Fréttablaðið - 18.09.2007, Page 62
www.SAMbio.is 575 8900
KEFLAVÍK
AKUREYRIÁLFABAKKA
SELFOSSIKRINGLUNNI
BRATZ THE MOVIE kl. 8 L
KNOCKED UP kl. 8 - 10:30 12
DISTURBIA kl. 10:10 12
BRATZ THE MOVIE kl. 6 L
VACANCY kl. 8 -10 12
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 10 L
VEÐRAMÓT kl. 8 14
MR. BROOKS kl. 5:30 - 8 - 10:30 16
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30
BRATZ kl. 5:30 - 8 - 10:30 L
KNOCKED UP kl. 5:20 - 8 - 10:40 12
DISTURBIA kl. 8 - 10:30 14
ASTRÓPÍÁ kl. 6 - 8 - 10:10 L
ASTRÓPÍÁ kl. 6
RATATOUILLE M/- ÍSL TAL kl. 5:30 L
VIP
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16
BRATZ kl. 5:30 - 8 L
LICENSE TO WED kl. 6 - 8 7
ASTRÓPÍÁ kl. 6 L
BOURNE ULTIMATUM kl. 10 14
TRANSFORMERS kl. 10:30 10
MR. BROOKS kl. 8 - 10:30 16
LICENSE TO WED kl. 8 7
BOURNE ULTIMATUM kl. 10:10 14
DIGITAL
VIP
Allir eiga sín leyndarmál.
Óvæntasti sálfræðitryllir ársins.
Mynd í anda Clueless
og Mean Girls.
Skemmtilegustu vinkonur í heimi eru mættar.
Ertu að fara að gifta þig?
Þá viltu alls ekki lenda í honum!!!
Drepfyndin gamanmynd með
hinum eina sanna Robin Williams
og ungstirninu Mandy Moore.
Langmest sótta myndin á Íslandi í dag
SÍMI 462 3500SÍMI 530 1919
SÍMI 551 9000SÍMI 564 0000
SÝNINGARTÍMAR GRÆNA LJÓSSINS
16
14
14
12
14
14
HAIRSPRAY kl. 5.50 - 8 - 10.20
KNOCKED UP kl. 8 - 10.20
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 5.50
14
16
14
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 6
ASTRÓPÍA kl. 6 - 8 - 10.10
BOURNE ULTIMATUM kl. 8 -10.30
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
KL. 8 Sicko
KL. 10.30 Sicko
VACANCY kl.6 - 8 - 10
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8 - 10.20
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl.6
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl.6 - 8 - 10
-A.F.B. Blaðið
ÓHUGNANLEGASTI
SPENNUTRYLLIR ÁRSINS!
HAIRSPRAY kl. 5.30 - 8 - 10.30
HAIRSPRAY LÚXUS kl. 5.30 - 8 - 10.30
VACANCY kl. 8 - 10
VEÐRAMÓT kl. 5.40 - 8
KNOCKED UP kl. 8 - 10.40
BRETTIN UPP ÍSL. TAL kl. 4 - 6
THE SIMPSONS MOVIE ENSKT TAL kl. 3.45
THE SIMPSONS MOVIE ÍSL. TAL kl. 3.45
RUSH HOUR kl. 5.50 - 10.20
EF ÞEIM TEKST EKKI AÐ SLEPPA ÞÁ
VERÐA ÞAU FÓRNARLÖMB Í
"SNUFF" MYND.
- L.I.B., Topp5.is
- bara lúxus
Sími: 553 2075
HAIRSPRAY kl. 5.30, 8 og 10.30 L
KNOCKED UP kl. 6 og 9 14
DISTURBIA kl. 5.45 og 10.20 14
THE BOURNE ULTIMATUM kl. 8 14
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.laugarasbio.is - Miðasala á
Hafnfirska hljómsveitin
Jakobínarína hitar upp fyr-
ir bresku rokkarana Kaiser
Chiefs á mánaðarlangri
tónleikaferð um Evrópu
sem hefst 29. október.
„Þetta verður mjög gaman. Við
förum til Evrópu en við höfum
ekki túrað þar áður,“ segir Gunn-
ar Ragnarsson, söngvari Jakobín-
arínu, en hljómsveitin hitar upp
fyrir Kaiser Chiefs á Evróputúr í
næsta mánuði. „Við spilum á mjög
stórum stöðum fyrir aldrei færri
en þrjú þúsund manns þannig að
þetta er ekkert nema hið besta
mál.“ Gunnar segir þá félaga ekki
vera aðdáendur Kaiser Chiefs en
er engu að síður ánægður með
þetta tækifæri.
Sveitirnar spila í Þýskalandi,
Sviss, Austurríki, Hollandi,
Frakklandi og Englandi. Á meðal
þekktustu laga Kaiser Chiefs,
sem spilaði á síðustu Airwaves-
hátíð, eru Ruby, I Predict a Riot
og Everyday I Love You Less and
Less. Fram að tónleikaferðinni
spilar Jakobínarína á fjölda tón-
leika í Bretlandi með hljómsveit-
unum To My Boy og The Cribs.
Auk þess spilar sveitin á Airwa-
ves 19. október.
Jakobínarína fær fjórar og
hálfa stjörnu af fimm möguleg-
um fyrir væntanlega plötu sína
The First Crusade á tónlistar-
síðunni Gigwise.com. Er henni
líkt við sænsku rokksveitina The
Hives. Í dómnum segir að Jakob-
ínarína semji frábær pönk-indí
lög og spili eins og sönn uppreisn-
arungmenni sem orðin eru þreytt
á leiðinlegu úthverfalífi sínu.
„Þeir hljóma eins og The Hives
hafi verið sleppt lausri í sælgæt-
isbúð. Hjá þeim snýst allt í æðis-
lega blöndu af poppuðum melód-
íum og snörpum gítarleik,“ segir í
dómnum.
Jakobínarína gefur út smáskíf-
una His Lyrics Are Disastrous
næsta mánudag. Platan sjálf
kemur síðan út 1. október.
Kynngimagnaður Anderson
Það var troðfullt Háskólabíó sem
tók á móti Jethro Tull á laugar-
dagskvöldið. Hljómsveitin var
stofnuð fyrir fjörutíu árum og
það sást á áhorfendunum að
margir þeirra höfðu fylgt henni
frá fyrstu tíð. Jethro Tull var á
tónleikunum skipuð þeim Ian
Anderson sem söng spilaði á
flautu, gítar og munnhörpu,
bassaleikaranum David Goodier,
trommuleikaranum Doane Perry,
gítarleikaranum Florian Opahle
og John O‘Hara sem spilaði á
hljómborð og harmónikku. Allir
meðlimirnir eru nýliðar í Tull
fyrir utan auðvitað Ian sjálfan og
Doane Perry sem hefur verið í
sveitinni í aldarfjórðung. Upp-
runalegi gítarleikarinn Martin
Barre, sem spilaði með Tull á
fyrri helmingi yfirstandandi tón-
leikaferðalags, var ekki með, en í
stað hans kominn hinn þýski 23
ára gamli Florian. Hann var
aðeins 19 ára þegar hann byrjaði
að vinna með Ian Anderson. Þrátt
fyrir ungan aldur er hann spreng-
lærður, nam m.a. hjá Al
DiMeola.
Tónleikarnir hófust á laginu
Someday The Sun Won’t Shine
For You, blús af fyrstu plötu Tull
sem Ian og Florian spiluðu saman
tveir einir og strax í fyrsta lagi
sýndi Ian stjörnutakta á munn-
hörpuna. Næst kom My Sunday
Feeling af sömu plötu og svo hitt-
arinn Living In The Past. Það
rann upp fyrir mér þegar það
leið á tónleikana að Ian er algjör-
lega einstakur í rokksögunni.
Lagasmíðarnar eru sambland af
ólíkri tónlist; - rokki, þjóðlögum,
djassi og klassík og flautuleikur-
inn og sviðstilþrifin hjá for-
sprakkanum gera hann ólíkan
öllum öðrum.
Jethro Tull spilaði mörg af
sínum þekktustu verkum fyrir
hlé, m.a. Thick as a Brick, Jack-
In-The-Green, Mother Goose,
Sweet Dream og Bourré, en líka
eitt nýtt lag, The Donkey & The
Drum.
Allir meðlimirnir stóðu sig vel,
en Jethro Tull stendur og fellur
að sjálfsögðu með Ian sjálfum.
Hann er mikið sviðsdýr, segir
sögur og brandara á milli laga,
sveiflar sér á öðrum fæti og
hleypur um sviðið með þverflaut-
una. Söngröddin er aðeins farin
að gefa sig eins og hjá fleiri söng-
vurum sem hafa verið jafn lengi
að, en áhuginn og ákefðin bæta
það margfalt upp. Hann gefur sig
hundrað prósent í sjóið og það er
unun að fylgjast með honum fara
hamförum á flautunni.
Á meðal hápunkta eftir hlé
voru lögin Nothing Is Easy, Buda-
pest og America, en útgáfan af
því lagi er fengin frá Keith
Emersson og hljómsveitinni Nice
og var sérstaklega tilþrifamikil
með ótal stefjum úr bandarískri
tónlist og mögnuðu samspili
þverflautu og gítars. Samspil
Ians og Florians á tónleikunum
var reyndar oft mjög skemmti-
legt. Frægasta Jethro Tull lagið
Aqualung var flutt í óhefðbund-
inni og frekar lágstemmdri
útgáfu og þó að það hafi verið
flott var það ekki sá hápunktur
sem það hefði kannski orðið ann-
ars.
Eftir uppklapp tók sveitin svo
eitt lag í viðbót og eftir átján lög
og rúma tvo tíma héldu tónleika-
gestir á braut, sáttir að sjá flestir
og rúmlega það.
Ondricek til Íslands
David Ondricek, einn vinsælasti
leikstjóri Tékklands, ætlar að
svara spurningum á frumsýn-
ingu nýjustu myndar sinnar,
Grandhotel, á alþjóðlegri
kvikmyndahátíð í Reykjavík sem
hefst 27. september.
Frumlegar gamanmyndir
Ondriceks hafa slegið hvert
aðsóknarmetið á fætur öðru í
Tékklandi. Þrjár nýjustu myndir
hans verða sýndar á kvikmynda-
hátíðinni og verður Ondricek
sérlegur gestur hennar. Kona
Ondriceks, leikkonan Klára
Issová, leikur aðalhlutverkið í
Grandhotel og mun hún einnig
sækja frumsýningu myndarinn-
ar. Issová er með þekktustu leik-
konum Tékklands um þessar
mundir.