Fréttablaðið - 01.10.2007, Blaðsíða 8
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is - www.bmw.is
Velgengni í mismunandi myndum.
Þitt er valið.
BMW 318 Advantage kr. 3.810.000
BMW 320 Exclusive kr. 4.290.000
BMW 325xi xDrive Prestige Edition kr. 5.900.000
Advantage, Exclusive og Prestige edition eru aukahlutapakkar sem gerir glæsilega
BMW 3 línu enn glæsilegri. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum í síma 575 1210.
Ertu að leita þér að sportlegum lúxusbíl fyrir þig og vinnuna? Viltu færast nær sólinni, veginum og frelsinu - með blæjuna niðri og vindinn einan að förunaut.
Vantar þig meira rými svo að áhugamálin komist fyrir í bílnum. Eða langar þig til að upplifa ósvikna akstursánægju eins og hún gerist best. BMW 3 línan stendur
undir væntingum í ótal myndum og rúmlega það. Komdu í reynsluakstur og upplifðu alla kosti BMW 3 línunnar af eigin raun.
Danskir vísindamenn hafa
gert tilraunir með að greina
erfðaefni í loðfílum með því að
rannsaka frumur úr hári þeirra.
Árangurinn er mun meiri en búist
var við, því DNA-efnið í hárinu
reyndist í flestum tilvikum svo
heillegt að vinna mátti úr því
miklar upplýsingar um þessa
löngu útdauðu dýrategund.
Frá þessu er skýrt í vísinda-
tímaritinu Science og á vefsíðum
breska útvarpsins BBC.
Til þessa hafa vísindamenn
talið að erfitt sé að greina erfða-
efni í hárstilkum.
„Menn héldu að DNA-efnið
væri allt í rótinni og að hárstilk-
urinn væri gersnauður af DNA,
eða í það minnsta væri DNA-ið
þar mun lélegra,“ hefur BBC
eftir Tom Gilbert, einum vísinda-
mannanna sem unnu að rann-
sókninni.
„Þess vegna gerðum við rann-
sóknir á fjölmörgum loðfílum og
héldum að við yrðum kannski
heppnir ef við tækjum nóg af
hári úr einum þeirra. En málið
er að þetta virkaði á alla loðfíl-
ana sem við reyndum. Það sló
okkur alveg út af laginu,“ segir
Gilbert.
Hann og félagar hans telja að
jafn góðar upplýsingar um erfða-
efni dýra megi fá úr hornum,
nöglum, hófum og jafnvel fjöðr-
um, en allt er þetta eins og hárið,
gert úr próteininu keratíni sem
er afar endingargott, ekki síst ef
það hefur geymst í miklum
kulda. Þetta lofar góðu fyrir
rannsóknir á löngu útdauðum
dýrategundum.
Eykur þekkingu á
loðfílum til muna