Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 16
Foringi fasistastjórnar Þrjátíu ár eru í dag frá því Samtök áhugafólks um áfengis- og vímuefna- vandann voru stofnuð. Þau eru þekkt undir skamm- stöfuninni SÁÁ og eru fjölmenn almannasamtök, stofnuð af vímuefnafíklum sem höfðu fengið lækningu erlendis og vildu færa meðferðina heim. Þau hafa gert mörgum gott á leið sinni og haft víðtæk áhrif í samfélaginu. SÁÁ fagnar afmælinu með viðamikilli ráðstefnu um fíkn. Hún hefst í dag og stendur fram á miðvikudag. Ráðstefnan er sérstaklega ætluð fagaðilum en allt áhugafólk um áfengis- og vímuefnavandann er vel- komið enda er boðið upp á fyrirlestra ætlaða almenn- ingi og umræður með þátttöku sérfræðinga og hagsmunaaðila. Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, ávarpar ráðstefnugesti og setur samkomuna nú klukkan 9 að morgni og áður en fyrirlestrar um fíkn hefjast leikur Peter Maté píanóleikari af list í fimmtán mínútur. Dagurinn í dag er helgaður áfengisfíkn. Á morgun er örvandi vímu- efnafíkn á dagskrá og á miðvikudaginn er fókusinn settur á kannabisfíkn og meðferð fyrir unglinga. Fjölmargir kunnáttu- menn, læknar, sálfræðingar og ráðgjafar, bæði ís- lenskir og erlendir stíga í pontu og miðla af þekk- ingu sinni á hinum ógn- andi fíknsjúkdómum, af- leiðingum þeirra og fylgi- kvillum. Fólk sem gegnir opin- berum störfum í okkar samfélagi eins og Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri, Stefán Eiríksson lögreglustjóri, Jórunn Frímannsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, og Þór- ólfur Þórlindsson, forstjóri Lýðheilsustöðvar, tekur einnig virkan þátt í umræðunni. Vildu færa með- ferðina heim Það verður að teljast tímanna tákn að gamlir beitningaskúrar við Vita- torg í Sandgerði verða nú miðstöð nýs lista-og menningarfélags í bænum sem hefur hlotið nafnið Listatorg. Formaður þess er Guðlaug Finnsdóttir sem fræddi blaðamann fúslega um gang mála. „Félagið er stofnað til að styrkja og efla menningarlíf í Sandgerði. Það hefur þegar fengið frábært húsnæði við torg í hjarta bæjarins og því kom nafnið Listatorg af sjálfu sér. Reyndar kom okkur á óvart að enginn skyldi hafa tekið það upp áður en auðvitað var alveg frábært að svo var ekki.“ Guðlaug segir Listatorg vera samstarfsverkefni bæjarfélagsins og listafólks á staðnum. „Bærinn ætlar að styrkja starfsemina með því að borga húsnæðið og þarna fá hinar ýmsu greinar lista inni, málaralist, keramik, glerlist og skartgripa- og skrautmunagerð ýmiss konar. Einnig er hugmynd um að hafa líka pláss fyrir leiklist og jafnvel tónlist. Þarna verður semsagt öll flóran. Það eru tvö lista- gallerí á staðnum, Ný vídd og Gallerí Grýti. Þau hafa aðstöðu í hluta framtíðarhúsnæðis Lista- torgs og verða þar að sjálfsögðu áfram. Félagið fær húsnæðið núna um mánaðamótin og þá verður farið í að skipuleggja það. Hér eru tónlistarmenn sem hafa verið á hrakhólum og við erum að vinna í því að fá hús fyrir þá. Það þarf auðvitað að hljóðeinangra það, bæði þeirra vegna og annarra en við viljum endilega hafa þá með í félaginu. Það getur verið svo gaman að vera með uppákomur þar sem allt er í boði, tónlist og sýningar,“ segir Guðlaug. Á stofnfund Listatorgs komu um fjörutíu manns og þar af gerðust þrjá- tíu stofnfélagar. Jóni Norðfjörð, einum aðal- hvatamanni að stofnun félagsins, var klappað lof í lófa fyrir framlag sitt og Sparisjóðurinn fékk líka lófaklapp fyrir 100 þúsund króna framlag sitt. Guðlaug segir Listatorg fá mikinn meðbyr í bænum. „Ég veit að hluti stofnfélaga vill bara styrkja starfsemina með því að vera með en mun ekki nota húsnæðið,“ segir hún. Guðlaug kennir við grunn- skólann í Sandgerði og er í fjarnámi við Kennara- háskólann. Hún er líka í ferða- og menningarráði bæjarins, sem ásamt atvinnumálaráði stendur bak við stofnun Listatorgs. Hún telur sig þó ekki til lista- manna. „Þó ég hafi gaman af að fást við handverk svo sem prjón og hekl þá er ég engin listakona en ég hef brennandi áhuga á því að leggja félaginu lið. Ég veit að það er svo margt hæfileikaríkt fólk á staðnum og mig langar að virkja krafta þess og leiða það saman.“ Sigríður Ragna Sverris- dóttir landfræðingur á sjó- mælingasviði Landhelgis- gæslunnar hefur tekið að sér starf upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar af Dagmar Sigurðardóttur lög- fræðingi stofnunarinnar. „Ég vinn við sjókortagerð á sjómælingasviði Landhelgis- gæslunnar og verð í starfi upp- lýsingafulltrúa meðfram,“ segir Sigríður Ragna. „Það er sveiflukennt hve mikið er að gera hjá upplýsingafulltrúa, eftir því hvað er á seyði hjá Gæslunni.“ Spurð hvort hún færi sig að símanum ef stórútköll verði eða aðrir viðburðir svarar hún: „Mitt hlutverk verður líklega meira skriflegt, útsendingar á fréttatilkynningum og annað slíkt.“ Hún kveðst aðallega starfa við kortagerð hjá Landhelgisgæslunni. „Það þarf stöðugt að gera ný kort og halda þeim við. Straumar hreyfa til efni á hafsbotninum og skip gera það líka í höfnum þar sem mikil umferð er.“ Nýr upplýsingafulltrúi „Stjórnlaus gremja og reiði hlýtur að leiða af sér alvarlega líkamlega sjúkdóma ef aldrei er ráðist að rót vandans.“ AFMÆLI

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.