eru
Atli Rafn Sigurðarson, Katla
Margrét Þorgeirsdóttir, Dóra
Jóhannsdóttir, Elma Lísa Gunnars-
dóttir og Stefán Hallur Stefánsson.
Efnt er til forsýninga á verkinu
og er sú fyrri í kvöld, en frumsýning
er sem fyrr segir á föstudag: hvað
skyldi skáldið vilja okkur með
spegilmyndinni sem þá verður
brugðið upp?
Gerðuberg hefur verið opið í sumar, eins og öll fyrri
sumur frá því þessi merkilega menningarstofnun
reis um leið og byggðin í Breiðholtinu. Gerðuberg er
einstakt fyrirbæri í borgarsamfélaginu; ekkert hverfi
í Reykjavík á sér aðra sambærilega stofnun. Og nú er
nýr vetur fram undan.
Haustdagskráin hefst með pompi og prakt næsta
laugardag, 22. september. Þá verða opnaðar tvær
sýningar; Handverkshefð í hönnun í samstarfi við
Heimilisiðnaðarfélag Íslands og Handverk og hönnun,
og í Boganum mun Guðmunda S. Gunnarsdóttir opna
sýninguna Úr ríki náttúrunnar.
Á sýningunni Handverkshefð í hönnun sýna 34
hönnuðir, lista- og handverksfólk verk sem öll hafa
með einhverjum hætti tengingu við hefðir í íslensku
handverki. Á sama degi verður opnuð sýning undir
sama nafni í Norræna húsinu en þar má sjá verk
nemenda á öllum skólastigum. Sýningarnar eru
haldnar í tilefni af Norrænu heimilisiðnaðarþingi
sem haldið verður dagana 26.-30. september á Grand
hótel í Reykjavík en um það má frekar fræðast á vef
félagsins: www.heimilisidnadur.is. Á fyrstu sýningu
haustsins í Boganum sýnir Guðmunda S. Gunnarsdóttir
alþýðulistakona málverk og myndverk úr rekaviði og
steinum og ber sýningin yfirskriftina Úr ríki náttúr-
unnar. Ertu með eitthvað NÝTT á prjónunum? er
yfirskrift tveggja námskeiða í prjóni sem boðið er
upp á í samstarfi við Heimilisiðnaðarfélag Íslands.
Þar gefst byrjendum og lengra komnum tækifæri til
að læra að prjóna eftir kúnstarinnar reglum.
Svo haldið sé áfram með þjóðlegar hefðir þá ber að
geta þess að Kvæðamannafélagið Iðunn býður öllum,
sem áhuga hafa, að koma og kveða í Gerðubergi.
Fyrsta kvæðalagaæfingin fer fram miðvikudags-
kvöldið 4. október kl. 20 og fyrsti fundurinn fer fram
föstudagskvöldið 6. október kl. 20. Þeir sem vilja
kynna sér starfsemi félagsins geta kíkt á vefsíðuna
www.rimur.is.
Frönsk musett- og valssveifla í bland við heims- og
djasstónlist mun hljóma á tónleikum hjá Tríói Vadims
Fedorov 17. október. Tríóið skipa Vadim Fedorov á
harmoniku, Gunnar Hilmarsson á gítar og Leifur
Gunnarsson á kontrabassa. Á Degi hljóðfærisins mun
fiðlan ráða ríkjum en dagskráin er að venju sett upp í
samstarfi við Félag íslenskra tónlistarmanna. Lands-
lið fiðluleikara býður upp á fjölbreytta og metnaðar-
fulla dagskrá fyrir alla fjölskylduna.
Um miðjan nóvember tekur við önnur sýning í Bog-
anum en þá mun Þorgrímur Kristmundsson alþýðu-
listamaður sýna landlagsmálverk sem hann hefur
málað á síðustu árum.
Í lok nóvember mun Sigrún Eldjárn sitja fyrir svör-
um á Ritþingi Gerðubergs. Stjórnandi þingsins er
Sigþrúður Gunnarsdóttir og í hlutverki spyrla eru
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson og Margrét
Tryggvadóttir. Þá verður opnuð sýningin Allt í plati!
þar sem börn og foreldrar fá að ganga inn í söguheim
Sigrúnar. Sama dag verður opnuð hin árlega sýning,
Þetta vilja börnin sjá!, þar sem sýndar verða
myndskreytingar úr íslenskum barnabókum sem
komið hafa út á þessu ári og keppa þær um Dimmal-
imm-verðlaunin sem afhent verða 6. desember. Átta
ára skólabörnum verður boðið upp á leiðsögn um
báðar sýningarnar ásamt spennandi dagskrá í sam-
starfi við Borgarbókasafnið. Og þá er ekki allt upptal-
ið sem verður í boði Gerðubergs til hátíða. Elísabet
Bjarklind Þórisdóttir er forstöðukona Gerðubergs.
Sýningar í Gerðubergi eru opnar virka daga frá kl.
11-17 og um helgar frá kl. 13-16. Aðgangur ókeypis.
Nánari upplýsingar um viðburði er að finna á
heimasíðu Gerðubergs, www.gerduberg.is -
Haust í Gerðubergi
Bláir skuggar
SIGURÐUR FLOSASON
TÓNLEIKAR
FÍH salnum Rauðagerði
Fös. 21. sept. kl. 20:30
Forsala: midi.is
PÉTUR ÖSTLUND JÓN PÁLL BJARNASON ÞÓRIR BALDURSSON