Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 48
Lyfja Lágmúla Lyfja Smáratorgi Opið 8-24 alladaga - Lifið heil NÝR CORSA Fáir bílar hafa hlotið jafn margar viðurkenningar og nýr Opel Corsa* * ESP skriðvörn/stöðugleikastýring - 6 loftpúðar - Aftengjanlegur loftpúði fyrir framsæti Fjarstýring fyrir hljómtæki í stýri - Útvarp með geislaspilara, spilar MP3 - „Aux“ tengi í hljómtæki - Aðdráttarstýri - Geymsluskúffa undir farþegasæti Verð 1.590.000 Verð 1.850.000 Beinskiptur 1.2 L Sjálfskiptur 1.4 L Bíll ársins 2007 - What Car? - England „Best in Class“ - Channel 4 Cars - England Bíll ársins 2007 - Samtök bílablaðamanna (MKD) - Danmörk Fjölskyldubíll ársins 2007 - Samtök bíleigenda - Belgía 2. sæti „Car of the Year“ 2007 í Evrópu 19.523 á mán uði ** ** Bílasamningur miðað við 20% útborgun og eftirstöðvar í 84 mán. Íslendingar hafa notast við margs konar gjaldmiðil: Álnir vaðmáls, merkur silfurs, kúgildi, jarðarhundruð, ríkisdali, skild- inga, spesíur, danskar krónur, íslenskar krónur og nú er talað um að prófa hvort evru muni fylgja meiri gæfa en krónu. hefur margt skynsamlegt verið sagt um pen- inga, einkum af fólki sem ekki starfar í fjármálageiranum, og gæti verið gott að hafa til hlið- sjónar í þeirri aura-síbylju sem á okkur dynur. Peningar eru hismi margra hluta en ekki kjarni. Þeir færa okkur mat en ekki matarlyst, lyf en ekki heilsu, kunningja en ekki vini, þjónustu en ekki tryggð, gleðistundir en ekki frið né hamingju. (Henrik Ibsen). Peningar eru afstrakt- hliðin á mannlegri hamingju; sá sem ekki kann að njóta raunveru- legrar hamingju einbeitir sér að peningum. (A. Schopenhauer). Þegar ég eignast smápening kaupi ég bækur. Ef eitthvað er afgangs kaupi ég mat. (Erasmus). Hinn raunverulegi mælikvarði á hversu ríkur þú ert er hvers virði þú værir ef þú tapaðir öllum pen- ingunum þínum. (N.N.). Eina ástæðan fyrir því að amerískar fjölskyldur skuli ekki eiga fíl er sú að þeim hefur aldrei verið boðið að eignast fíl á afborgun- um. (Mad Magazine). Aðeins þegar síðasta tréð er dautt og síð- asta áin hefur verið menguð og síðasti fiskurinn veiddur verður okkur ljóst að við getum ekki étið peninga. (Orðtæki Cree-Indí- ána). Mig mundi langa til að lifa eins og fátæklingur – en með nóga peninga. (Pablo Picasso). Viðskipti eru sú list- grein að geta náð peningum úr vasa annarra án þess að beita ofbeldi. (Max Amsterdam). Ef konur væru ekki til hefðu allir heimsins peningar enga þýðingu. (A. Onassis). Milljarður hér og milljarður þar – og fyrr en varir er maður farinn að tala um alvöru peninga. (Everett Dirksen). Það eina sem ég sé við peningamenn eru peningarnir þeirra. (Lafði Astor). Peningar eru betri en fátækt – þó ekki sé nema af hag- fræðilegum ástæðum. (Woody Allen). Peningar eru góður þjónn en harður húsbóndi. (Alex- andre Dumas yngri). Evra eða króna?

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.